Víkurfréttir - 29.10.1999, Qupperneq 5
KEFLAVÍKURVERKTAKAR
KEFUWÍKURV
SloinfuniJur
„Það verða að sjálfsögðu ein-
hverjar breytingar eins og
eðlilegt er þegar ný stjórn
tekur við nýju sameinuðu
fyrirtæki“, sagði Bragi
Pálsson, stjórnarformaður
Keflavíkurverktaka hf.
Stofnfundur hins nýja félags
var í Stapa í síðustu viku og
mættu 96% hluthafa á fundinn
sem hlýtur að teljast met. Fyrir
fundinn hafði verið verulegur
titringur vegna kjörs í nýja
stjórn. Tvær fylkingar buðu
fram. Önnur undir forystu
Braga Pálssonar en hin með
Jón H. Jónsson í fararbroddi en
Jón hefur verið forstjóri
Keflavíkurverktaka sf. sem var
„skrifstofu-bákn“ aðildarfé-
laganna.
Svo fór að Bragi og félagar fóru
með sigur af hólmi í baráttunni
um þetta risavaxna verk-
takafyrirtæki sem verður það
þriðja stærsta hér á landi eftir
sameininguna.
Með Braga í stjóm vom kjörin
Sigurður Guðmundsson, Éinar
Bjömsson, Guðrún Jakobsdóttir
og Jóhann Benediktsson.
Samkvæmt heimildum helgar-
blaðs munu vera veruleg sær-
indi hjá þeim hópi sem varð
undir f kosningunni. Jón H.
Jónsson sem hafði nýlega
ákveðið að hætta og fengið við
þau tímamót myndarlegan
starfslokasamning kom mörg-
Bragi Pálsson, nýr stjórnarformaöur
Keflavíkurverktaka var á hressingargöngu um síðustu
helgi. Hans og nýrrar stjórnar bíður nú stórt verkefni;
að stýra sameinuðum Kefiavíkurverktökum ht. sem
eru þriðja stærsta verktakafyrirtæki landsins.
Jón H. Jónsson sem
hafði nýiega ákveðið
að hætta og fengið
við þau tímamót
myndarlegan starfs-
lokasamning kom
mörgum á óvart
þegar hann ákvað að
bjóða sig fram til
stjórnarformanns
í nýju fyrirtæki.
um á óvart þegar hann ákvað að
bjóða sig fram til stjómarfor-
manns í nýju fyrirtæki.
Bragi sagðist í samtali við helg-
arblaðið ekki vilja koma í við-
tal vegna þessara stóru tíma-
móta 1 atvinnusögu Suðumesja.
„Keflavíkurverktakar hafa
reynt að forðast fjölmiðla í
gegnum tíðina og ég ætla ekki
að byrja á þvf að breyta því.
Þetta er heldur ekki rétti tíminn
til að fara ræða mörg mál sem
engin ákvörðun hefur verið
tekin um“.
Nú eru mjög margir Suður-
nesjamenn sem tengjast fyrír-
tœkinu þar á rneðal tœplega
200 hluthafar, fjölskyldur
þeirra sem og starfsmenn.
Finnst þér ekki rétt að rœða
við fjölmiðla um álierslur hjá
nýrri stjórn í nýju fyrirtœki?
„Ný stjóm er bara búin að hitt-
ast einu sinni. Það verða engar
kollsteypur til að byrja með þó
svo Ijóst sé að skoða þarf ýmis
mál“.
Meðal breytinga sem heyrst
hefur um er lagermál og launa-
mál á skrifstofu. Þetta verði
meðal fyrstu mála sem tekið
verði á. Það hefur ekki dulist
mörgum starfsmönnum, ann-
arra en þeirra sem eru á skrif-
stofunni, að launakostnaður þar
hefur þótt mjög hár. Samkvæmt
heimildum blaðsins verða
launamálin tekin til skoðunar
„án þess þó að menn verði settir
á einhver hungurlaun“.
í umræðu um íyrirtækið á þess-
um tímamótum þykir mörgum
skrýtið að menn sem hafa verið
lengi tendir fyrirtækinu, jafnvel
frá upphafi og margir komnir á
sjötugsaldur eða yfir það séu
kosnir í stjóm í fyrirtæki sem er
að ganga inn í nýja öld.
Einokun á vinnu fyrir banda-
ríska herinn er að ljúka. Nú þarf
að hafa fyrir hlutunum á
„útboðsöld“. Því hafi það
komið á óvart að enginn „spút-
nikk" hafi átt að vera í fyrstu
stjórn sameinaðra verktaka.
Svarið við því er reyndar aug-
ljóst. Stærstu hluthafamir vildu
vera í henni og ónefndur hlut-
hafi sagði að breyting gæti orð-
ið strax í næstu stjóm. Þelta sé
aðeins byrjunin og eðlilegt sé
að stærstu hluthafarnir séu í
fyrstu stjóminni.
Suðumesjamenn binda miklar
vonir við „nýja“ Keflavíkur-
verktaka enda eiga margir allt
sitt undir þeim, góð laun og
trygga atvinnu. Það er spuming
hvort þessi tvö atriði verði jafn
áþreifanleg í náinni framtíð og
þau hafa verið. Vonandi mun
það þó verða.