Fréttablaðið - 13.01.2017, Page 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Nú er í gangi hin árlega umræða um listamanna-launin. Nokkur hundruð listamenn fengu nefnilega úthlutað styrk úr listamannasjóði fyrir
nokkru. Allmargir, sér í lagi frjálshyggjumenn, keppast
við að gagnrýna þessa styrki og telja að listamenn eigi að
vera sjálfum sér nógir með sölu á sínum verkum en ekki
reiða sig á fjárstuðning frá ríkinu.
Þótt taka megi undir þessar gagnrýnisraddir er mikil-
vægt að halda sig við prinsippin en hamast ekki á einum
tilteknum hópi fremur en öðrum. Hvað með aðra þá er
þiggja fjárstyrki úr ríkissjóði eins og afreksfólk í íþróttum
(Afrekssjóður) eða frumkvöðla úr tæknigeiranum
(Tækniþróunarsjóður)? Geta þessir hópar ekki einnig
verið sjálfum sér nægir og reitt sig á tekjur af sinni vinnu
á markaði eða frjáls framlög? Af hverju fá slíkir hópar
frið fyrir þeirri linnulausu gagnrýni sem listamenn þurfa
iðulega að þola?
List skapar líka verðmæti
Vera má að skýringin á hinum neikvæðu viðbrögðum
sumra gagnvart ríkisstyrkjum til listamanna felist í þeirri
mýtu, að þeir skapi ekki raunveruleg verðmæti fyrir þjóð-
félagið líkt og t.d. íþróttamenn eða frumkvöðlar. Þetta er
vitaskuld alrangt. Listsköpun hér á landi nemur nefnilega
verulegu hlutfalli af þjóðarframleiðslu. Stærðargráðan er
vel á annað hundrað milljarða. Ekki nóg með það, lang-
stærsti hlutinn kemur frá hinum frjálsa markaði, ekki í
formi niðurgreiðslna hins opinbera.
Við frelsisunnendur og talsmenn markaðslausna
verðum því að gæta samræmis í máli okkar og ekki fara
hamförum gagnvart einum hópi ríkisstyrkþega á meðan
fjölmargir aðrir hópar njóta sams konar fjárstuðnings
gagnrýnislaust. Segjum einfaldlega: Ríkið á ekki að
styrkja eða veðja á einhverja tiltekna íþróttamenn,
frumkvöðla eða listamenn fremur en aðra. Markaðurinn
á alfarið að sjá um slíkt í umhverfi þar sem sköttum
og öðrum viðskiptahindrunum er haldið í lágmarki.
Markaðurinn talar nefnilega skýrt: þeim er refsað sem
fást við iðju sem þeir ráða illa við og beint annað; hinum
er hampað og hvattir til enn frekari dáða.
Listamannalaun
– hví þessi læti?
Guðmundur
Edgarsson
málmenntafræð-
ingur og kennari
Þótt taka
megi undir
þessar
gagnrýnis-
raddir er
mikilvægt að
halda sig við
prinsippin en
hamast ekki á
einum
tilteknum
hópi fremur
en öðrum.
Af sömu rótum
Daginn eftir að ný ríkisstjórn tók
við völdum var farið að greina
frá því hverjir yrðu aðstoðar-
menn ráðherra. Þannig verður
til dæmis Borgar Þór Einarsson
aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar utanríkisráðherra.
Þau Karl Pétur Jónsson almanna-
tengill og Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdóttir lögfræðingur
verða aðstoðarmenn Þorsteins
Víglundssonar. Margir vita að
þau Borgar Þór Einarsson og Þor-
björg Sigríður hafa starfað saman
í Vöku, á vettvangi ungra sjálf-
stæðismanna og bæði tilheyrt
ritstjórn vefritsins Deiglunnar.
Og sjálfsagt er ekki verra að það
ríki traust meðal aðstoðarmanna
nýrra ráðherra.
Árásin forðum
Það sem miklu færri vita er að
þeir Borgar Þór og Karl Pétur
eiga líka sögu. DV greindi frá
því hinn 20. nóvember 2003 að
Borgar Þór Einarsson, sem þá var
reyndar aðstoðarmaður Tómasar
Inga Olrich menntamálaráð-
herra, hefði kært Karl Pétur fyrir
líkamsárás sem hann sagði hafa
átt sér stað á öldurhúsi í borginni
2. október sama ár. „Ég varð fyrir
tilefnislausri og hættulegri árás
þegar hann sló mig með glasi í
höfuðið í kjölfar samtals okkar á
milli,“ sagði Borgar. Þá er bara að
vona að aðstoðarmennirnir tveir
geti fyrirgefið atvik frá löngu
liðinni tíð.
jonhakon@frettabladid.is
Ef ríkið fengi í dag afhenta ávísun upp á 400 milljarða, væri hagsmunum þess best borgið ef þeim fjármunum yrði ráðstafað til fjár-festinga í hlutabréfum í íslenskum bönkum? Tæplega. Öllum ætti að vera kunnugt um þá miklu áhættu sem felst í bankarekstri.
Afkoma bankanna hefur versnað á síðustu misserum
og arðsemi af reglulegum rekstri er aðeins um og yfir
sex prósent. Það væri því hægt að gera margt skynsam-
legra við slíka fjármuni – til dæmis að halda áfram að
greiða niður skuldir ríkisins.
Staðan í dag er hins vegar sú – meira en átta árum
eftir fjármálaáfallið – að ríkið er enn alltumlykjandi
á bankamarkaði. Í gegnum eignarhald sitt á Íslands-
banka og Landsbankanum, auk þess að eiga gríðarlegra
fjárhagslegra hagsmuna að gæta við söluferli Arion
banka, þá er fjármálakerfið nánast alfarið í höndum
íslenskra skattgreiðenda. Sú fjárhæð sem ríkið er með
bundið sem eigið fé í bönkunum nemur um tuttugu
prósentum af landsframleiðslu. Gróflega áætlað fara
um níu af hverjum tíu krónum sem stóru bankarnir
skila í hagnað til ríkissjóðs. Þessi staða er einsdæmi í
hinum vestræna heimi – og getur vart talist eðlileg.
Ný ríkisstjórn virðist vera sama sinnis. Í stefnuyfir-
lýsingu hennar segir að til „langs tíma litið [sé] ekki
ákjósanlegt að ríkið fari með meirihlutaeign í við-
skiptabönkunum“ og því „mikilvægt að minnka hlut
ríkisins í varfærnum skrefum og víðtækri sátt“. Sú
stefnumörkun er ágæt, svo langt sem hún nær.
Til skemmri tíma litið ættu stjórnvöld að huga að
öðrum leiðum en sölu hlutabréfa til að endurheimta
fjármuni ríkisins í bönkunum. Greint var frá því á
dögunum að Íslandsbanki hefði tekið ákvörðun um
sérstaka greiðslu arðs til hluthafa, sem er íslenska ríkið,
að fjárhæð 27 milljarðar. Stjórnendur Landsbankans
hljóta að gera slíkt hið sama á komandi mánuðum.
Sterk lausa- og eiginfjárstaða bankans þýðir að hann
hefur svigrúm til að greiða hluthöfum tugi milljarða
með útgreiðslu arðs og sölu eigna. Slík ákvörðun
væri hagstæð fyrir ríkið og myndi jafnframt hafa þær
jákvæðu afleiðingar að minnka efnahagsreikning bank-
ans og gera stjórnvöldum þannig auðveldara um vik að
selja hlut sinn á hinum örsmáa íslenska markaði.
Fram undan eru löngu tímabærar breytingar á
eignarhaldi bankanna. Í hartnær sex ár sættum við
okkur við þá staðreynd að meirihluti bankakerfisins
var í höndum andlitslausra vogunarsjóða, fyrirkomulag
sem var á skjön við reglur FME um hverjir séu hæfir til
að vera eigendur fjármálafyrirtækja. Í dag er það ríkið
sem fer að mestu fyrir bönkunum – að undanskildum
Arion banka. Fyrirséð er að nýir eigendur komi að þeim
banka síðar á árinu þegar hluthafar Kaupþings munu
selja hlut sinn. Æskilegast væri að erlendir fjárfestar
verði þar fyrirferðarmiklir kaupendur í stað þess að
bankinn endi að stórum hluta í eigu íslenskra lífeyris-
sjóða. Verði það niðurstaðan er ljóst að salan á Arion
banka mun ekki marka upphafið að nauðsynlegri
endurskipulagningu bankakerfisins. Það sýnir okkur
reynslan af umsvifum lífeyrissjóða sem meirihlutaeig-
enda að flestum skráðum félögum í Kauphöllinni.
Einsdæmi
Í sex ár
sættum við
okkur við að
meirihluti
bankakerfis-
ins var í
höndum
andlitslausra
vogunarsjóða.
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Úr einu fræi varð bylting.
Moroccanoil hárvörumerkið er
innblásið af ferskum vindum,
bláma sjávarins og landslagsins
í kringum Miðjarðarhafið.
Upphafið er sjálf Moroccanoil
Treatment olían sem er góður
grunnur fyrir hvaða hárgerð sem
er. Einnig góð í krakka og skegg.
Til að fá sem bestu næringarefnin
er gott að setja hana alltaf í blautt
hárið og blása það eða leyfa því að
þorna eðlilega.
Olíurnar eru þrjár og nýjust er Blow Dry Concentrate sem hönnuð er fyrir gróft og erfitt hár.
Moroccanoil Treatment hentar öllum hárgerðum og LIGHT fyrir fíngert og mikið ljóst hár.
Regalo ehf Iceland
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r12 S k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-3
C
6
0
1
B
E
F
-3
B
2
4
1
B
E
F
-3
9
E
8
1
B
E
F
-3
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K