Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 22
HÖNNUN Hönnunarmiðstöð Íslands, sem hefur verið í Vonarstræti undanfarin sjö ár, hefurfært skrifstofur sínar í húsnæði hönnunardeildar Listaháskóla Íslands, Þverholti11. Aðstaðan er tímabundin á meðan Hönnunarmiðstöð leitar að varanlegum
heimkynnum.
Hönnunarmiðstöð kveður Vonarstræti
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016
Mig
langar í ...
... á vinnustofuna
Balloons-innsetninguna eftir Martin Creed væri gott að hafa og skella sér í í hádegishléinu.
Ég myndi þó alveg láta mér nægja falleg listaverk sem veita mér innblástur.
... á ganginn
langar mig í Tube-veggljósið eftir
Michael Anastassiades, sem er al-
gjört listaverk eitt og sér og myndi
gera mikið fyrir annars látlaust rými.
... í útópískri veröld
Mig hefur alltaf langað í svokallaðan „conversa-
tion pit“ með fullt af púðum, gólfteppi og arin
og því væri einn slíkur í þeim heimi. Veröldin
þyrfti þó ekki að vera svo útópísk og gæti orðið
að veruleika einn daginn þar sem ég er búin að
hanna og teikna viðbyggingu á húsið mitt með
einum slíkum. Það kemur þó ekki alveg strax en
það má láta sig dreyma.
Innanhússhönnuðurinn Sæbjörg Guðjónsdóttir, eða Sæja
eins og hún er gjarnan kölluð, rekur hönnunarstofuna S i
D. Hjá S i D vinnur Sæja verkefni tengd innanhússhönn-
un, upplifunarhönnun, sýningum og innsetningum fyrir
heimili og fyrirtæki. Sæja deildi óskum sínum inn á heim-
ilið með Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
... í svefnherbergið
Svefnherbergið hefur
setið svolítið á hakanum
og mig langar í margt þar.
Til dæmis væri ég til í nett
og falleg náttborð eins og
Mortimer-hliðarborðin
frá Draenert sem fást
hjá Módern, við djúsí
rúmföt.
... í stofuna
langar mig í fallegan stól og nýtt
sófaborð. Klassíski Bibendum-
stólinn eftir Eileen Grey í bláu flaueli kemur sterkur inn við
sett af þremur borðum úr portoro-marmara frá 1st dibs.
... í holið
Ég hannaði stálhillu með
tölvuaðstöðu fyrir kúnna
um daginn og féll sjálf fyrir
henni. Ég væri því til í eina
slíka og myndi raða fal-
legum bókum, myndum
og fylgihlutum í hana.
... í eldhúsið
Væri ég til í einkakokk. Það er hins vegar ekki í boði svo að
þangað til er ég í áskrift hjá Eldum rétt, það er alger snilld.
Getty Images/iStockphoto