Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016
Innan við vika er í fyrsta leik áEvrópumeistaramótinu í knatt-spyrnu, EM, þar sem gestgjaf-
arnir, Frakkar, mæta Rúmenum á
Stade de France í París. Leikurinn
fer fram þann 10. júní næstkomandi,
en aðeins fjórum dögum síðar,a þann
14. júní verður brotið blað í íslenski
knattspyrnusögu þegar karlalands-
liðið keppir í fyrsta sinn á stórmóti í
knattspyrnu. „Ætla má að þó nokkur
fjöldi fylgi landsliðinu til Frakklands
en þjóðin fer ekki öll og þeir sem
heima verða ættu ekki að verða fyrir
vonbrigðum því að besta stemmingin
verður hér á Íslandi,“ segir Þor-
steinn J., ritstjóri á EM 2016.
„Ingólfstorg og Gamla bíó verða
samkomustaðir þeirra sem vilja
koma og drekka í sig stemminguna,
en það kostar ekkert að horfa á leik-
ina á þessum stöðum. Það verða því
tveir staðir þar sem fólk getur komið
saman til að fylgjast með mótinu með
öðrum.“
Alltaf fótbolti klukkan sex
Þorsteinn J. er ekki ókunnugur því
að halda utan um stórviðburði og
segir mikilvægt að dagskráin í kring-
um leiki sé bæði skemmtileg og fróð-
leg fyrir og eftir leikinn.
„Mín reynsla hefur kennt mér að
margir hafa meira gaman af umfjöll-
uninni sem er bæði fyrir og eftir leik-
inn. Þess vegna er mikilvægt að búa
til dagskrá sem límir fólk við skjáinn.
Þetta er nefnilega ekki bara fótbolta-
mót, þetta er stórviðburður.“
Sparkspekingar og góðir gestir
verða Þorsteini J. því innan handar
og hjálpa honum að skapa þá um-
gjörð og stemmingu sem mun gera
upplifunina hér heima engu síðri en
þá sem finna má á vellinum úti.
„Þegar við heyrum einhvern tala
af ástríðu skiptir ekki máli hvort rætt
er um stjörnufræði eða fótbolta, það
verður bæði skemmtilegt og áhuga-
vert. Ég hef t.d. fengið Pétur Mar-
teinsson mér til halds og traust og
síðan lýsir enginn annar en Gummi
Ben leikjunum.“
EM-torgið í miðbænum
Ingólfstorg verður heimavöllur
landsliðsins í Reykjavík, en áform
eru um að leggja gervigras á torgið
og setja upp alls konar knattþrautir
og annað skemmtilegt fyrir þá sem
kjósa að horfa á leikinn á torginu.
Fyrirtækið Manhattan sér um alla
dagskrá á Ingólfstorgi í tengslum við
mótið fyrir Knattspyrnusamband Ís-
lands, í samstarfi við Símann, Lands-
bankann, Icelandair, N1, Vífilfell,
Borgun og Íslenskar getraunir.
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Manhattan, segir að
stórum skjá verði komið fyrir á torg-
inu og góðu hljóðkerfi. Það er því
enginn hætta á öðru en að góð
stemming myndist á torginu þegar
landsliðið spilar.
„Boðið verður upp á andlitsmáln-
ingu, alls konar knattþrautir fyrir
börnin og annað skemmtilegt. Þá er
fjöldi góðra veitingastaða allt í kring-
um torgið svo að enginn ætti að fara
svangur heim.“
Spurður hvort eingöngu verði sýnt
frá leikjum Íslands á Ingólfstorgi
segir Guðmundur að búið sé að
skipuleggja dagskrá fyrir fleiri leiki
og bendir m.a. á að sendiherrar
Þýskalands og Póllands muni hittast
á torginu og horfa á leik þjóða sinna
saman.
Tengir okkur öll frá
Petersen-svölunum
Hvort sem við fylgjum landsliðinu út
til Frakklands eða stöndum vaktina
hér heima er ljóst að Evrópumeist-
aramótið í knattspyrnu verður ein
stór veisla og nóg um að vera fyrir
alla. Það verður tilvalið að skella sér
á Ingólfstorg, eða EM-torgið eins og
það verður kallað, og horfa á leikinn í
góðum félagsskap við aðra aðdáend-
ur landsliðsins. Þeir sem vilja skjól
frá veðrinu, hvort sem það verður sól
eða rigning, geta horft á alla leiki
mótsins í Gamla bíói. Þorsteinn J. og
landslið sparkspekinga og lýsenda
munu halda uppi stemmingunni og
sýna frá því sem er að gerast í
Frakklandi og á Ingólfstorgi og
heimsækja fólk í EM-partí um allan
bæ.
„Við munum tengja þjóðina hvar
sem hún er frá Petersen-svölunum,
þar sem við erum núna að koma upp
glæsilegu myndveri. Þetta er stór-
viðburður sem við ætlum öll að taka
þátt í með einum og öðrum
hætti enda hugsa ég að það
sé ekki til sá Íslendingur
sem ekki ætlar að horfa á
fyrsta leik Íslands í
keppninni þegar við
mætum Portúgal.“
Íslenska landsliðið kom á Ingólfstorg
og tók hið heimsfræga klefafagn þegar
miðinn á EM var tryggður.
Morgunblaðið/Eggert
Evrópumeistaramótið í knattspyrnu er að hefjast og þó að margir fylgi landsliðinu til Frakklands er ljóst að ekki fer öll þjóðin. Þeir
sem heima verða þurfa þó ekki að örvænta því að búist er við einstakri stemmingu á Ingólfstorgi og í EM-partíum um allan bæ.
Nágrannaþjóðirnar Þýskaland
og Pólland mætast á Evrópu-
meistaramótinu í knatt-
spyrnu fimmtudag-
inn 16. júní og af
tilefni af því ætla
að sendiherrar
landanna tveggja að
hittast á Ingólfs-
torgi.
„Við í pólska sendiráðinu
hlökkum ekki bara til leiksins
heldur einnig tækifærisins að
njóta hans með vinum okkar
frá Þýskalandi og íslensku
þjóðinni. Ekki skemmir fyrir
að daginn eftir fagna Pólverjar
og Þjóðverjar 25 ára afmæli
vinasamnings milli þjóð-
anna, og Íslending-
ar halda sama dag
upp á þjóðhátíð-
ardaginn sinn,“
segir sendiherra
Póllands á Íslandi,
Lech Mastalerz.
Óháð úrslitum leiksins seg-
ist Mastalerz vonast til þess
að sem flestir láti sjá sig á
Ingólfstorgi og njóti þess að
horfa á leikinn í vinalegu um-
hverfi.
Sendiherrar mætast
á Ingólfstorgi
VÍB ætlar að hita upp fyrir
EM í Frakklandi með fundi
um fjármálahlið mótsins.
„Þetta verður létt og
skemmtilegt. Undanfarnar
vikur höfum við í VÍB tekið
saman fróðlegar upplýsingar
um fjármál mótsins. Margt
áhugavert má grafa upp, allt
frá samningi UEFA og Frakk-
lands um mótshaldið að
verðlaunafé og hlut-
fallslegum styrk
þátttökulandanna.
Allir eru vel-
komnir meðan
húsrúm leyfir,“
segir Björn
Berg Gunn-
arsson,
fræðslustjóri
VÍB.
Þjóðarleikvangurinn Stade de
France er glæsilegur.
Upphitum
fyrir EM
Björn Berg
Gunnarsson
’
Íslenska landsliðið spilar fyrsta leikinn á Evrópumeist-
aramótinu þriðjudaginn 14. júní og mætir þar Portúgölum.
Búast má við töluverðum fjölda á Ingólfstorgi eða EM-torginu eins
og það verður kallað meðan keppnin fer fram.
INNLENT
VILHJÁLMUR KJARTANSSON
vilhjalmur@mbl.is
Heimavöllurinn á Ingólfstorgi