Víkurfréttir - 10.07.1997, Síða 13
FRETTIR
Utgefandi:
Víkurfréttir ehf.
kt. 710183-0319
AJgreiðsltt, ritsljórn
ag a uglýs iiiffa r:
Grumlarvegi 23 Njarftvík
Hími 421 4717 fax 421 2777
Ritstjóri og ábm.:
I’áll Krlilsson
heimas.: 421 3707,
GSM: 893 3717
Fré Itn s Ij ó ri:
ilLIinar lira^i BáriSarHon
GSM: 898 2222
Illaóatnaóiir:
Dagný Gísladóttir
liriinas.: 421 1404
A uglýs inga s I/ ó ri:
Sigríóur Gnnnarsilóttir o
lltlit, litgreining
og ninbrot:
Víkurfréttir elif.
Filniurinna og prentnn:
Stapaprent lií’.
sími: 421 4388
Netjang:
lihh@ok.is
Stafram ú tgáJ'a:
http://www.ok.is/vikiirfr
Árný Herbertsdóttir Ijós-
myndari úr Keflavík býr
nú í fjallafaðmi Isafjarðar
og rekur þar Ijósmynda-
stofuna Myndás. Henni
líkar vel þar vestra og
finnst fjöllin bara notaleg.
Hún flutti til Isafjarðar fyrir
10 árum síðan og hefur systir
hennar Elínborg körfuknatt-
leikskona úr Keflavík ný-
verið fylgt í fótspor hennar en
hún kenndi í vetur við
Grunnskóla ísafjarðar.
Þær eru dætur Bimu
Zophaníasdóttur sem rekur
verslunina Vouge í Keflavík
og Herberts Ámasonar.
Að sögn Ámýjar er tilveran
ágæt á ísafirði og var hún
ánægð með tilkomu nýn-ar
Samkaupsverslunar í bæinn
og sagði hana lífga upp á
miðbæjarlífið sem hafi látið á
sjá. En er Ámý ekki alltaf á
skíðum á vetuma eins og allir
aðrir ísfirðingar?
„Eg reyndi það nú einu sinni
en datt á hausinn svo ég
ákvað að fara í hesta-
mennskuna í staðinn", segir
Ámý og hlær., J>að er svo til
nýbyrjað hjá mér og reynist
erfitt því eins og skilja má er
lítið um láglendi til útreiða.
Það vantar þetta keflvíska
láglendi".
Ámý er gift Snorra
Grímssyni sem er Isfirðingur
í húð og hár. Hann starfar í
Áfengis- og tóbaksverslun
Isfirðinga og saman eiga þau
synina Herbert, Grím og
Yngva. Þeir fara allir á skíði
með pappa sínum á vetuma á
meðan Amý lætur sér nægja
hestana.
Ámý segist þó sakna sólar-
innar á vetuma.
, J>að er notalegt að hafa hana
þegar að maður kemur heim
til Keflavíkur“, segir hún.
„Annars er hér sérstök hefð á
ísafirði sem við köllum
sólarkaffi. Þá bökum við
pönnukökur í desember og
höfum það notalegt til þess
að fagna sólinni".
Færð þú aldrei innilokunartil-
finningu á milli allra fjall-
anna, sértaklega þegar haft er
í huga að þú er uppalin í
flatlendinu í Keflavík?
„Nei, það eina sent hefur haft
einhver áhrif á mig hér er
skammdegið. Janúar er
erfiður mörgum og þá
sérstaklega aðfluttu fólki. Hér
er töluvert af fólki frá
Suðumesjum eða 12-15
manns en þó höfum við ekki
haft rænu á því að halda
hópinn. Sumu fólki líkar ekki
vel héma og fer aftur".
Eru Isfirðirðingar duglegir að
láta mynda sig?
, Já þeir em það eins og flestir
aðrir. Það er nóg að gera á
stofunni og hef ég mjög
gaman af þeirri vinnu“, segir
Ámý sem er ósköp ánægð
yfir því að starfa og búa á
ísafirði.
Það var mikið fjör í
.lónsmessumóti (íollklúbbs
Suðurnesja sein haldið var í
Leirunni rétt fyrir sjálfa
Jónsmessuna. Friðjón
Þorleifsson og hans fólk í
veitingasölunni í samvinnu
við Grolsch umboðið gril-
luðu og buðu upp á léttar
veigar í fljótandi formi.
Eitthundrað og sextán
manns léku golf í góðu veðri
þar sem vanir og óvanir
kvlfingar voru saman í
liðuni. Að loknum mörgum
höggum var grillað og slegið
á létta strengi í golf-
skálanum.
Verðlaunahafar í Jónsmessumóti GS.
Boðið i/ar upp ó léttar veitingar í fljótandi formi. Hér sjáum
við formanninn með nokkrum þyrstum kylfingum...
SvartSíyJflíÉfi
Svona á að kveða
niður drauga!
í kjölfar beinafundar að
Kirkjubóli á dögunum heyrð-
um við hér á blaðinu sögu að
því hvemig draugagangur í og
við kirkjugarðinn hafði verði
kveðinn niður. Draugagangur
var víst tíður á þessum stað og
gengu margir aftur. Það var
hins vegar stöðvað þannig að
grafirnar voru opnaðar,
höfuðið tekið af búk þess sem
gekk aftur og nefinu stungið í
óæðri endann á búknum. Þá
hætti allur draugagangur.
Það hafa sem sagt verið fram-
taksamir draugabanar í „Sand-
gerði" á miðöldum.
Víkurfréttir
13