Víkurfréttir - 07.10.1999, Side 6
Viðskipti og atvinnulíf
Kristján Baldvinsson
Gunnlaugur Sigurjónsson
Sigurjón Kristinsson
Kristján Baldvinsson tók við
stöðu kvensjúkdómalæknis
þann l.júní sl. Hann lærði í
Svíþjóð og hefur starfað á
Selfossi, Landspítalanum og á
Akureyri. Síðastliðin þrjú og
hálft ár bjó hann og starfaði í
Noregi. „Ég er Reykvíkingur
en flutti hingað frá Noregi til
að geta verið nær bömum og
bamabömum”, sagði Kristján.
Gunnlaugur Sigurjónsson hóf
störf við Sjúkrahús Keflavík-
ur þannl3.september sl. Sér-
grein hans eru heimilislækn-
ingar. Gunnlaugur bjó í 5 ár í
Telemark í Noregi þar sem
liann stundaði sérfræðinámi.
Sémámi lauk hann fyrir hálfu
ári síðan.
Sigurjón Kristinsson er heim-
ilislæknir og byrjaði að vinna
á sjúkrahúsinu í byrjun ágúst.
Hann var í sérfræðinámi í
Noregi og lauk námi þaðan
1997. Síðastliðin tvö ár vann
hann sem heimilislæknir á
heilsugæslustöð í Noregi.
„Mér líkar vel að búa hér suð-
urfrá. Ég er fæddur og uppal-
inn í Eyjum og finnst gott að
koma í sjávarpláss. í Noregi,
þar sem ég bjó, kom aldrei al-
mennilegt rok en mér finnst
ennþá gott að láta blása á and-
litið á sér, þó sú tilfinning
hverfi eflaust fljótlega,” sagði
Sigurjón að lokum.
Texti og mvndir: Silja Dögg
Kátína á bókasafninu! i
Það var slegið á létta strengi á Bókasafni Reykjanesbæjar í |
gærdag þegar ljósmyndari Víkurfrétta átti leið þar um. Þessir I
krakkar voru að lesa í bókunt og spila á spil þegar okkar
maður tók upp myndavélina og hugðist taka mynd. Var eins
og við manninn mælt, krakkamir spruttu upp og jretta varð
árangurinn. VF-mynd: Hilmar Bragi
I_________________________________I
Þjofnaðir
og innbrot
í bíla
Mikið er um að GSM-
símum sé stolið úr
bifreiðum og af
skemmtistöðum. Á
skemmtistöðunum leggur fólk
gjaman frá sér símana stutta
stund eða geymir þá í töskum
eða yfirhöfnum, en þjófarnir
hika ekki við að kippa símun-
um með sér ef þeir fá tækifæri
til þess. Einnig er mikið um
að gemsar og hljómflutnings-
tæki séu tekin úr bifreiðum,
en innbrot og skemmdarverk
á bflum eru
orðin mjög
tíð. Undan-
tekningalaust
eru slíkir
þjófnaðir
tengdir fíkni-
efnum. Af
gefnu tilefni
beinir lögregl-
an þeim til-
mælum til
fólks að gæta
símanna sinna
betur og læsa
bifreiðum.
MlÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR
Á SUÐURNESJUM
NÁMSKEIÐ í BOÐI Á NÆSTUNNI
GPS staðsetningarkerfið:
Þátttakendur læra að nota þetta
gervitunglakerfi med kortum og
öðrum lykilgögnum.
Verður þriðjudaginn 12. okt. kl. 20:00
í FS, kennari: Sævar Reynisson
Verð kr. 3000
Að skrifa vandaða íslensku:
Að auka færni við að rita gott íslenskt
mál með Þorvaldi Sigurðssyni
Hefst miðvikudaginn 12 október
í FS kl. 17:00. Þrjú skipti
Verð kr. 7000
Eldvirkni á Reykjanesi,
eru mannvirki í hættu7
Ari Trausti Guðmundsson,
fjallar um efnið í máli og myndum
Verður fimmtudaginn 14. okt.
kl. 20:00 í VIK, Hafnargötu 80
Verð kr. 3.500, kvöldka ffi
Netagerð með
Lárusi Þ. Pálmasyni:
Hnútar og splæs,
hefst 15. okt kl. 13 í FS
Iðnreikningur netagerðar
hefst 18.okt. kl.17 í FS
Vírasplæs hefst 23. okt. 09:00 í FS
Námskeið í tölvunotkun:
Grunnámskeið, excel og internet
verða haldin þegar komið er í hóp,
skráning stendur alltaf yfir og
er ekki skuldbindandi.
Nýsköpun - leiðir til árangurs
Verður haldið 21 okt. í Eldborg,
Svartsengi. Leiðbeinandni
Páll Kr. Pálsson
og Þórhallur Guðlaugsson
Verð kr. 19.900.-
Nánar í námsskrá- og hjá MSS
sími 42 1 7500
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
Skotið á
Holtaskola
I síðustu viku tilkynnti Sig-
urður Þorkelsson skóla-
stjóri Holtaskóla uni að
byssuglaðir einstaklingar
hefðu skotið á öryggisgler í
útihurð á suðurhlið skólans.
Ákveðnir aðilar eru grunað-
ir um verknaðinn en lög-
reglan rannsakar númálið.
IMýir læknar til starfa hjá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Víkurfréttir