Víkurfréttir - 10.07.1997, Qupperneq 15
Þjálfari frá Chicago Bulls
með námskeið Keflavík
Einn þekktasti
körfuknattleiks-
þjálfari sem kom-
ið hefur ltingað til
lands, Tex Winter,
sóknarþjálfari
Chicago Bulls
verður með fyrir-
lestur á Glóðinni
á föstudag. „Það
er mikill fengur
að fá svo þekktan
þjálfara hingað til
lands. Hann mæt-
ir örugglega með
mikinn fróðleik fyrir okkur“,
sagði Tómas Tómasson, um-
boðsmaður en hann stendur fyr-
ir komu Tex hingað til lands.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari sigurliðs Keflavíkur segir að
þetta sé einstakt tækifæri að fá
svo kunnan þjálfara hingað. „Ef
það hefði verið hægt að fá flug-
ferðir hingað til lands er Ijóst að
það hefði verið hægt að setja
upp námskeið hér sem körfu-
boltafólk frá öðrum löndum
hefði sótt hingað til Islands",
segir Sigurður og bætti við:
„Körfuboltafólk má hreinlega
ekki missa af þessu".
Fyrirlestur Tex
hefst á Glóðinni
kl. 15 á morgun,
föstudag. Alaug-
ardag verður fyr-
irlesturinn í
Iþróttahúsi Kefla-
víkur frá kl. 9.00
til 18.00. Á
sunnudag verður
námskeiðið svo á
Glóðinni kl. 9.00-
12.00. Á meðal
þess sem Tex
mun fjalla um er
„Triangle offence" (Þrfhyrn-
ingssóknin) og hugmyndafræð-
ina á bak við hana. Auk þess
mun hann tala vítt og breytt um
körfuknattleik og svara fróð-
leiksfúsum þjálfumm og áhuga-
mönnum um körfuknattleik.
Tex er hugmyndasmiður á bak-
við þríhyrningssóknina sem
hann leiddi inn í leik Chicago
ári áður en liðið vann sinn
fyrsta NBA titil árið 1990. Liðið
sigrað tjómm sinnum á síðustu
sex árum. Tex var ráðinn til
Chicago árið 1989 og er enn í
fullu tjöri þó hann sé orðinn 75
ára gamall.
Keflvíkingar voru áttaviltir á Skaganum en ekki gegn
Fram í 16 liða bikarúrslitum. Þeir leika gegn Val íkvöld
í 8 lida bikarúrslitum.
Landsmót UMFÍ í Borgarnesi:
Besti árangur Keflavíkur síðan 1984
Ekki smeykur með MiaMið
-sagði Sigurður Björgvinsson eftir fyrsta tap Keflvíkinga á tíma-
bilinu. Stórleikur á Hlíðarenda í kvöld i 8 liða úrslitum.
Keflvíkingar voru áberandi á
Landsmóti UMFÍ í Borgamesi
um sl.helgi. Keflvíkingar lentu í
4. sæti í heildarstigakeppninni
sem er besti árangur félagsins
frá upphafi en árið 1984 lenti
Keflavík einnig í 4. sæti.
Eydís Konráðsdóttir náði besta
árangri sundkvenna á mótinu og
Keflavfkurdeildin var jafhffamt
stigahæst en sigur vannst í tíu
greinum af tuttugu auk þess
sem sundfólk frá Keflavík var
nokkmm sinnum í 2. og 3. sæti.
Njarðvíkingar sigmðu í körfu-
boltakeppninni og lögðu granna
sfna úr Grindavík í úrslitum
með eins stigs mun 98:97.
Keflavíkurstúlkur komu á óvart
í handboltanum og veittu
Stjömustúlkum, deildarmeistur- j
unt síðasta árs í 1. deildinni,
harða keppni í úrslitaleiknum. j
Njarðvík varð í 3. sæti í golf-
keppninni sem haldin var í fyrs-
ta skipti og Keflavík varð í 3.
sæti í fimleikunum.
Leiðindamál kom upp á mótinu
þegar Grindvíkingum var vísað j
af svæðinu vegna ölvunar og
óspekta á tjaldsvæðinu.
„Það er vissulega erfitt að halda
einbeitingu í svo langan tíma en
ég er ekki smeykur með
framhaldið. Strákarnir vilja
vinna og eru tapsárir. Það er
góðs viti“, sagði Sigurður
Björgvinsson, annar þjálfari
Keflavíkur eftir fyrsta tap
liðsins á tímabilinu. Skagamenn
voru fyrstir til að leggja
Keflavík og lokatölur urðu 3:0 á
Skiptaskaga.
Keflvíkingar fengu á sig
slysamark snemma í leiknum
og svo skoraði Arnar
Gunnlaugsson úr vítaspyrnu
þegar 2 mín. voru komnar fram
yfir venjulegan leiktíma. Á
íyrstu mín. síðari hálfleiks sko-
ruðu Skagamenn þriðja mark
sitt. Það sem eftir lifði leiks
voru heimamenn nærri því að
skora fleiri mörk en topplið
Keflavíkur að minnka muninn.
Guðmundur Steinarsson átti
besta tækifæri Keflavíkur þegar
hann átti gott skot úr aukaspyr-
nu en Þórður markvörður IA
varði meistaralega.
Ketlavík leikur í 8 liða úrslitum
Coca Cola bikarkeppninnar
gegn Val á Hlíðarenda í kvöld.
„Eins og ég hef sagt áður eru
bikarleikir öðruvísi en deildar-
leikir, - upp á lif og dauða. Við
komum með því hugarfari í
kvöld", sagði Sigurður.
Grindvíkingar óheppnir
Grindvfkingar gerðu jafntefli
við Skallagrímsmenn í Sjóvá-
Almennra deildinni í Grindavík
sl. sunnudag. Bæði lið gerðu
eitt mark og skoraði Sinisa
Kekic mark UMFG snemma í
síðari hálfleik..
Grindvíkingar voru betri aðilinn
í leiknum og hefðu átt að trygg-
ja sér sigur á lokamínútunum
þegar Kekic komst í dauðafæri.
Hann lék ámarkvörðinn en
Borgnesingar björguðu á línu
og sluppu nteð skrekkinn.
Islandsbanka- og
Spanisjóðshjónin unnu
Landsbankabikarínn
Hjónin Jón Ólafur Jónsson og
Guðbjörg Gunnarsdóttir sigruðu í
Landsbankatvímenningi sem haldinn
var á Hólntsvelli í Leiru nýlega.
Svo skemmtilega vill til að þau hjón, Jón
Ólafur og Guðbjörg eru bankastarfsmenn
þó ekki starfi þau í Landsbanka. Hann
starfar í Islandsbanka og hún í
Sparisjóðnum. Það er því hægt að segja
að þau hafi sameinast um að yfirtaka
Landsbankann. Þau fengu 47 punkta en
sama punktafjölda náðu bræðumir Albert
og Hólntgeir Hólmgeirssynir og
„tengda“-feðgamir Kristján Björgvinsson
og Sigurður Albertsson. Sannkallað
fjölskyldumót við verðlaunaathendingu-
na. Þau Jón Ólafur og Guðbjörg voru
með betri árangur en hin pörin á síðustu
holunum sem gaf þeim efsta sætið.
Guðjón Sigurðsson úr Landsbankanum
kom ekki aðeins til að afhenda verðlaunin
heldur tók hann sig til og mætti fyrstur á
teig til að vera kylfusveinn fyrir Lúðvík
Gunnarsson. Hann varð ekki fyrir von-
brigðunt því Lúlli lék ágætis golf og
veðrið lék við kylfinga.
unglinganám-
skeið í golfi
fyrir 6-12 ára
hefst nk. mánudag. nánari
upplýsingar og skráning í
golfskálanum í Leiru,
sími 421 4100.
Golfskóli Sigurðar Sigurðssonar
Víkurfréttir
15