Fréttablaðið - 13.01.2017, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7
Fréttablaðið í dag
sKOðun Árni Páll Árnason
skrifar um Brexit. 13
spOrt Tveir þjálfarar kveðja en
einn stimplar sig inn. 18
Menning Svarti galdur
á Íslandi frumsýndur
í Landnámssetrinu 26
lÍFið Flestallir erlendir
ferðamenn sem koma
til landsins staldra
við í miðborg Reykja-
víkur. Fréttablaðið
fór og spjallaði við
nokkra ferðamenn
við Hallgríms-
kirkju. 30
FrÍtt
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
ALLT FYRIR
ÞORRABLÓTIÐ
MIÐASALA Á MAK.IS OG Á HARPA.IS
AMABADAMA
& SinfóníaNord
HOF 4. FEBRÚAR OG HARPA 25. FEBRÚAR
Menningarfélag Akureyrar | Strandgötu 12 | Akureyri | 450 1000 | mak.is SÝNT Í HOFI
plús 2 sérblöð l FólK
l sKriFstOFan
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
saMgöngur Bæjarstjórn Grinda-
víkur hefur óskað eftir því að Vega-
gerðin bæti Grindavíkurveg. Þetta
segir Kristín María Birgisdóttir, for-
maður bæjarráðs. „Margoft og ítrek-
að erum við að benda Vegagerðinni
á að það þurfi að taka til hendinni á
þessum vegi,“ segir Kristín.
Banaslys varð á veginum í gær.
Átján ára stúlka lést í slysinu, norð-
an við afleggjarann að Bláa lóninu,
og einn er alvarlega slasaður. Lög-
reglan á Suðurnesjum rannsakar
nú tildrög slyssins.
„Þetta er ömurlegt. Samfélagið
er í sárum út af þessu slysi. Þetta er
hrikalegt,“ segir Kristín. Hún segir
að slysið muni þrýsta á að brugðist
verði við ástandi vegarins.
„Því miður er það yfirleitt eitt-
hvað svona sem þarf til að fá við-
brögð. Því miður. Þess á ekki að
þurfa,“ bætir hún við.
Hún segir bæjarstjórn hafa lagt
áherslu á það við Vegagerðina að laga
bæri gatnamótin við afleggjarann
að Bláa lóninu. „Síðan voru gerðar
umbætur á þeim vegi, reyndar ekki í
nokkru samráði við okkur, við frétt-
um bara af þessu þegar þeir voru byrj-
aðir,“ segir hún. Jafnframt hafi verið
bent á að vegurinn sé fjölfarinn og
þröngur. Umferðin hafi aukist mikið
með auknum fjölda ferðamanna.
„Nú er ég ekki að ákveða fyrirfram
með hvaða hætti þetta slys átti sér
stað en vegurinn er varasamur,“
segir Kristín enn fremur. Þá segist
hún geta fullyrt að það þurfi að gera
breytingar á veginum ef vel eigi að
vera.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
veginn ekki verri þegar kemur að
breidd eða hönnun en aðra vegi
sem bera tvöfalt meiri umferð. „Það
eru umferðarmeiri vegir, til dæmis
á milli Hveragerðis og Selfoss, sem
eru svipaðir,“ segir Pétur.
„Það sem við höfum horft til,
og kallar þá á gríðarlega mikið
fjármagn og nýjar hugsanir, er að
aðskilja akstursstefnur. Það er besta
leiðin til þess að koma í veg fyrir
slys,“ segir hann enn fremur.
Það verði gert með því að breyta
vegunum í svokallaða 2+1 vegi. Þar
sem tvær akreinar liggja í aðra átt-
ina og ein í hina. Akstursstefnurnar
eru síðan aðskildar með vegriði.
Hann segir stefnt að því að gera slíkt
á milli Hveragerðis og Selfoss.
Á síðasta ári fóru að meðaltali
3.158 bílar um Grindavíkurveg á
hverjum degi. Til samanburðar
fóru 7.416 bílar að meðaltali á milli
Hveragerðis og Selfoss.
thorgnyr@frettabladid.is
Hafa krafist úrbóta á Grindavíkurvegi
Bæjarstjórn Grindavíkur vill að Vegagerðin bæti veginn. Formaður bæjarráðs segir samfélagið í sárum eftir banaslys gærdagsins.
Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir sambærilega vegi þola um tvöfalt meiri umferð. Grindavíkurvegur sé ekki verri en þeir.
Því miður er það
yfirleitt eitthvað
svona sem þarf til að fá
viðbrögð. Því miður. Þess á
ekki að þurfa,
Kristín María Birgis-
dóttir formaður
bæjarráðsr
stjórnsýsla „Við höfum lengi
beðið eftir uppbyggingu við
Jökulsárlón sem er löngu orðin
brýn,“ segir Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar. Hún segir að ef upp-
bygging þar frestist sé það slæmt
fyrir ferðaþjónustuna í heild.
Ágreiningur um hvort forkaups-
réttartilboð ríkisins í jörðina Fell
við Jökulsárlón sé löglegt fer fyrir
dómstóla. Óttast er að á meðan
frestist nauðsynleg uppbygging á
svæðinu.
„Í mörg ár hefur verið beðið eftir
uppbyggingu á svæðinu sem enn
mun tefjast á meðan málið er fyrir
dómstólum. Við ætluðum okkur
stóra hluti en þurfum að bíða enn
um sinn,“ segir Gísli Hjálmtýsson,
stjórnarformaður Fögrusala ehf.
sem gerði tilboð í jörðina.
– sa / sjá síðu 4
Óttast tafir á
uppbyggingu
dægurMál „Það þýðir ekkert að fara
í felur með það að þegar nýir eig-
endur koma inn koma nýir stjórnar-
hættir og nýir samskiptahættir. Við,
sem betur fer, höfum mætt miklum
skilningi á öllum vígstöðvum og
fólki þykir almennt vænt um þessa
hátíð og þykir hún eiga erindi inn í
íslenskt menningarlíf,“ segir Ásgeir
Guðmundsson, nýr framkvæmda-
stjóri Sónar Reykjavík.
Ásgeir fer fyrir
hópi fólks sem tekur
við Sónar hátíðinni
af Birni Steinbekk.
Ásgeir segir lítið
horft í baksýnis-
spegilinn og menn
h a l d i f r e k a r
ó t r a u ð i r
áfram.
– sþh / sjá
síðu 34
Horfa fram á
veginn
Björgvin Páll Gústavsson var besti maður íslenska landsliðsins í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta í Frakklandi í gær. Björgvin var stórkostlegur í fyrri hálfleik þegar hann varði meðal
annars þrjú vítaskot og skoraði eitt mark sjálfur. Björgvin og íslenska liðið náðu ekki að fylgja eftir frábærum fyrri hálfleik og Ísland tapaði fyrir sterku spænsku liði. Fréttablaðið/aFp 1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
F
-1
4
E
0
1
B
E
F
-1
3
A
4
1
B
E
F
-1
2
6
8
1
B
E
F
-1
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K