Víkurfréttir - 01.02.1996, Page 17
Klemmdist
með hönd við
mötunartjakk
Starfsmaður í Sorpeyðingar-
stöð Suðurnesja slasaðist al-
varlega þegar hann klemmdist
með hönd við mötunartjakk í
stöðinni snemma í gærmorg-
un.
Ekki er vitað til hvemig slysið
átti sér stað. Starfsmaðurinn
virðist þó hafa getað slökkt á
stjórnunarrofa þegar óhappið
gerðist því vakstjóri í stjórn-
herbergi varð var við hjá sér í
tækjabúnaði að tjakkurinn,
sem ýtir rusli inn í brennslu-
ofn, hafði stöðvast. Þurfti að
kalla til slökkvilið með tækja-
búnað til að losa manninn en
hönd hans festist á milli
tjakksins og eins af stálbitum
sem heldur honum uppi. Þuifti
að logskera bitann frá tii að
losa hönd mannsins. Var mað-
urinn fastur í um 45 mínútur.
Hann var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans. 1 gær var ekki
vitað hversu alvarleg meiðsli
hans vom.
Þetta er í annað sinn sem
vinnuslys verður við þennan
mötunartjakk. Það fyrra varð
við uppsetningu tjakksins en
þá slapp starfsmaður á ótrú-
legan hátt þegar stroffa gaf sig
og hluti búnaðarins hrundi
niður.
Fjöldafundur
á föstudag
Garðar Jónsson
transmiðill frá
Akranesi verður
með fjöldafund í
húsi félagsins
föstudaginn
2. febrúar
kl. 21:00.
Verð kr. 500.-
fyrir félaga
og kr. 700.-
fyrir aðra.
Schengen-fíkniefnin!
ann 14. júní 1985
komu saman full-
trúar 10 Evrópu
þjóða, Austurríki,
Belgía, Frakkland, Italía,
Grikkland, Holland,
Portúgal, Luxemborg,
Spánn og Þýskaland til
skoðunar á hinum svokall-
aða "Schengenger". Þar
sem um er að ræða sátt-
mála þjóðanna sem kveð-
ur á um að þjóðirnar geti
ferðast sín á milli án
landamæravörslu. Þann
26. mars 1995, tók sátt-
málinn svo gildi.
Eins og kunnugt er þá er í
athugun hjá stjórnvöldum
hérlendis hvort Island eigi
að gangast inn á sáttmála
þjóðanna. En Island og
Noregur hafa sótt um
aukaaðild, verði að inn-
göngu Islands og Noregs
þá korna Danir, Svíar og
Finnar í kjölfarið.
Opinber stefna flestra þjóða
Mið- og Suður-Evrópu
(landa sem mynda ytri um-
gjörð) varðandi fíkniefni er
yfirleitt mun frjálslegri en
hjá flestum þeim þjóðum
sem að sáttmálanum standa.
Því er það áhyggjuefni að
landmæraeftirlit inn í
Schengen-lönd verði hvergi
nógu markvisst.
TolIayFirvöld koma í veg
fyrir smygl
Metár var hjá tollayfirvöld-
um hérlendis hvað varðar
haldlagningar á Amfetamíni
og Ecstasy (E-pillum). 80%
ofangreindra fíkniefna sem
lagt var hald á, náðust áður
en þau fóru inn í landið til
dreifingar..
Landamærin - ólöglegir
innflytjendur frá austur-
blokkinni
Pólveijar ásamt öðrum aust-
antjaldsþjóðum framleiða
árlega gnðarlegt magn Am-
fetamíns og Ecstasy (E-pill-
ur). Árlega fer töluverður
straumur ólöglegra innflytj-
enda frá austurblokkinni
m.a. í gegnum þýsku landa-
mærin. (Eru þeir því þar
með komnir inn á svæðið).
Frá Þýskalandi með ferjum
yfir til Rödbyhavn og Ged-
sek í Danmörku fara í kring-
um 9 milljónir manna ár-
lega. Á sl. ári voru 2000
ólöglegir innflytjendur
stöðvaðir á ofangreindum
landamærum. Hópur
toll/lögreglumanna hefur
unnið mjög gott starf að
undanfömu á landamærun-
unt í baráttunni við fíkni-
efnasmyglara.
HoIIand - innanlands
framleiðsla fíkniefna
Holland er í sáttmála þjóð-
anna. Þar í landi eru starf-
ræktar tugir ólöglegra verk-
smiðja sem framleiða Am-
fetamín og Ecstasy (E-pill-
ur). Einni slíkri var lokað nú
nýlega af lögreglu en hún
framleiddi á dag 250.000
töflur. E-pillan og Am-
fetamín sem hingað hefur
verið smyglað á undanföm-
um árum hefur komið að
mestu frá Hollandi.
Einungis hefur verið minnst
á verksmiðjur sem fram-
leiddu fíkniefnin hér að
ofan, en reikna verður ein-
nig með auknu flæði á
Cannabisefnum (koma frá
heittempruðum löndum) og
Kókaíni (sem þrífst ein-
göngu í Suður-Ameríku)
Heróíni (frá Asíu) auk ann-
arra fíkniefna.
Er það því mikið áhyggju-
efni hvernig þau riki innan
Schengen ætla að taka á
vaxandi flæði fíkniefnanna
og vinna almennt að böli því
sem þeim fylgir.
Keflavík 29. janúar 1996,
Elías Kristjánsson,
tollfulltrúi fíkniefnaeftirliti,
Keflavíkurflugvelli.
Skattframtöl
Tökum að okkur gerð skattframtala fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Traust og góð þjónusta á sanngjörnu verði.
Só^undcci Sáúíí &dt.
'þódcUw
Grundarvegi 23, Njarövfk
Tímapantanir í síma 421 5767 Bréfsími 421 5075
Opið frá kl. 16.00 til 22.00 virka daga og um helgar frá kl. 10.00 til 16.00
Visa/Euro greiöslukortaþjónusta.
Fræðasetrið
í Sandgerðí
Opið föstudaga og
laugardaga kl. 13-17
Á öðrum tímum eftir
samkomulagi
Starfsmannaliópar
sérstaklega velkomnir
Sími 423-7551 eða
557-8422
TAXI
___/_
SIMmtllVH
MYNDARFÓLK
HAFNAR6ÖTU 52 - SÍMI AZl 4290
Samvinnufeiiir
Landsýn
ÞORRINN
NÁL6AST
SÍMINN ER
421A797
Víkurfréttir
17