Víkurfréttir - 03.02.2000, Page 23
Spurning dagsins:
Spurt í Valdimari hf. í Vogum
Hefur þú farið á þorrablót?
Símon Rafnsson:
Ég fór á einkaþorrablót á laugar-
daginn var og það var alveg
svakalega gaman. Ég borða allan
þorramat en er lítið íyrir súrmat.
Einar Birgisson:
Ég fór á þorrablót fyrir viku síð-
an hjá Kvenfélaginu í Vogum.
Hangikjöt og hákarl eru í uppá-
haldi hjá mér.
Þóranna Þórarinsdóttir:
Ég hef ekki farið á þorrablót og
veit ekki hvort ég fari nokkuð.
Ég er ekki hriftn af súrmeti og
hákarli en borða allt þetta venju-
lega.
Ragnheiður Ásdís
Gunnarsdóttir:
Ég fór á þorrablót Kvenfélagsins
og það var mjög gaman. Ég
borða ekki súrmat og hákarl en
ég get borðað allt hitt.
Árni Klemenz Magnússon:
Ég fór á þorrablót Kvenfélagsins
og það var alveg giimrandi gam-
an. Sviðasultan er uppáhalds-
þorramaturinn minn er súrmatur-
inn er alveg ónýtur.
Nafn: Magnús Þórisson
Fædd/-ur hvar og hvenær: 4. júní 1970 í Reykjavík
Stjörnumerki: Tvíburar
Atvinna: Kokkur
Laun: Misjöfn
Maki: Ólafía Marelsdóttir
Börn: Ragnheiður Eir og Markús Már
Bifreið: Galant
Besti bíli: Transporterinn þegar ég er í góðu skapi
Versti bíll: Transporterinn þegar ég er í vondu skapi
Uppáhaldsþorramatur: Súrmaturinn frá Matarlyst
Versti þorramatur: Illa sýrður súrmatur
Besti drykkur: Ég ætla að vera þjóðlegur og segja frosið
brennivín með hákarli
Skemmtilegast við þorrann: Hvað þorrablótin eru vinsæl hjá
unga fólkinu
Leiðinlegast við þorrann: Veðurfarið sem getur oft verið
leiðinlegt
Gæludýr: Gullfiskamir í eldisbúrinu okkar í Matarlyst
Skemmtilegast í vinnunni: Þegar nóg er að gera, eins og
núna á þorra.
Leiðinlegast í vinnunni: Þegar ég er seinn með hádegismat-
inn (gerist örsjaldan)
Hvað kanntu best að meta í fari fólks: Jákvæðni, dugnað og
tillitssemi
En verst: Tillitssleysi og óheiðarleika
Draumastaðurinn: Nýja Matarlystarhúsið
Uppáhalds líkamshluti á konunt/körlum: Brjóstin
Fallegasta kona/karl fyrir utan maka: Ég hef ekki komið
auga á hana ennþá
Spólan í tækinu: Ávaxtakarfan
Bókin á náttborðinu: Vaskur fer á flakk
Uppáhalds hlað/tímarit: Víkurfréttir
Besti stjórnmálamaðurinn: Össur þegar hann er í bullskapi
(semsagt alltaf)
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Eldhús sannleikans (ha, ha, ha)
Iþróttafélag: Fóboltafélagið Gormamir úr Grænuhlíð
Uppáhaldskemmtistaður: Nýja Reykjaneshöllin er skemmti-
legasti staður sem ég hef farið á nýlega.
Þægilegustu fótin: Kokkagallinn
Framtíðaráform: Byggja upp vinalegan og hlýjan stað fyrir
íbúa Suðumesja
Spakmæli: Leggðu hjartað í eidamennskuna, þá átt þú eftir að
gleðja mörg hjörtu.
Nafn: Rúnar Már Smárason
Fædd/-ur hvar og hvenær: 26. júní 1971 áAkureyri
Stjörnumerki: Krabbi
Atvinna: Matreiðslumaður
Laun: Samkvæmt samningum matvís
Maki: Guðbjörg Eva Halldórsdóttir
Böra: Tinna Rún
Bifreið: Volkswagen Caddy
Besti bfll: Hef ekki pmfað hann
Versti bðl: Fiat Polones
Uppáhaldsþorramatur: Hákarl
Versti þorramatur: Súrar gúrkur
Besti drykkur: Það sem við á hverju sinni
Skemmtilegast við þorrann: Svipurinn á fólki þegar það
smakkar „karlinn"
Leiðinlegast við þorrann: Pottréttir á þorrablóti
Gæludýr: Fiskar
Skemmtilegast í vinnunni: Matartíminn
Leiðinlegast í vinnunni: Þegar illa gengur
Hvað kanntu best að meta í fari fólks: Heiðarleiki
En verst: Óheiðarleiki
Draumastaðurinn: Ítaiía
Uppáhalds líkamshluti á konum/körlum: Allir
Fallegasta kona/karl fyrir utan maka: Gelltm í American
Pie
Spólan í tækinu: Analyze This
Bókin á náttborðinu: Wite Heat (Marco Pierre Wite)
Uppáhalds blað/tímarit: Mogginn
Besti stjórnmálamaðurinn: Dabbi tæklari
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Vinir
íþróttafélag: IA, IBK og Njarðvík
Uppáhaldskemmtistaður: Sjallinn á Akureyri
Þægilegustu fotin: Náttfötin
Framtíðaráform: Vinna fyrir fríið
Spakmæli: Það er engum að treysta,
ekki einu sinni sjálfum sér.
2
D
5
2
2
u
£
Súrar flárwir
vöndur þorrainafep