Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 8
HELGARBLAÐ VF
dagur
í LÍFI SUÐURNESJAMANNS
LEIKIÐ FYRIR
DISCOVERY
CHANNEL
Fimmtudagurinn 7. olctóber 1999
Hjálmar Árnason í myndatöku með
Ólafi bónda á Þorvaldseyri fyrir sjón-
varpsþátt Discovery Channel.
Miskunnarleysi klukkunnar
algjört enda hún aðeins 5 að
morgni. Engar refjar á fætur.
Nóg þótti mér um þegar
Skúli vinur minn Skúlason
vélaði mig í líkamsræktina
upp úr sex á morgnana en
var ekki fult snemmt að
vakna klukkan fimm?
Skyldan kallar. Ekki á hverj-
um degi sem Discovery
Channel kemur til Islands.
Tilefnið var það að í tímarit-
inu New Scientist hafði verið
tekið viðtal við okkur Jón
Björn Skúlason (fyrrum
MOA mann og Suðurnesja)
um vetnisvæðinguna á Is-
landi. Þáttastjórnendur á
Discovery rákust á þetta og
ákváðu að taka þetta atriði
inn í þáttaröð sína um fram-
farir í upphafi næstu atdar.
Um er að ræða þáttasyrpu sem
sýnd verður á Discovery
Channel um mitt næsta ár og
eru valin um 30 verkefni úr
heiminum öllum þar á meðal
vetnisvæðing íslands. Þess
vegna vorum við Jón Bjöm að
rífa okkur upp snemma á þess-
um myrka morgni.
Fyrsta hálkan
Brautin óvenju fáfarin svona í
bítið enda flugumferðin ekki
byrjuð og vallarstarfsmennimir
enn sofandi en Jón Bjöm vakn-
aður. Tók hann upp í Hafn-
arfírði og sóttum síðan stjóm-
andann, hana Annamarie í
Reykjavík. Mæltum okkur svo
mót í Artúnsbrekkunni við
kvikmyndatökuliðið. Það vom
hressir strákar frá Saga Film
m.a. sonur Magga Kjartans en
Discovery leigði tæki og tól frá
Saga Film fyrir litlar 60 þúsund
krónur á tímann.
Brunuðum austur til að ná
dagrenningunni og á Hellis-
heiðinni urðum við vör við
fyrstu vetrarhálkuna þegar
bíllinn tók örlítið að dansa,
hinum ágæta stjórnanda til
mikillar skelfingar. I fyrstu
upptökunni vildi Annamarie fá
að sýna Islendinginn úti í nátt-
úrunni en hún hafði einhvern
veginn þefað uppi að undirrit-
aður væri áhugamaður um
laxveiði. Völdum við því
merkan stað, Ægissíðufoss í
Ytri-Rangá. Þar óðum við Jón
Bjöm út með fínar flugustangir
og tókum tilþrif með glæsi-
legum köstum. I baksýn var
Ægissíðufossinn kraftmikill og
tignarlegur en tökuliðið á
árbakkanum. Þegar við óðum
aftur í land var Annamarie
klökk. Tignarleiki fossins og
rauðgylltur himinn í bakgmnni
gerðu hana orðlausa.
Beljufret á bíla
Ur fossinum brunuðum við
austur undir Eyjafjöll að
bænum Þorvaldseyri sem er
framsýnasta býli á Islandi. Þar
hefur Ólafur bóndi Eggertsson
komið sér upp einkarafveitu og
einkahitaveitu sem hann nýtir
til að þurrka sitt eigið korn,
rækta vínber og epli en komið
gefur hann kúnum. Ólafur er
maður framsýnn og á sér þann
draum að nýta hitaveituna enn
frekar til að hita beljuskítinn og
framleiða þannig metangas
sem hann getur nýtt á trakt-
orinn. Þetta er líklega einsdæmi
í veröldinni um sjálfsþurft-
arbúskap enda Annamarie hin
ungverska hrifin mjög.
Um hádegið vomm við komin
að Geysi. Hann bregst aldrei og
var drjúgum tíma varið í að
mynda bóluna úr Strokki þegar
hún springur og
undirritaður látinn
segja einhver orð
inni í reyknum.
Ekki minnkaði
h r i f n i n g
Annamarie en
nú skund-
uðum við á
bílunum báðum
til Suðumesja.
Klofvega milli
Ameríku og Evrópu
Eftir ábendingu Jóa D. hjá
MOA fórum við að góðri gjá
við veginn vestan Grindavíkur
(rétt hjá gamla íslandslaxi) þar
sem hægt var að benda á
flekakenninguna að störfum og
vildi Annamarie mynda Jón
Bjöm klofvega á milli Ameríku
og Evrópu með sprunguna á
milli sín. En það er einmitt
þessi flekakenning sem orka
Islendinga á að byggja á. Ekki
dró úr undran Annamarie.
Síðasti viðkomustaður þennan
dag var sjálft Bláa lónið. Enn
varð Annamarie dolfallin og
kom ekki annað til greina en
láta aðalviðtal við okkur Jón
Bjöm fara fram úti á einni af
bryggjunum. Með góðri aðstoð
John Spencer, vaktstjóra, var
slökkt á dælunum svo Saga
Film liðið gæti filmað og
hljóðsett undir hnitmiðaðri
stjórn hinnar röggsömu
Annamarie. Ekki var laust við
pínulítið stolt okkar Jóns
Bjöms yfir hrifningu gestsins,
hrifningu yfir blámanum,
reyknum, hrauninu, fjöllunum
og íslenska hugvitinu í mann-
virkjunum. Ekki slæm land-
kynning.
100 milljón áhorfendur
Tökurnar höfðu byrjað
deginum áður og fóm einkum
fram í þinghúsinu og
umhverfis það. I
framhaldinu
kvaðst Anna-
marie mundu
klippa til þátt-
inn og þumal-
fingurreglan
væri sú að fyrir
hverja sýnda
mínútu færu 3
klukkustundir í
klippingu. Þarna er
greinilega ekkert til sparað
enda eins gott þegar 100
milljón áhorfendur skoða. Ég
kvaddi Annamarie við Bláa
lónið en Jón Björn skutlaði
henni inneftir. Glöggt er gests
augað og þó nú væri farið að
líða á kvöldið var ekki laust við
að þreytan viki fyrir ánægjunni,
ánægju með að finna innilega
gleði gestsins yfir náttúru-
fegurð og möguleikum okkar
Islendinga til að nýta vistvæna
orku okkar. Var Annamarie
þegar byrjuð að skipuleggja
sumarleyfið með fjölskyldu
sinni í þessu undurfagra landi
sem kom henni stöðugt á óvart.
Ekki þótti mér verra að áhugi
hennar á Njálu var vakinn.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.
: