Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 19
Framan við herstöðina Roosevelt Roads á Púrtó Ríkó. Lára ásamt mágkonu sinni Lovella og dóttur hennar. ir var að vinna með konunni hans Elí, og fór að segja henni frá mér. Oli fór svo með mig niður á Kaffi Iðnó og Elí réði mig á staðnum. Viku síðar var ég farin að vinna á Skothúsinu sem yfirbarþjónn.” Sjokk að koma aftur til íslands „Það var eitt sjokkið í viðbót að koma til Islands. Eg var búin að mikla þetta svo fyrir mér, öll þessi ár. Maður ímyndaði sér furðulegustu hluti, norðurljósin, blá fjöllin og eitthvað svoleiðis. Svo kent ég heim og þá bara datt ég á rassgatið. Allt svo dýrt en samt æðislegt að vera heima, fjölskyldan er hér en ég veit ég á ekki eftir að vera hér allt mitt líf. Eg fer út í vor og þá kem ég ekkert aftur. Eg veit ekki ennþá hvert við flytjum næst. Amma sagði einu sinni við mig, þú valdir þetta og skalt bara taka því og það er nákvæmlega það sem ég ætla mér að gera.” myndi samt ekki vilja lenda í þeim. Ef mamma ætlar að skreppa til mín í kaffi þá þarf ég að hringja í lögregluna og láta hana vita. Eg var soldinn tíma að sætta mig við þetta, og stundum gleymi ég að hringja og láta vita og þá verð- ur allt vitlaust. Maður er ekki sáttur við að lifa svona en maður lætur sig hafa það.” Skilnaðir mjög algengir hjá hermönnum „Það er mjög mikið um skilnaði hjá hermannahjónum. Amerískar konur meika þetta ekki, þær geta ekki farið að heiman og búið í öðmm fylkj- um, þær fá svo mikla heimþrá. Þegar Les var á herskipinu þá vom 8 manns í hans deild og allir giftir. Aðeins tvenn hjón skildu ekki af þessum átta. Amerískar konur eru svo ósjálfstæðar, þegar útlending- urinn er að tóra þá eru þær bara að pakka niður og fara heim. Hringja bara í karlana og senda þeim svo skilnaðar- pappírana.” og ófeimin og það hefur bjarg- að mér. Sumir eru lokaðir og eignast enga vini. Maður þarf bara að bera sig eftir björg- inni.” Ætlar að opna snyrtistofu í Bandaríkjunum „Eg er að læra förðun og er að fara að læra að gera gervi- neglur. Les kom heim með litla bók handa mér uni daginn um hvemig eigi að opna fyrir- tæki í Ameríku. Eg vil vera minn eiginn herra og koma strákunum í gegnum háskóla. Við förum líklega aftur til Bandaríkjanna í vor. Les er búinn að vera 18 ár í hemum og af þeim tíma 9 ár á sjó, svo hann verður örugglega ekki sendur aftur á sjóinn. Hann lýkur herskyldu árið 2002. Vonandi setjumst við bara ein- hvers staðar að, helst nálægt ströndinni. Framtíðin lítur bara vel út, ég hef alltaf verið bjartsýn. Eg held það sé það sem bjargi manni.” „...Svo kem ég heim og þá bara datt ég á rassgatið. Allt svo dýrt en samt æðislegt að vera heima, fjölskyldan er hér en ég veit ég á ekki eftir að vera hér allt mitt líf. Ég fer út í vor og þá kem ég ekkert aftur...“ Ekki gaman að búa á Vellinum „Það er rosalega erfitt að vera hermannskona. Þetta hef- ur gengið upp og niður, sér- staklega þegar Les var alltaf á sjónum. Herinn á mann. Ef ég t.d. brýt af mér þá bitnar það á honum. Ef hann gerir eitthvað af sér þá bitnar það á fjöl- skyldunni, kaupið tekið af honum eða lækkaður í tign. Maður er alltaf undir smásjá, sérstaklega hérna á íslandi. Við búum uppá Velli, sem er ekkert gaman. I raun og veru er maður alltaf undir eftirliti lögreglunnar. Þegar fólk kem- ur í heimsókn til ntanns þá kemst það ekki nema að fara í gegnum hliðið. Eg hef samt verið heppinn, strákarnir í hliðinu héma hafa aldrei verið leiðinlegir við mig en ég Rígur á meðal eiginkvennanna „Sumar eiginkonumar halda að þær séu í hernum og séu jafnháttsettar og karlarnir þeirra. Ég læt þær bara heyra það að við séu allar jafningjar. Ég er alltaf að rífa kjaft og læt þær bara á sinn stall. Ef þær fíla það ekki þá bara gera þær það ekki.” Erfitt að mynda vináttubönd „Það er undir rnanni sjálfum komið hvort maður eignist vini á herstöðvunum. Ég eign- aðist amerískar vinkonur en mikið af þessu fjölskyldum vill ekki vera tengt einhverjum því fólkið vill ekki þurfa að gráta í hvert skipti sem það flytur. Ég er bara ég sjálf, opin

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.