Víkurfréttir - 05.11.1999, Side 32
Úruffff*effa
VI ■■
FRÉTTIR
dýrtl
KASKO
Leikur með liðinu þangað til
staðgengill kemur Banda-
ríkjamaðurinn í liði Njarð-
víkinga, Jason Hoover, hefur
beðist iausnar undan
samningi sínum við félagið.
Að sögn Friðrik Rúnars-
sonar, þjálfara Njarðvíkinga,
fann Hoover sig ekki hér-
lendis. “Hann var ekki sáttur
við frammistöðu sína hjá
félaginu og sagði hjarta sitt
ekki vera í boltanum. Mér
skilst að hann sé að huga að
frekara námi á heimaslóðum.
Hann óskaði eftir því að fá að
leika með liðinu þangað til
staðgengill fengist og sætt-
umst við á að svo yrði.
Við erum að skoða nokkra
menn og ættum að komast að
niðurstöðu um helgina.
Vonandi er að við verðum
heppnir að þessu sinni.
Sportbarinn og nektardansstaðurinn Club
Casino opna í kvöld klukkan 22. Jón M. Harð-
arson segir að stúlkumar komi til landsins í dag
og fari nánast beint úr flugvélinni og í vinnuna.
Nektardansaramir koma alls staðar að, flestar
koma frá Evrópulöndum. Staðurinn verður op-
inn alla helgina og áfengi selt til kl. eitt eftir
miðnætti.
Kísilduftverksmiðja á Reykjanesi:
35 NÝ STÖRF
Promeks ASA hefur sótt um
lóð á Reykjanesi fyrir tilrauna-
verksmiðju sem á að framleiða
kísilduft. Islenskir aðilar eiga
stóran hlut í Promeks sem er
vaxandi fyrirtæki á sviði iðnað-
ar. Ef vel gengur með rekstur
tilraunaverksmiðjunnar er ætl-
unin að reisa stóra verksmiðju
sem á að framleiða 20.000 tonn
af kísildufti á ári. Gert er ráð
fyrir að ársvelta, eftir stækkun,
verði um 23 milljónir banda-
rrkjadala og starfsmenn verði
um 35 talsins.
Nánar er fjallað um málið í
blaðinu í dag!
MUNDI
Stongin inn
hjá Jóni Haröar!
• BEINT SAMBAND VIÐ FRÉTTAMENN ALLAN SÓLARHRINGINN í SÍMA 898 2222 •