Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 37
auðlindir eru af skornum skammti. Sumir kenna olí- unni jafnvel um, hún hafi tryggt valdhöfum yfirráð og gert þeim kleift að halda almenningi niðri. Þetta er ekki alveg úr lausu lofti gripið en skýrir ekki ástandið alls staðar, auk þess sem olíu má finna víðar án þess að þjóðirnar séu undirokaðar og framfarir skorti. Því er einnig kennt um að fyrir um einni öld hafi lín- ur sem ekki hafi verið miklar forsendur fyrir, verið dregnar á blað til að tákna ríki. Þannig hafi þjóðar- brot og trúarhópar endað í ýmsum ríkjum sem valdi togstreitu, átökum og þaðan af verra ástandi. Eins og með olíuna eru einhver rök fyrir þessu en á móti má spyrja, hvar hefði átt að draga línurnar? Var það yfir- leitt hægt svo að allir lentu með sínum líkum? Nei, því fer fjarri. Þar að auki eru víðar dæmi um ríki þar sem ólík þjóðarbrot og trúarhópar lifa í sátt og samlyndi. Hér var í upphafi minnst á Sviss í öðru samhengi. Það er prýðilegt dæmi. Vissulega getur þó tekið tíma fyrir ríki að slípast saman og verða ein heild. Bandaríkin fæddust ekki al- sköpuð svo dæmi sé tekið og þar voru heiftarleg inn- anlandsátök um tíma. Slík dæmi, þótt ólík séu eins og gjarnt er um dæmi, gefa von um að fyrir botni Mið- jarðarhafs geti menn einnig lært að lifa í sátt og sam- lyndi. En til þess þurfa forsendur að vera til staðar, svo sem umburðarlyndi gagnvart skoðunum annarra og virðing fyrir lögum og rétti. Þetta næst tæplega fram nema í lýðræðis- og réttarríkjum, en þau lönd sem um ræðir falla almennt í hvorugan flokkinn, sem er mikill vandi og hvorki auðleystur né skjótleystur. Þrátt fyrir söguna skortir áherslu á vísindin Þó að þetta svæði og þær menningarþjóðir sem það byggðu og byggja í meginatriðum enn hafi á öldum áður verið uppspretta háskóla og vísindastarfs er staðan því miður breytt. Skortur á almennri menntun og vísindalegri framfarahugsun háir þeim ríkjum sem þar eru. The Economist gerir rannsóknir og þró- un í þessum heimshluta að umfjöllunarefni í nýjasta tölublaði sínu og bendir á að í samanburði við ríki OECD fari afar lágt hlutfall landsframleiðslunnar til slíkra hluta. Landsframleiðsla Arabaríkjanna er 5,9% af landsframleiðslu heimsins en ríkisframlög til rann- sókna og vísinda eru innan við 1% og að auki illa varið. Verra er að einkafyrirtæki verja þar nánast engu til rannsókna og vísinda, en standa fyrir meiri- hluta þessa þáttar víða í veröldinni. Meðal þeirra ríkja er Ísrael, sem er framarlega á ýmsum sviðum og sýnir að það er ekki staðsetningin sem ræður för, heldur það umhverfi sem stjórnvöld skapa. Og það er ekki heldur fólkið sem í eðli sínu er laust við fram- faraþrána sem einkennir manninn. Erlendis hefur fólk frá þessu svæði náð miklum árangri við að beita hugvitinu til framfara. Steve Jobs, sem var hálfur Sýrlendingur, er ef til vill þekktasta dæmið. Trúin krefst ekki vanrækslu hins veraldlega Trúarbrögðin á svæðinu hafa iðulega verið nefnd sem ástæða vandans sem þar ríkir og vissulega er mikið til í því, en það snýst þó að verulegu leyti um hvernig þau eru túlkuð og stunduð. Það er til dæmis ekki líklegt til árangurs að loka þurfi versl- unum oft á dag eins og í Sádi-Arabíu vegna bæna- halds. Það er ekki heldur vænlegt til árangurs að halda konum niðri í stað þess að njóta krafta þeirra eins og eðlilegt væri, eða að láta trúarsetn- ingar með öðrum hætti hafa óeðlileg áhrif á þjóðfé- lagið. Eðlilegt er að menn vilji rækta trú sína og að þjóðfélagið taki tillit til þess, en það hefur ekki reynst farsælt að yfir öllu hvíli þungur hrammur klerkastéttar sem setur almenningi óeðlilegar skorður, stendur í vegi fyrir umbótum og heftir framfarir. Ein af dæmisögunum um Múhameð spámann var þegar hann hitti bedúína nokkurn sem var með úlfalda, en hafði ekki tjóðrað hann heldur lét hann ganga lausan. Múhameð spurði bedúínann hvers vegna hann tjóðraði ekki úlfaldann svo hann slyppi ekki í burtu. Bedúíninn svaraði: „Ég set traust mitt á guð.“ Þá sagði Múhameð: „Þú skalt treysta guði, en tjóðraðu úlfaldann!“ Vandi Mið-Austurlanda og Norður-Afríku er svo snúinn að hann virðist oft óleysanlegur með öllu. Engu að síður verður stöðugt að leita lausnar og smám saman hljóta þessi vandræði að leysast eins og önnur. Fyrsta skrefið gæti verið að þeir sem þar ráða mestu tækju tillit til þessarar ábendingar um að vanrækja ekki það sem veraldlegt er. Hún kemur úr átt sem þeim ætti að hugnast. Samsett mynd/Elín Arnórsdóttir 5.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.