Víkurfréttir - 01.02.1996, Blaðsíða 14
Apótek Keflavíkur 45 ára:
Það eru tímamót hjá Apóteki Keflavíkur um næstu
helgi. Þá fagnar fyrirtækið bæði 45 ára afmæli sínu
en það var stofnað 7. febrúar 1951, og opnar um leið
snyrtivörudeild sína í endurbættu húsnæði. Fyrir áramót
var tekinn í gagnið um 120 fermetra viðbvgging Apóteksins
en með þessum áfanga nú er miklum breytingum á húsnæði
fyrirtækisins lokið.
♦ Svona leit afgreiðslusalur apóteksins út eftir breyting-
arnar 1982.
♦ Heiðrún Þorgeirsdóttir og Benedikt Sigurðsson í nýja húsnæði apóteksins.
VF-mynd/pket.
♦ Úr afgreiðslu Apóteks Keflavíkur áður en henni var
breytt árið1982.
Atvinna
Vantar bílstjóra til að keyra út Pizzur
Þarf að hafa bíl til umráða
Upplýsingar á staönum.
NYJUNGAR
Benedikt Sigurðsson apótek-
ari segir að takmörkuð stærð
Apóteksins fyrir þessar breyt-
ingar hafi komið í veg fyrir að
hægt var að bjóða upp á meiri
þjónustu því hafí verið tekin
ákvörðun um að stækka hús-
næðið með viðbyggingu.
Meðal nýjunga sem boðið
verður upp á í „nýja" apótek-
inu er ókeypis næringaráðgjöf
þar sem fólk getur pantað
tíma hjá næringafræðingi,
blóðþrýstingsmælingar og
einkaviðtöl við lyfjafræðinga,
svo eitthvað sé nefnt. Sérstakt
viðtalsherbergi hefur verið út-
búið í Apótekinu þar sem
þessari þjónustu verður m.a.
sinnt.
Ný snyrtivörudeild með
auknu vömúrvali verður opn-
uð nk. laugardag en eins og
fyrr segir flutti hefðbundin
starfsemi Apóteksins í ný-
bygginguna fyrir áramót. Þar
er afgreiðslan nú í rúmgóðu
húsnæði og meðal nýjunga
þar má nefna aukið vöruval
þar sem viðskiptavinimir geta
skoðað sjálfir það sem er á
boðstólum . Einnig er góð að-
staða fyrir böm sem bíða með
foreldrum sínum. I því sam-
bandi má einnig nefna þá sér-
stöðu sem nú er boðið upp á,
þ.e. að nú geta mæður komið
með barnakerrurnar inn í
verslunina og þurfa ekki að
♦ I vikunni
voru iðnað-
armenn að
vinna við
lokafrágang
á snyrtivöru-
deildinni.
skilja þær eftir fyrir utan.
BREYTT í ANNAÐ SINN
Starfsmenn Apóteks Kefla-
víkur em með eigendum tutt-
ugu talsins, þó ekki allir í
heilsdagsstöðum. Þau Bene-
dikt og Heiðrún Þorgeirsdóttir
tóku við rekstri Apóteksins
árið 1978 af Jóhanni Ellerup,
apótekara. Fjómm ámm síðar
gerðu þau miklar breytingar á
þáverandi húsnæði apóteksins
og stækkaði afgreiðslusalur-
inn um 80%. Tóku þau efri
hæðina og einnig kjallara í
notkun undir starfsemina.
Samhliða þessu létu þau rífa
skúrbyggingar þar sem ýmis
starfsemi á vegum apóteksins
hefði verið. Þessir skúrar voru
þar sem núverandi nýbygging
var reist.
í viðtali við blaðið Faxa árið
1982, að afloknum breyting-
unum sagði Benedikt að þessi
stækkun apóteksins ætti að
duga um ófyrirséða framtíð.
„Ekki hef ég verið mjög fram-
sýnn", segir Benedikt þegar
hann rifjar upp þessi ummæli
sín, enda hefiir mikið breyst á
þessum tíma.
FRÁ SUÐURNESJUM
Benedikt og Heiðrún kona
hans eiga bæði ættir sínar að
rekja til Suðurnesja þó svo
þau séu ekki uppalin á svæð-
inu. Langafi Heiðrúnar,
Magnús Gunnlaugsson var
fæddur í Stapakoti í Innri-
Njarðvík en faðir Benedikts
náði sér í kvonfang í Sand-
gerði og hóf búskap með
henni á sínum heimaslóðum,
Akranesi og segist Benedikt
muna eftir mörgum heim-
sóknum með foreldmm sínum
til ömmu sinnar á Flankastöð-
um í Sandgerði. En þegar
hann var 15 ára fór hann í
framhaldsskóla í Reykjavík.
Hann lauk síðan lyfjafræði-
námi árið 1961, starfaði í Ing-
ólfsapóteki til ársins 1963 og í
heildverslun Stefáns
Thorarensen við framleiðslu
til ársins 1968. Þá fór hann til
Selfoss og tók við apótekinu
þar. Eftir tíu ára veru fyrir
austan fjall lá leiðin til Kefla-
víkur þar sem þau hjón hafa
alið manninn síðan.
Þau Benedikt og Heiðrún em
ánægð með breytingarnar í
apótekinu og segja þær allar í
þá vem að geta aukið þjónust-
una og að vinnan við breyt-
ingamar beri iðnaðarmönnum
á Suðurnesjum fagurt vitni.
Heiðrún hefur haft snyrtivöm-
deildina á sinni könnu en sala
á snyrtivömm hófst í apótek-
inu árið 1980.1 tilefni þessara
tímamóta verða margar kynn-
ingar ásamt ýmsum tilboðum
og fleiru í afmælismánuðin-
Aukin þjonusta
og nýjungar í
stærra apóteki
14
V íkurfréttir