Víkurfréttir - 01.02.1996, Blaðsíða 6
Hvítir
kanar
Breytingar hafa verið
gerðar á reglugerð sem
heimila það að hvítar
númeraplötur séu settar
á bifreiðar varnarliðs-
manna. Númeraplötur
vamarliðsmanna hafa
verið gular frá þvf að
fattnúmerakeiflð var
tekið upp fyrir nokkrum
árum. Vamarliðsmönn-
um þykir þeir vera áber-
andi á gulum númemm
og bifreiðar þeirra verði
frekar fyrir skemmdar-
verkum heldur en ef
þær væm ekki eins auð-
þekktar.
Nýju númeraplöturnar
verða hins vegar auð-
kenndar með bláum
tígli samskonar og þeim
sem er á rauðum núm-
erum virðisaukaskatts-
bíla.
Útgefandi:
Víkurfréttir hf.
Kt. 710183-0319
Afgreiðsla,
ritstjórn
og auglýsingar:
Vallargötu 15,
símar 421-4717
og 421-5717. Box 125,
Keflavík. Fax 421-2777.
Bílas. 853-3717.
Ristjóri og áhm.:
Páll Ketilsson,
heims. 421-3707
ogGSM 893-3717.
Frettastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
heims. 422-7064
ogbilas. 854-2917.
Auglýsingadeild:
Sigríður Gunnarsdóttir og
Inga Brynja Magnúsdóttir.
Víkurfréttum er dreift
ókeypis um öll Suðurnes.
Fréttaþjónusta
fyrir Stöð 2 og Bylgjuna.
Aðili að Samtökuni
btejar- og
héraðsfréttablaða.
Stafræn útgáfa:
http://www.
spomet.is/vikur
fr/index.html
Netfang/rafpóstur:
vikurfr@spomet.is
Eftirprentun, hljóðritun,
notkun ljósmynda og
annað er óheimilt, nema
hcimildar sé gctið.
Útlit og
auglýsingahönnun:
Víkurfréttir hl'.
Umbrot, filmuvinna
og prentun:
Stapaprent hl'. s. 421-4388.
mME!M
PÁLL KETILSSON
Fíkniefnauandinn
Fíkniefnavandinn birtist okkur nú aö þvi
er virðist í stærri mynd en nokkru sinni
áður. Með friðarumræöu í kringum Ví-
etnamstríöið var á þeim tíma af mörgum
taliö hættulítið að neyta fíkniefna. Menn
komust þó fljótlega að því að slík var ekki
raunin. Hættan var meiri en látið var af og
í tímans rás hefur það komið í ljós.
Frá þessum „friðar-hippatímum" hefur
fíkniefnavandamálið vaxiö svo um munar
og er í dag orðiö stærra en nokkurn grun-
ar. Ungt fólk, unglingar allt niður í tóif ára
börn hafa veriö tekin með fíkniefni. Þar er
nýjasta hættan svokallað Extacy, eða Al-
sæla, oft nefnd E-pillan. Þetta efni er út-
búið eins og sælgætistöflur en getur verið
banvænt. Mörg dæmi sýna það. Haft er
eftir unglingum að jafn auðvelt sé að
verða sér úti um E-pilluna og pítsu.
Um 80% fíkniefna sem hald er lagt á hér á
landi, nást við komuna til landsins. Toll-
gæslumenn í Leifsstöð hafa þar staðið sig
vel. Hin 20% nær lögreglan á vettvangi
eða við handtökur. Þab þýðir einfaldlega
að sjaldnast tekst aö ná í höfuöpaurana,
þá sem standa á bakvið innflutninginn,
dreifingu og sölu. Þá kemur upp sú spurn-
ing sem menn hafa velt fyrir sér sem
vinna ab forvarnarstarfi í fíkniefnamálum
hvort fylgja ætti t.d. Bretum í þessum efn-
um, með því að veita verðlaun fyrir upp-
lýsingar sem leiða til handtöku fíkniefna-
sala og innflytjenda. Hópur lögreglu-
manna og tollvaröa á íslandi sem fylgist
með fíkniefnasmygli er fámennur.
Frammistaða þeirra er mjög gób miðað við
aðstæður.
í grein í blaöinu í dag eftir Elías Krisjáns-
son, tollfulltrúa í fíkniefnaeftirliti á Kefla-
víkurflugvelli bendir hann á athyglisverð-
ar en óhugnalegar staöreyndir meö
svokölluðu Schengen-samkomulagi. Það
kveður á um að þjóbir í því geti feröast sín
á milli án landamæravörslu. Elías bendir á
ab gríðarlega mikib atriði sé hvernig tekiö
verði á landamæravörslu því lönd sem lig-
gja aö aðildalöndum Schengen, mörg
mið- og suður- Evrópulönd séu yfirleitt
með mun frjálslegri stefnu í fíkniefnamál-
um. Þetta geti þýtt stóraukna dreifingu
fíkniefna, ekki síst frá austur blokkinni þar
sem mikið er framleitt. Þegar „múrinn"
var brotinn misstu margir lyfjafræðingar
þar störf og þurftu í kjölfarið að leita fyrir
sér á „svörtum" markaði, í undirheimun-
um. Þar nýttust þeir í framleiðslu fíkni-
efna.
Forvarnarstarf hlýtur að vera ofarlega á
listanum yfir stærstu atriöin í stríðinu
gegn fíkniefnabölinu. Enn og aftur kemur
að yfirvöldum þessa lands. í þessu máli
duga engin vettlingatök. Vonandi gera
menn sér grein fyrir því.
Páll Ketilsson.
ÞORRABLÓT
Kvenfélags Njarðvíkur fór fram í Stapa
sl. laugardagskvöld. Á annað hundrað
manns voru við borðhald og skemmtun
en síðan fjölgaði þegar leið á kvöldið
og dansinn dunaði fram á rauðan
morgun. Hilmar Bragi kíkti í hrútspunga
og hákarl og tók meðfylgjandi myndir.
/
/ gomm og aköru
KJARTAN MÁR KJARTANSSON
Listin að njóta lista
Akureyri. KEA, KA, Þór, Hlfðarfjall,
Bjössi Garðars, Bautinn og Sjallinn.
Þetta er sú ímynd sem ég held að flestir
hafí af höfuðborg Norðurlands. Að und-
anfömu hefur þó menningarlffið á Akur-
eyri verið að ryðja sér æ meira til rúms
sem mjög stór þáttur f bæjarbragnum og
nú heyrir maður æ oftar talað um Akur-
eyri sem menningarbæ og það ekki af
ástæðulausu. Þar er
menningarlíf með mikl-
um blóma; atvinnuleik-
hús, myndlistarskóli,
tónlistarskóli, listasafn,
sýningarsalir, ýmis
minjasöfn, menntaskóli,
háskóli, kaffihús, fjöldi
skemmtistaða og sinfón-
íuhljómsveit svo eitthvað
sé nefnt. Þar blómstrar
menningarlífíð og bæjar-
búar kunna svo sannar-
lega að njóta þess sem
boðið er uppá. Ferða-
menn streyma á sumrin
til Akureyrar til þess að njóta veðurblíð-
unnar og fjölskrúðugs menningarlífs og
skilja eftir sig krónur og aura í bæjar-
kassanum.
í byrjun janúar átti pistlahöfundur þess
kost að heimsækja Akureyri, dvelja þar í
nokkra daga í góðu yfirlæti og leika með
Sinfónfuhljómsveit Norðulands á Nýárs-
tónleikum í Akureyrarkirkju. Skemmst
er frá að segja að íerðin var í alla staði
hin ánægjulegasta, sérstaklega tónleik-
arnir sjálfir þar sem hljómsveitin lék
prýðisvel undir stjórn Guðmundar Ola
Gunnarssonar, skólastjóra Tónlistarskól-
ans á Akureyri, fyrir fullu húsi. Og þá
komum við að kjama málsins. Forsenda
fjölbreytts menningarlífs er þátttaka al-
mennings. Ef hinn almenni bæjarbúi
sækir vel leiksýningar, tónleika, mynd-
listarsýningar og aðra viðburði skapast
sterkari gmndvöllur og betra starfsum-
hverfi fyrir listamennina. Fleiri leiksýn-
ingar, myndlistasýningar og tónleikar
gefa listamönnunum líka tækfæri á að
þróa sig og list sína og verða betri í dag
en í gær.
Hér á Suðumesjum hefur aðsókn að tón-
leikum, myndlistasýn-
ingunt og leiksýning-
um verið ágæt þótt
alltaf megi gera betur.
Þó er fjöldi fólks sem
lætur þessa viðburði,
sem skipta tugum á
hverju ári, sig engu
skipta og sumir Suð-
urnesjamenn fara
aldrei á tónleika,
myndlistasýningar eða
í leikhús. Hugsið ykk-
ur hvers þeir fara á
mis ! Ég legg til að
næst jregar þú, lesandi
góður, ferð á tónleika, myndlistarsýn-
ingu eða í leikhús, þá bjóðir þú einhveij-
um með þér sem þú telur að sé í hópi
þeirra sem sjaldan eða aldrei fara á slika
viðburði. Með því ert þú hugsanlega að
opna augu þess hins sama fyrir nýjum
hliðum á lífinu og um leið sá fræi sem
getur borið góðan ávöxt. Hvemig væri
til dæmis að byija á því að sækja kaffi-
húsakvöld Menningarnefndar Reykja-
nesbæjar sem fram fara f Kjama, göngu-
götnni við Flughótelið, og heíjast sunnu-
dagskvöldið 11. febrúar n.k. Staðsetning
kaftihúsakvöldanna verður auglýst síðar
en boðið verður uppá fjölbreyttar og
skemmtilegar menningardagskrár með
heimamönnum.
6
Y íkurfréttir