Fréttablaðið - 13.01.2017, Qupperneq 20
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
J
óhann Gunnar, eða Jói, hóf
feril sem dansari þegar
hann var barn að aldri
hjá Heiðari Ástvaldssyni,
Sigvalda og fleirum. Hann
keppti í nokkrum Íslandsmeistara
mótum og vegnaði vel í dansinum.
Það varð til þess að honum bauðst
hlutverk hjá Leikfélagi Akureyr
ar en Jói er alinn upp fyrir norð
an. Má þar nefna Emil í Kattholti,
Fiðlarann á þakinu, Kysstu mig
Kata og Tjútt og tregi eftir Valgeir
Skagfjörð. Þá samdi hann dansa
fyrir Leðurblökuna þegar Kolbrún
Halldórsdóttir setti sýninguna upp
á Akureyri.
aFtur í leikhús
Nú er Jói aftur kominn í leik
hús. Nýjasti viðkomustaður hans
er Borgarleikhúsið, þó ekki til að
dansa og leika heldur útbúa veislu
bakka fyrir gesti hússins. Undan
farin ár hefur aukist til mikilla
muna að fólk, jafnvel hópar, komi
í leikhúsið fyrir sýningu og fái sér
léttan mat. Jói, sem starfaði sem
bryti á varðskipinu Þór, ákvað að
breyta til þegar fjölga þurfti í eld
húsi leikhússins og honum bauðst
starfið. Hann fékk átta mánaða
launalaust frí hjá Landhelgisgæsl
unni til að kokka fyrir leikhúsgesti.
Eiginkona Jóa, Kristín Ólafsdóttir,
Kiddý, er veitingastjóri Borgarleik
hússins og þau eru ekki óvön því
að starfa saman. Jói hlakkar mikið
til nýja starfsins, enda segir hann
að húsið iði af krafti og sköpun. Í
fyrradag hélt Leikfélag Reykjavík
ur einmitt upp á 120 ára afmæli.
Jóa langaði þó aldrei til að læra
leiklist. „Pabbi minn heitinn lék
mikið með áhugaleikfélaginu og
báðar ömmur mínar. Það er mikil
leiklist í ættinni. Ég vildi frekar
dansa og hrista mig,“ segir Jói sem
var enn of ungur þegar blómaskeið
diskósins var og hét. „Ég elska tón
list og er alltaf með hana í kring
um mig. Svo tek ég stundum spor
in í eldhúsinu,“ segir hann og hlær.
ÖrlÖgin ráðin í eyjum
Frá því Jói dansaði í Tjútt og
trega hefur margt drifið á daga
hans. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akur eyri og
var búinn að ákveða að læra bæði
að vera danskennari og hárgreiðslu
maður. „Ég var kominn með samn
ing í báðum þessum greinum en
það reyndist svo mikið að gera í
danskennslunni að ég fór aldrei í
hárgreiðsluna,“ segir hann. Hann
starfaði sem danskennari í Dans
skóla Hermanns Ragnarsson
ar. Eftir stúdentsprófið fór Jói til
Vestmannaeyja til að vinna á Kaffi
Maríu. Það var örlagaríkt sumar
því þar kynntist hann Kiddý. Sum
arið eftir fór hann aftur til Vest
mannaeyja en ári þar á eftir rak Jói
sumarhótel á Núpi í Dýrafirði, að
eins 22 ára. Mataráhuginn kviknaði
snemma og hefur alltaf fylgt honum
þótt hann hafi ekki kosið að fara í
matreiðslunám. „Ég hef eldað mat
frá því ég man eftir mér. Pabbi var í
Oddfellow og sem smápolli hjálpaði
ég honum að smyrja snittur fyrir
fundi. Ég ætlaði aldrei að vinna við
matargerð en hún hefur samt alltaf
fylgt mér í störfum mínum. Ég rak
hótelið á Núpi í þrjú sumur en var
þá boðið að taka að mér heilsárs
hótel á Flúðum. Þar vorum við
hjónin í tvö ár,“ segir hann. „Kiddý
er lærður þjónn og blómaskreyt
ir sem nýttist vel á hótelinu. Síðan
fluttum við aftur til Akureyrar þar
sem ég hóf störf hjá hótel KEA. Svo
datt okkur í hug að kaupa blómabúð
Akur eyrar og rákum verslunina í
tvö ár,“ útskýrir hann. Þá verða enn
á ný þáttaskil í lífi þeirra.
butler á bessastÖðum
Auglýst var eftir ráðsmanni á
Bessastöðum og eftir miklar
vangaveltur sóttu þau um starfið.
„Nokkrir voru búnir að nefna það
við okkur að sækja um þetta starf
en blómabúðin gekk vel svo við
vorum ekki alveg á því að breyta
til. Við sóttum samt um á síðasta
degi en áttum ekkert sérstaklega
von á að fá starfið. En á Bessastaði
fórum við árið 2002 og störfuðum
þar í tæp 10 ár,“ segir Jói.
Ólafur Ragnar var kominn fram
í annað kjörtímabil þegar Jói og
Kiddý hófu störf á Bessastöðum og
Dorrit var orðin húsfrú. „Þetta var
rosalega spennandi tími hjá okkur
en jafnframt erfiður og krefjandi.
Nýr kafli hófst í lífi okkar á Bessa
stöðum, þetta var gríðarlega mikið
og erilsamt starf. Ég var staðar
haldari og Kiddý ráðsmaður. Í
upphafi starfaði með okkur Hall
dóra Pálsdóttir en hún hafði unnið
á Bessastöðum frá árinu 1956 með
fjórum forsetum. Hún var þvílík
ur viskubrunnur og gat leiðbeint
okkur með alls kyns hluti. Svo bjó
hún yfir merkilegum sögum frá
staðnum. Það er ábyrgðarmikið
starf að stýra þjóðhöfðingjasetri
en starfsmenn eru auðvitað bundn
ir trúnaði,“ segir Jói sem eldaði í
smærri veislum á Bessastöðum
en færustu matreiðslumeistarar
voru kallaðir til þegar um stærri
veislur var að ræða. „Ég var svo
heppinn að vinna með þeim og ég
lærði rosalega mikið. Í opinberum
veislum vorum við Kiddý þó alltaf
bæði frammi í salnum. Að fá alla
þessa strauma og stefnur í eldhús
ið frá þessum frábæru kokkum var
meiriháttar. Ég bý enn að þeirri
reynslu.“
Jói segir að vissulega séu hefð
ir og venjur breytilegar á Bessa
stöðum eftir því hvaða forseti situr
þar. „Halldóra gat sagt okkur frá
því hvernig breytingarnar gerðust
með árunum. Sem dæmi þá bjuggu
Ásgeir Ásgeirsson og Kristján Eld
járn á efri hæðinni í aðalhúsinu á
Bessastöðum. Þegar Ólafur tók við
embættinu var kominn sérstakur
forsetabústaður. Það er mjög eftir
minnilegur og skemmtilegur tími
sem við áttum á Bessastöðum,“
segir Jói og enn var komið að breyt
ingu í lífi hans þegar honum var
boðin staða bryta á varðskipinu Þór.
á sjó
„Við eigum þrjár dætur, Kristrúnu
sem nú er 26 ára, Katrínu, 19 ára
og Margréti sem er að verða 18
ára. Þegar við hættum á Bessa
stöðum var það ekki síst þeirra
vegna. Okkur langaði til að hafa
meiri tíma fyrir þær. Þess má geta
að yngsta dóttirin, Margrét, er mik
ill danssnillingur og margfaldur Ís
landsmeistari í dansi. Hún dansar
núna í Mamma Mia. Svo skemmti
lega vill til að þegar Margrét fór í
keppni greiddi Jói henni á einstak
an hátt sem eftir var tekið.
Jói hafði aldrei fengist við sjó
mennsku þegar hann hóf störf hjá
Landhelgisgæslunni. „Ég hafði
farið með Herjólfi til Eyja en varð
alltaf mjög sjóveikur. Það var
samt gaman að prófa eitthvað nýtt
og eiginlega forréttindi að starfa
fyrir Gæsluna. Þetta er stofnun
sem nýtur mikils trausts og er að
gera mjög góða hluti. Fyrsta ferðin
mín var frá Chile til Íslands og tók
30 daga. Langmest sigldum við þó
innan landhelginnar. Það er mikið
um alls konar æfingar um borð
enda þurfa menn alltaf að vera til
taks.“
Nú eru liðin fimm ár og Jói og
Kiddý eru aftur farin að vinna
saman. „Við erum samhent og
eyðum öllum frístundum saman.
Ég hlakka til að vinna aftur með
Kiddý,“ segir hann. „Gestum sem
komu á Njálu var boðið að kaupa
kjötsúpu sem var mjög vinsælt,
einnig hafa verið í boði snittu,
tapas og ostabakkar sem eldhús
ið hefur séð um og svo verður
áfram. Hins vegar tökum við núna
upp nýjan matseðil fyrir gesti sem
vilja koma snemma og borða fyrir
sýningu. Með því getur fólk slak
að betur á og gert meira úr kvöld
inu,“ segir Jói.
butler í bretlandi
Það er ekki úr vegi í lok sam
tals að spyrja Jóa um viðurnefn
ið. „Þegar ég byrjaði á Bessastöð
um fóru vinir mínir að kalla mig
bötlerinn. Það festist við mig og
Kiddý gaf mér númeraplötur á bíl
inn minn þar sem stendur bötler.
Ég verð því áfram Jói bötler.“
En er það rétt að þau hafi feng
ið atvinnutilboð frá enskum herra
garði um butlerstöðu?
„Það er rétt. Við fengum tölvu
póst þar sem okkur var boðið
að taka að okkur stórt setur, ég
sem butler og Kiddý sem „house
keeper“ eða ráðskona. Þetta væri
auðvitað frábært tækifæri fyrir
okkur en við vorum samt ekki til
búin til þess núna. Við eignuðumst
fyrsta barnabarnið fyrir stuttu og
tímum ekki að fara frá fjölskyld
unni,“ segir hann. „Það var virki
lega spennandi að fá þetta tilboð
enda höfum við alltaf verið með
opinn hug gagnvart breytingum.“
elín
albertsdóttir
elin@365.is
Hjónin í borgarleikhúsinu; Kiddý er veitingastjóri og jói bötler ætlar að kokka ofan í gesti. mynd/stefÁn
jói og Kiddý störfuðu á bessastöðum í tæp tíu ár. Þau voru sæmd sérstakri þjónustuviðurkenningu fyrir framlag sitt.
mynd/gunnar g. VigfÚssOn
jóa er margt til lista lagt. Hann langaði
að læra hárgreiðslu eftir stúdentspróf
en úr því varð ekki. Hann hefur hins
vegar greitt dóttur sinni, margréti, sem
er margfaldur meistari í dansi. eins og
sjá má ferst honum verkið vel úr hendi.
Þarna eru Kiddý og jói búin að gera allt klárt fyrir veislu með indverska forset-
anum í Hafnarhúsinu. mynd/gunnar g. VigfÚssOn
Hægeldað
nautabrjóst
Texas BBQ Style
1.690 kr. fyrir tvo
til og með 28. feb.
Klipptu flipann út
og taktu með þér.
2
FYRIR
1
Grandagarði 11
texasborgarar.is
Hægeldað nautabrjóst
Texas BBQ Style
Borið fram í hamborgara
brauði með, ristuðum lauk,
sætkartöflustráum og
amerísku hrásalati
„coleslaw“,
ásamt krullufrönskum
Aðeins 1.690 kr.
HÆGELDAÐ NAUTABRJÓST
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-4
B
3
0
1
B
E
F
-4
9
F
4
1
B
E
F
-4
8
B
8
1
B
E
F
-4
7
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K