Víkurfréttir - 05.11.1999, Qupperneq 22
Suðumesjafólk í sveitasælunniJ
E «ður á alvöoi
hestabugarði’-
Bræðurnir, Rúnar og Gunn-
ar Sigtryggssynir, höfðu lengi
alið með sér þann draum að
eignast hestabúgarð. Þeir
voru búnir að leita lengi að
jörð þegar þeir duttu niður á
draumajörðina mitt á milli
Selfoss og Hveragerðis. Nú
búa þeir tveir að Kvíarhóli,
Ölfusi og reka þar gistiheim-
ili, eru með hestaleigu,
reiðnámskeið og hestarækt.
„Við fluttum hingað vegna
hestamennskunnar sumarið
1997. Þetta er 100 hektara
ríkisjörð og við erum með hana
á leigu. Það er draumi líkast að
fá að búa svona í sveitinni. Við
áttum í kringum tuttugu hesta,
sem voru tvist og bast út um
landið. Okkur langaði alltaf að
hafa þá alla á einum stað og
hefja fyrir alvöru hrossarækt.
Við vildum vinna við ræktun
og tamningu hesta. Við erum
búnir að vera í hrossarækt í
mörg ár“.
Vildu breyta til
Rúnar og Gunnar voru ríkis-
starfsmenn þegar þeir fluttu
upp í sveit. Rúnar var toll-
vörður í Leifsstöð og Gunnar
lögregluþjónn. Rúnar hefur
haft áhuga á hestum síðan hann
var sjö ára.
„I gamla daga var maður að
sniglast í kringum hesthúsin
við frystihúsið Jökul, með
Guðmundi heitnum Elíssyni og
Olafi Inga heitnum eða Ola
punkti, eins og hann var kall-
aður og bróður hans Rabba. Ég
var einn af stofnendum hesta-
GUNNAR OG UPPÁHALDS
HESTURINN, LÝSINGUR