Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.06.2016, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.6. 2016 L engstu járnbrautargöng veraldar, Gotthard-jarðgöngin í Sviss, voru opnuð formlega síðastliðinn miðviku- dag. Þau eru 57 kílómetra löng, mikið þrekvirki og á bak við þau er um- fangsmikil þekking á viðfangsefninu og hugvit færustu sérfræðinga. Verðmiðinn er ekki af rýrara taginu, jafnvirði 1.500 milljarða króna, en kom einnig fram í mannslífum, því að níu manns létu lífið við gangagerðina. Samgöngubætur af þessu tagi geta breytt miklu fyrir stór landsvæði, örvað hagvöxt og velmegun. Sum samgöngumannvirki af þessu umfangi eru jafnvel svo mögnuð að þau breyta aðstæðum í heilu heimsálfun- um og valda titringi í heimsveldum. Súesskurðurinn á milli Rauðahafsins og Miðjarðarhafsins er eitt skýr- asta dæmið þar um. Menn í verslunarveldinu Fen- eyjum höfðu strax á fimmtándu öld velt fyrir sér kost- um þess að tengja þessi tvö höf saman og þegar Napóleon lagði undir sig Egyptaland um aldamótin 1800 lét hann verkfræðinga meta hvernig hægt væri að grafa skurð á milli þessara hafa. Það var svo rúmri hálfri öld síðar, eftir að Frakkar höfðu misst aftur yf- irráðin í landinu, sem þeir náðu engu að síður sam- komulagi við landstjórann þar um að grafa skurðinn, sem gert var á árunum 1859 til 1869. Þýðingarmikill skurður Hlutafélagið um skurðinn var að meirihluta í eigu franskra fjárfesta og að minnihluta til í eigu Egypta, en Bretar, sem einnig höfðu mikil ítök á svæðinu, voru fullir efasemda um þessa samgöngubót. Þeir óttuðust að hún kynni að skaða yfirburði breska heimsveld- isins á höfunum. Engu að síður kom í ljós þegar skurðurinn hafði verið grafinn að bresk skip voru í miklum meirihluta þeirra sem sigldu um skurðinn, enda stórbætti hann samgöngur við Indland, krúnu- djásnið sjálft. Síðar, þegar egypsk stjórnvöld skorti fé, ákvað breski forsætisráðherrann Disraeli að Bret- land skyldi kaupa sig inn í Súes-hlutafélagið, sem gert hafði 99 ára samning um reksturinn. Sá samningur hélt þó ekki til enda, því að Nasser forseti Egypta- lands þjóðnýtti skurðinn árið 1956, sem endaði með átökum sem herir Ísraels, Breta og Frakka tóku þátt í. Við bættist pólitískur þrýstingur frá Sovétríkjunum og Bandaríkjunum, sem varð til að deilan leystist með því að gömlu yfirráðaþjóðirnar Bretar og Frakkar voru niðurlægðar og urðu að gefa eftir. Saga þessa merkilega samgöngumannvirkis sýnir vel hversu mikilvægt það er, en það þurfti raunar ekki söguna til; menn gerðu sér strax grein fyrir þýðing- unni þegar skurðurinn var tekinn í notkun. Til marks um það eru hátíðarhöldin sem Egyptar stóðu fyrir með þátttöku allra helstu fyrirmenna Evrópu, enda var vilji til að horfa þangað og lyfta Egyptalandi upp úr fátæktinni sem þar ríkti með þekkingu að norðan. Meðal þess sem ætlunin var að leyfa gestunum að njóta til að lyfta andanum var verk eftir Verdi sem leiðtogi Egypta hafði fengið til að semja af þessu til- efni og greitt fyrir sem svarar til á annað hundrað milljóna króna. Verkið tafðist reyndar og var ekki frumflutt fyrr en tveimur árum síðar í óperuhúsinu í Kaíró. Verkið Aida er engu að síður óvenjulegur og merkilegur afrakstur þess mikla framfarahugar sem ríkti í Egyptalandi upp úr miðri nítjándu öld. Egypska „frelsisstyttan“... Annað stórvirki sem tengist gerð Súesskurðarins stendur á háum stalli á eyju í höfninni í New York og heldur þar á kyndli til að lýsa ferðalöngum leiðina inn í land frelsisins; Frelsisstyttan sjálf. Hönnuður henn- ar, franski myndhöggvarinn Auguste Bartholdi, hafði ásamt fleiri áhugasömum listamönnum ferðast um Mið-Austurlönd, einkum Egyptaland, enda hafði áhuginn á menningu landsins vaxið mjög í Evrópu eft- ir fund Rósettusteinsins og þeirra þýðinga sem hann gerði mögulegar á fornu egypsku skrifuðu máli. Bart- holdi varð heillaður af risavöxnum fornum styttum Egypta og ræddi við egypsk stjórnvöld um að reisa gríðarstóra styttu af egypskri bóndakonu, klæddri í kjól með kyndil í hendi. Styttuna kallaði hann Egyptaland varpar ljósi á Asíu, eða Framfarir varpa ljósi á Asíu. Hann gerðir margar mismunandi útgáfur af styttunni væntanlegu en þegar hann var orðinn sáttur við afraksturinn og mætti við opnun Súes- skurðarins, höfðu egypsk stjórnvöld hætt við að láta reisa styttuna og létu myndarlegan vita duga. Stend- ur sá enn í Port Said. Þeim leist ekki á kostnaðinn við styttuna mögnuðu, enda var sjóður egypska ríkisins farinn að láta mjög á sjá, sem endaði raunar með því að landið missti fjárhagslegt sjálfstæði sitt, en það er önnur saga. ... og sú bandaríska Þrátt fyrir þetta bakslag missti Bartholdi ekki móð- inn og náði í samstarfi við Frakkann Edouard de La- boulaye að safna fé fyrir gerð hennar með ýmsu móti hjá frönskum almenningi og stjórnvöldum. Á móti tókst bandarískum áhugamönnum, ekki síst fyrir áeggjan útgefandans Joseph Pulitzer sem beitti dag- blaði sínu í þessum tilgangi, að safna fé fyrir stallinum meðal efnamanna og almennings. Styttan, sem átti að rísa á aldarafmæli stjórnarskrárinnar, var afhjúpuð áratug of seint en stendur sem tákn um þá hugsjón einstaklingsfrelsis og einstaklingsframtaks sem birt- ist í stjórnarskránni bandarísku. Frelsisstyttan hefur frá upphafi verið eitt helsta tákn Bandaríkjanna og hver veit nema hún eigi sinn þátt í því hversu vel hefur tekist til þar í landi að halda í þær hugsjónir sem helst geta stuðlað að því að færa mannkynið fram á veginn, bæði í anda og efnahag. Og ef til vill er það einmitt einhvers konar frelsisstytta eða ámóta áminning um hvað það er sem lönd og lýður þurfa til friðar og framfara sem skortir í Mið-Austur- löndum og Norður-Afríku. Ef til vill hefði verið far- sælt ef Bartholdi hefði tekist að fá fé til að reisa ljós- kerið við mynni Súesskurðarins. Það er að minnsta kosti býsna drungalegt á þessum slóðum og óhætt að segja að töluvert skorti á þá framfarahugsun sem ýtti undir gerð hins mikla samgöngumannvirkis á nítjándu öldinni, að ekki sé talað um margt af því merkilega sem á þessum slóðum spratt fram fyrr á öldum á meðan meira myrkur grúfði yfir Evrópu. Hverju er um að kenna? Eitthvað gerðist sem valdið hefur þeim hörðu átökum sem einkenna þetta svæði og hefur orðið til þess að það hefur á margan hátt dregist aftur úr þeim sem sótt hafa fram. Olían hefur tryggt yfirgengilega auð- legð sumra en lítið hjálpað almenningi á svæðinu í samanburði við almenning víða annars staðar þar sem Lausnin gæti legið í því að tjóðra úlfaldann ’ Bartholdi varð heillaður af risavöxnum fornum styttum Egypta og ræddi við egypsk stjórnvöld um að reisa gríðarstóra styttu af egypskri bóndakonu, klæddri í kjól með kyndil í hendi. Styttuna kallaði hann Egyptaland varpar ljósi á Asíu. Reykjavíkurbréf03.06.16

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.