Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Fiðringurinn fyrir EM er farinn að gera vart við sig. Nú eru bara örfáirdagar í að keppnin hefjist í Frakklandi og þúsundir Íslendinga ætla aðgera sér ferð þangað til að berja strákana okkar augum. Afrek íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er strax farið að vekja athygli. Íslendingar sem búa í útlöndum kannast vel við það enda eru aðrar og stærri fótboltaþjóðir forvitnar um það hvernig þessari litlu þjóð tekst að komast á stórmót. Sem fótboltamamma er mér umhugað um fyrirmyndir. Hluti af því að vera í landsliði er að koma fram fyrir hönd þjóðar sinnar, bæði fullorðinna og barna. Fótbolti er vinsæl íþrótt á Íslandi, bæði hjá stelpum og strákum. Þessir krakkar þurfa hetjur, aðrar en bara mömmu og pabba. Það er því nærtækt fyrir þau að horfa til landsliðsins, sem nú á næstu vikum mun vera afar áber- andi í fjölmiðlum. Enginn er fullkominn og við meg- um aldrei setja þá pressu á strákana okkar að þeir geri allt rétt og stígi hvergi feilspor. Þetta er líka lær- dómsför og af mistökunum lærum við eins og þekkt er. En við getum gert þá kröfu að þeir hafi það í huga hversu mörg lítil uppglennt augu stara á þá alla leið. Krakkarnir munu sitja límdir við skjáinn ekki síður en fullorðna fólkið, og mörg eru meira að segja sjálf á leiðinni með fjölskyldum sínum á EM í Frakklandi. Framkoma íslenska karlalandsliðsins gagnvart þessum hópi – krökkunum sem horfa á þá með glampa í augum – skiptir ekki síður máli en frammi- staðan á vellinum. Það er afrek út af fyrir sig að komast á EM í Frakklandi, þótt auðvitað væri gaman að vinna leiki. En þetta afrek leiðir jafnframt af sér einstakt tækifæri til að sýna ungum fótboltaaðdáendum hvað íþróttamanns- leg hegðun þýðir. Íslenska liðinu verður líkt og öðrum liðum á mótinu fylgt hvert fótmál. Og þá skiptir máli hvar er stigið niður. Vonandi verða strák- arnir til sóma og hljóta ekkert nema aðdáun fótboltakrakka og foreldra þeirra. Krakkarnir horfa á EM með öðrum hætti en fullorðna fólkið og það þarf að virða þau sem áhorfendur líka. Morgunblaðið/Eggert Hetjuhlutverkið má ekki gleymast Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Við megum aldrei setjaþá pressu á strákanaokkar að þeir geri allt rétt ogstígi hvergi feilspor. En við getum gert þá kröfu að þeir hafi það í huga hversu mörg lítil uppglennt augu stara á þá alla leið. Ágústa Kristín Bjarnadóttir Já, auðvitað. Ég ætla að fylgjast með leikjunum heima og á Ítalíu. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að fylgjast með EM? Sævar Garðarsson Ég fylgist bara með með öðru aug- anu. Atli Ingibjargar Gíslason Já, ég ætla að fylgjast með heima í Grímsnesi. Margrét Finnbogadóttir Já, ég fer til Frakklands og fer á alla þrjá leikina til þess að styðja bróður minn, Alfreð Finnbogason. Ég fer samt heim fyrir úrslitin. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/Eggert SIGURBJARTUR STURLA ATLASON SITUR FYRIR SVÖRUM Forsíðumyndina tók Ófeigur Rapparinn Sturla Atlas er í hljómsveitinni 101 boys. Hún hefur nýverið gert myndband við lagið Vino af nýjustu mixtape-útgáfu sinni SEASON 2 sem kemur út í júní. Hljómsveitin mun spila á Secret Solstice og Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Af hverju kallið þið ykkur bæði 101 boys og Sturla Atlas? „Sturla Atlas er stytting á nafninu mínu og er jafn- framt tónlistarnafnið mitt. 101 boys er nafnið á hljómsveitinni þó svo að Sturla Atlas hafi kannski fest meira í fólki og því kallar það oft hljómsveitina því nafni.“ Hefur þú verið virkur í rappinu lengi? „Ég hef verið í þessu í eitt ár núna. Var í rapp- hljómsveitinni 101 Rapp þegar ég var 8 ára reyndar, en hún var ekkert gríðarlega langlíf.“ Í nýja myndbandinu ykkar sækið þið einhvern gaur á Litla-Hrauni, hver er það og af hverju? „Við erum að sækja Gumma vin okkar. Við erum að vinna með myndmál sem fólk verður bara að reyna að lesa út úr.“ Hver var tilgangurinn með vatnsflöskunni sem þið sýnduð á Hönnunarmars? „Við höfum verið að vinna með að stækka útgáfuna okkar, gefa sem sagt út tónlist, ásamt fötum og öðrum varningi. Þetta var liður í því.“ Hvað er framundan hjá hljómsveitinni? „Við erum nýbúin að gefa út þriðja mixtape-ið okkar, SEASON 2, og svo spilum við á tónleikum hér og þar í sumar, Secret Sol- stice og Þjóðhátíð í Eyjum meðal annars.“ Hvað gerir þú annað en að rappa? „Ég er að ljúka við leikaranám í Listaháskólanum núna í júní og svo er maður bara að gera hitt og þetta, er til dæmis að fara að mála nýju íbúðina hans pabba á eftir.“ Sturla Atlas rappar og málar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.