Víkurfréttir - 01.02.1996, Blaðsíða 19
♦ Anna María Sveins-
dóttir, fyrirliði og Björg
Hafsteinsdóttir hampa
bikarnum í sjöunda sinn
Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari lítur upp til
þeirra ánægður á svip.
VF-mynd/Hulda.
hja Keflavik
Keflavík vann öruggan sigur á stöll-
um sínum úr Njarðvík í bikarúrslit-
um í körfuknattleik kvenna í
íþróttahúsinu í Garði sl. iaugardag.
Lokatölur urðu 69-40.
Sigur Keflvíkurstúlkna var öruggur.
Það var aðeins í upphafi sem þær
grænu náðu að halda í við þær. UMFN
skoraði fyrstu stigin og náði forystu
6:2 en bikarmeistarar þriggja síðustu
ára tóku þá við sér og um miðjan hálf-
leikinn skoraði Keflavík þrettán stig
gegn aðeins tveimur. I Ieikhlé munaði
17 stigum, 35:18 fyrir Keflavík.
I síðari hálfleik jókst munurinn með
liðunum. Keflavík með Erlu Reynis-
dóttur í fararbroddi var óstöðvandi og
með þær Erlu Þorsteinsdóttur, Önnu
Manu Sveinsdóttur, Björgu Hafsteins-
dóttur og Veronicu Cook í vörninni
komust þær grænklæddu lítið áleiðis.
Þegar dómarar leiksins, annar þeirra
hinn gamalreyndi Jón Otti Ólafsson,
flautuðu til leiksloka munaði 29 stig-
um á liðunum, 69:40.
„Við hittum illa og náðum okkur
aldrei á strik ef undan er skilinn ágæt-
ur byrjunarkafli. Slíkt gengur ekki á
móti jafn sterku liði og Keflavík",
sagði Harpa Magnúsdóttir, fyrirliði
UMFN eftir leikinn. „Leikurinn varð
aldrei spennandi. Eftir upphafskaflann
náðum við yfirhöndinni og eftir það
var aldrei spuming hvemig leikurinn
færi“, sagði Björg Hafsteinsdóttir og
fyrirliði liðsins, Anna María Sveins-
dóttir tók undir þessi ummæli en sagði
svo: „En það var auðvitað mjög
skemmtilegt að vinna þennan bikar
sem við höfum gert svo oft og það var
líka skemmtilegt að gera það hér í
Garðinum“.
Lið Keflavíkur var jafnt og í síðari
hálfleik var allt byijunarliðið komið á
bekkinn. Erla Reynisdóttir skar sig þó
úr með hreint frábærri frammistöðu.
Stúlkan er eldklár og núna skoraði hún
meira en hún gerir vanalega. Nafna
hennar Þorsteinsdóttir var mjög dijúg
og sérstaklega nýtist hæð hennar vel.
Hjá Njarðvík vom þær atkvæðamestar
Suzette Sargeant og Harpa Magnús-
dóttir en í liðinu em margar efnilegar
stúlkur sem eiga framtíðina fyrir sér.
Stig Keflavíkur: Erla R. 18, Veronica
Cook 13, Anna María 10, Erla Þ. 9,
Margrét Sturlaugs 7, Björg Hafsteins
6, Guðlaug Sveins 5 og Kristín Þórar-
insd. 1.
Stig UMFN: Suzette Sargeant 13,
Rannveig Randvers 9, Harpa M. 8,
Eva Stefánsd. 5, Hólmfriður Karls-
dóttir 2, Pálína Gunnarsdóttir 2 og
Berglind Kristjánsdóttir 1.
♦ Þær útlensku settu svip sinn á
leikinn, f.v. Veronica Cook og
Suzette Sargent. VF-mynd/Hulda.
• Þriðju deildarlið Víðis í knattspymu hefur fengið liðsauka fyrir komandi tímabil.
A.m.k. sex nýir leikmenn hafa gengið til liðs við Garðliðið en það eru Björgvin Björg-
vinsson, Þrótti Reykjavík, Steinar Ingimundarson, Fjölni, Arnar Astþórsson og Jón
Ragnar Astþórsson úr Keflavík, Sigurður Torfason, KS og Hafþór Birgisson ffá IA. Þá
ætla þeir Steinbjöm Logason og Sigmar Scheving frá Keflavík, sem gengu til liðs við
Víði á miðju sumri í fyrra að leika áfram með liðinu.
• Keflvíkingurinn Jón Guðmundsson hefur þjálfað lið Þórs frá Akureyri í DHL-deild-
inni í vetur. Ekki hefur gengi Iiðsins verið upp á það besta og í viðtali við blaðið Dag á
Akureyri nýlega var hann greinilega mjög óhress eftir eitt tap liðsins og eftir að hafa
gefið nokkrar skýringar á tapinu sagði hann meðai annars: „Þetta lið er bara íyrir há-
menntaða sálfræðinga"...
bikarpunktar
• Garðmenn stóðu vel að bikarúr-
slitaleik kvenna í körfu. Þegar fólk
kom á bílum sínum að íþróttahúsinu
tóku björgunarsveitannenn úr Ægi á
móti fólki og vísaði því f stæði. Þegar
inn í hús var komið voru margir
starfsmenn frá bæði Garðmönnum og
liðunum og héldu vel utan um á milli
sex og sjöhundruð áhorfendur sem
mættu á þennan nágrannaslag.
• Sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni stendur einhvers staðar. í UMFN
liðinu var ung stúlka, Eva Stefáns-
dóttir sem stóð sig vel eins og inargar
yngri stúlkumar íliðinu sem vom all-
ar að leika sinn fyrsta alvöru leik.
Eva er dóttir Stefáns Bjarkasonar
sem á ámm áður var ein helst skytta
Njarðvíkurliðsins.
• Stefán Bjarkason, íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi Reykjanesbæjar aflienti
Garðmönnum viðurkenningarskjal
sem þakklæti fyrir að lána aðstöðuna,
þ.e. þetta glæsilega íþróttahús, fyrir
þennan úrslitaleik. Við skjalinu tók
Sigurður Ingvarsson, hreppsnefndar-
maður úr Garði.
• Fimleikastúlkur úr Keflavfk settu
svip sinn á leikinn með atriðum í
leikhléum. Þær vom klæddar í bún-
inga beggja félaganna og sýndu
skemmtileg tilþrif.
• Þessi sigur Keflavíkur var sá sjö-
undi í bikamum á síðustu tíu ámm en
liðið hefur verið í úrslitum níu sinn-
um og þær Anna María Sveinsdóttir
og Björg Hafsteinsdóttir hafa verið í
eldlínunni í öllum leikjunum.
• Eftir leikinn fékk Keflavíkurliðið
afhentar 150 þús. kr. frá afrekssjóði
íþróttaráðs Reykjanesbæjai'.
Miðaútsala
hjá Njarðvík
Njarðvíkingar hafa tekið ráð
handbolta-Víkinga sér til eftir-
breytni og ætla í næstu þremur
heimaleikjum að Iækka miðaverð.
Auk þess ætla þeir að vera með
ýmis skemmtiatriði á meðan
leiknum stendur.
„Það fer að styttast í úrslitakeppni
þannig að við viljum koma til
móts við stuðningsmenn okkar í
leikjunum fram að henni. Við
emm að skoða þessi mál í heild
sinni ofan í kjölinn og byrjum á
þessu", sagði Hrannar Hólm,
framkvæmdastjóri körfuknatt-
leiksdeildar Njarðvíkur í samtali
við Víkurfréttir.
Miðaverð fyrir fullorðna lækkar
úr 600 krónum í 400 og úr 300 í
200 kr. fyrir böm.
♦ Njarðvíkingar hafa lækkað
miðaverð á næstu 3 heimaleiki
sína.
íþróttahúsið í Keflavík:
DHL-deildin fflKF
íKVÖLD fimmtudagsdvöld 1. febrúar kl. 20.00
KEFLAVÍK ÞÓR AKUREYRI $PEPSI
Landsbanki
íslands
Útibúin á Suðurnesjunum
AFRAM KEFLAVIK!
Víkurfréttir
19