Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 05.11.1999, Page 27

Víkurfréttir - 05.11.1999, Page 27
Aí.iau.ur úií Reykjanesbær tapaði fyrir Lugano frá Sviss 72-78 Evrópudraumur ÍRB rann út í sandinn í íþróttahúsinu í Keflavík síðastamiðvikudag er liðið tapaði fyrir Lugano frá Sviss 72-78. Leikurinn var slakur þó ein- staka leikmenn sýndu ágætis takta. Svisslendingar spiluðu fasta vöm og höfðu yfirburði í líkamlegum styrk og án nokk- urs stuðnings áhorfenda, sem vom ótrúlega fáir, náðu þreyttir leikmenn ÍRB ekki neinum neista. Það var aðeins á loka- sekúndunum að tókst að ná spennu í leikinn en það reynd- ist of lítið, of seint. Gunnar Einarsson (23 stig, 7 þriggja stiga), Chianti Roberts (13 frá- köst, 6 stoðsend), Friðrik Stef- ánsson(13 fráköst, 3 varin skot) og Örlygur Sturluson (18 stig, 6 fráköst) voru bestir okkar manna en aðrir voru slakir ásamt dómurum leiksins, sem hreinlega voru úti á þekju lang- tímum saman í seinni hálfleik. Leikstjórnandavandi hjá ÍRB Af liðsuppstillingu virtist sem þjálfarar liðsins væm búnir að gefast upp fyrirfram því leik- stjórnendurnir og landsliðs- mennirnir Hjörtur Harðarson og Friðrik Ragnarsson voru báðir hvíldir og í þeirra stað valdir Örlygur Sturluson og El- entínus Margeirsson, landsliðs- menn út og nýliðar í alþjóða- keppni inn. Piltamir stóðu vel fyrir sínu þótt byrjendamistök- in hafi verið mörg. sérstaklega í sendingunum. Örlygur átti vissulega inni að fá möguleika með IRB en það er vafasöm ákvörðun að hvíla bæði Hjört og Friðrik á sama tíma. Sóknin brást Sigurður Ingimundarson.annar tveggja þjálfaraliðsins sagði að nokkrir afar slakir kaflar hefðu gert út um vonir liðsins um að sigra. Við höfum ekki leikið nógu góðan sóknarleik síðan í leiknum við Lonon Leopards. Þegar skytturnar okkar fóru loks í gang í lokin þá fóm hlu- timir að snúast okkur í hag. Finnst þér Evrópukeppnin hafa komið niður á keppninni hér heima? „Því er ekki að neita að slíkt hefur gerst en það vissum við. Þetta er ævintýri sem við emm að taka þátt í, í fyrsta skipti í sögu þessara félaga sem þetta er gert. Við höfum lært ntikið og sjáum ekki eftir að hafa gert þetta“, sagði Sigurður. 31 STIG í Big Apple Classic Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson heldur áfram að gera það gott í New York. Lið hans sigraði í 3 leikjum af fjórum í Big Apple Classic mótinu en í mótinu keppa mörg sterk lið frá New York og fylkjunum þar í kring. Hitinn í Loga hefur ekkert minnkað frá fyrri fréttum og var hann með 31 stig að með- altali í mótinu. Sendið úrklippuna hér að neðan til Víkurfrátta, Grundarvegi 23, 260 Njarðvík. Dregið verður úr ráttum svörum. Tíu heppnir lesendur frá nýju bókina: Rauðu djöfiarnir-Saga Man.Utd. 1878-1999. Hvað heitir aðalmarkvörðurinn sem lék með Man. Utd. þegar liðið varð meistari vorið 1999 en hætti síðan með liðinu? svar: Nafn: Tíu Man.Utd. bækur í boði! » L J

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.