Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 05.11.1999, Síða 2

Víkurfréttir - 05.11.1999, Síða 2
LESENDALEIKUR VF TíuMan.Utd. bækur! 1 helgarblaðinu er að finna getraunaleik lengdan nýútkom- inni bók um sögu cnska knatt- spyrnustórveldisins Man. Utd. Tíu bækur eru í verðlaun fyrir jafn marga heppna lesendur blaðsins sem senda okkur rctta lausn við einni léttri spumingu. Bókaútgáfan Hólar á Akureyri gefur bókina út. Rauðu djöllamir - saga Manchester United, Ijallar um jtetta merka knattspymufélag, alll frá stofnun þess 1878 til 1999. Margt hefur á daga Man. Utd. dri- fið. Saga þess er hvort tveggja í senn, sveipuð sorg og sigrurn hlaðin. Bókin er 150 blaðsíður, skreytt með ljölda mynda. Leikfélag Keflavíkur: Leikfélag Keflavíkur frum- sýndi leikritið Oliver þann 30.október s.l. Leikarar stóðu sig með afbrigðum vel og gaman var að fylgjast með krökkunum sem voru mörg hver að stíga sín fyrstu skref á fjölunum. Ljósmyndari Helgarblaðs Víkurfrétta var á frumsýningunni og festi á filmu fagnaðarlæti í lokin og nokkra skrautlega karaktera úr sýningunn sem er mjög lífleg og skemmtileg og Éin- ar Orn, tónlistarstjóri, og Þröstur Guðbjartsson, leik- stjóri, eiga heiður skilinn fyr- ir einstaklega góða framsetn- ingu. Það var gaman að sjá og heyra hvað þeim hefur tekist að virkja þennan leik- hóp vel og augljóst að Reyknesbæingar geta státað af mörgu hæfileikafólki á þessu sviði. Næstu sýningar leikfélagsins eru sunnudaginn 7.nóv. kl.17:00 og á fimmtudaginn ll.nóv. kl. 20:00. Sýningar eru í Frumleikhúsinu Vestur- braut 17 og sími í miðasölu er 421-2540. Gleði á Oliver Twist 50 lesendur fá frítt í bíó Nýja bíó í Keflavík býður fímmtíu snöggum lesendum Helgarblaðs Víkurfrétta ókeypis í bíó á myndina „BLUE STREÁK“ en hún verður frumsýnd í kvöld, fóstudagskvöldið 5. nóvember. Fimmtíu fyrstu sem mæta með úrklippu úr blaðinu fá afhentan bíómiða sem þeir geta notað á þessa mynd en miðinn gildir til næsta föstudags, eða í eina viku. Hér er á ferðinni gamansöm hasarmynd með einum geggjaðasta gamanleikara samtímans, Martin Lawrence en hann fór hreinlega á kostum í „Bad boys“ og „Notting to loose“. Fyrir þá sem unna vel gamansömum hasarmyndum á borð við „Rush hour“, „Lethal weapon“, „48 hours“, ættu ekki að vera fyrir von- brigðum með „Blue streak". Myndin hefur að geyma frá áhættu og gamana- triði.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.