Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 22
Suðumesjafólk í sveitasælunniJ E «ður á alvöoi hestabugarði’- Bræðurnir, Rúnar og Gunn- ar Sigtryggssynir, höfðu lengi alið með sér þann draum að eignast hestabúgarð. Þeir voru búnir að leita lengi að jörð þegar þeir duttu niður á draumajörðina mitt á milli Selfoss og Hveragerðis. Nú búa þeir tveir að Kvíarhóli, Ölfusi og reka þar gistiheim- ili, eru með hestaleigu, reiðnámskeið og hestarækt. „Við fluttum hingað vegna hestamennskunnar sumarið 1997. Þetta er 100 hektara ríkisjörð og við erum með hana á leigu. Það er draumi líkast að fá að búa svona í sveitinni. Við áttum í kringum tuttugu hesta, sem voru tvist og bast út um landið. Okkur langaði alltaf að hafa þá alla á einum stað og hefja fyrir alvöru hrossarækt. Við vildum vinna við ræktun og tamningu hesta. Við erum búnir að vera í hrossarækt í mörg ár“. Vildu breyta til Rúnar og Gunnar voru ríkis- starfsmenn þegar þeir fluttu upp í sveit. Rúnar var toll- vörður í Leifsstöð og Gunnar lögregluþjónn. Rúnar hefur haft áhuga á hestum síðan hann var sjö ára. „I gamla daga var maður að sniglast í kringum hesthúsin við frystihúsið Jökul, með Guðmundi heitnum Elíssyni og Olafi Inga heitnum eða Ola punkti, eins og hann var kall- aður og bróður hans Rabba. Ég var einn af stofnendum hesta- GUNNAR OG UPPÁHALDS HESTURINN, LÝSINGUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.