Víkurfréttir - 01.02.1996, Síða 3
Tölvuskóli Suðurnesja að hejja sitt þriðja starfsár:
Tölvuskóli Suðumesja hefur hafið út-
gáfu kennslubóka fyrir þrenns konar
tölvuforrit en skólinn er nú að hefja sitt
| þriðja starfsár og kynnti starfsemi sína
á Ránni sl. fimmtudagskvöld.
I Eigendur skólans em fyrirtækin Tölvu-
væðing og Aðstoð og Bjami Kristjáns-
son, tannsmiður. Skólinn hefur lagt
áherslu á endurmenntun og hagnýtt
nám, sem nýtist fólki í atvinnulífinu og
í atvinnuleit. Sl. haust hóf hann kennslu
fyrir atvinnulausa f samvinnu við At-
| vinnuleysistryggingasjóð og verkalýðs-
félög og að sögn Ragnars Marinósson-
ar, skólastjóra stendur fyrir dymm að
hefja slíka kennslu á nýjan leik. Hann
sagði að reynsla af kennslu fyrir at-
vinnulausa hefði gefið góða raun. Ein-
hveijir hefðu fengið störf í framhaldi af
náminu og aðrir fóm áfram út náms-
brautina m.a. í framhaldsskóla.
A kynningarfundinum fóru eigendur
og starfsmenn Tölvuskóla Suðumesja
vítt og breitt yfir starfsemi skólans auk
j þess að gauka að gestum fróðlegum
upplýsingum úr tölvusögunni. Meðal
nýjunga hjá skólanum er bókaútgáfa.
Bjami Kristjánsson, Baldur Baldursson
og Ragnar Sigurðsson em aðalhöfund-
ar þriggja kennslubóka en Bjami sagði
að hingað til hafi ekki verið til viðun-
andi kennslubækur fyrir algengustu
forritin, s.s. Word, Windows 95 og
Exel. Kennslubækur TS em með litiu
lesmáli og byggðar upp í þrepaformi,
sk. „step by step“ og er þekkt útgáfuað-
ferð erlendis. Einnig stendur til að gefa
bækurnar út í möppuformi. Þannig
væri auðvelt að uppfæra þær þegar nýj-
ungar kæmu.
Ragnar Marinósson, skólastjóri sagði
skólann í góðu sambandi við atvinnu-
lffið á Suðurnesjum sem og ýmis
starfsmannafélög. Til dæmis hefði
Starfsmannafélag Suðurnesjabyggða
kostað félagsmenn sína á námskeið.
Einnig kom fram að í framhaldi af
námskeiðahaldi TS fyrir íslenska starfs-
menn vamarliðsins hefði komið upp sú
hugmynd að bjóða bandariskum starfs-
mönnum á vellinum námskeið þar sem
kennt væri á ensku. Baldur Baldursson,
stjómarformaður Tölvuskólans sagði
að þessi hugmynd hefði verið vel tekið
og gengið vel. Ekki er vitað til þess að
vamarliðsmönnum hafi verið áður boð-
ið námskeið sem væri haldið á þeirra
tungumáli.
A kynningunni sagði Baldur frá athygl-
isverðu „stríði“ um tölvustafrrófið en
það var barátta um íslensku stafinu á
tölvum. „í því stríði vannst gríðarlega j
mikilvægur sigur fyrir okkur Islendinga
en það vita mjög fáir“, sagði Baldur.
Magnús Jóhannesson, rekstrar- og
stjómunarfræðingur flutti stuttan en at-
hyglisverðan fyrirlestur um gæðastjóm-
un og kom hann víða við. Meðal ann-
ars kom Intemeúð til tals og voru gesúr
forvitnir að vita hvemig það kemur til
með að nýtast Islendingum.
♦ Eigendur Tölvuskóla Suðurnesja ásamt starfsmönnum. F.v. Ragnar Sigurðsson, Ragnar Marinósson, Baldur
Baldursson, Iða Brá Vilhjálmsdóttir, Bjarni Kristjánsson, Elvar Gottskálksson, Guðmundur Þórðarson og Magn-
ús Jóhannesson, rekstrar- og stjórnunarfræðingur. VF-mynd/pket.
tölvuskóli
suðurnesja
tölvuskóli
r (_ suðurnesja
HAFNARGÖTU 35 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4025
Atvinnulausir athugið!
Innritun stendur yfir
í eftirtalin námskeið
• Vélritunarnámskeið
• Byrjendanámskeið
• Excel (töflureiknir)
• Word (ritvinnsla)
• Námskeið í auglýsingagerð
Notið ykkur tækifærið þar sem námið
er ykkur að kostnaðarlausu!!!
Látið skrá ykkur strax í síma 421 4025
Einstaklingar og
fyrirtæki athugið!
Innritun stendur yfir á eftirtalin
námskeið hjá Tölvuskóla Suðurnesja: , ^
• Grunnnámskeið
• Word ritvinnsla
• Excel töflureiknir
• PowerPoint auglýsingagerð
• Windows 95 ofl.
Innritun stendur yfir í síma 421 4025 /^suðumesja
V íkurfréttir
3