Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Nýtt skip Skipaþjónustu Íslands hef-
ur fengið nafn og segja má að það lýsi
vel verkefnum skipsins, en dráttar-
báturinn ber nú nafnið Togarinn.
Skipið er keypt frá Spáni og var lagt
af stað út Gíbraltarsundið um hádegi
á laugardag. Í gær var siglt norður
með ströndum Portúgals og sam-
kvæmt áætlunum er miðað við að
skipið verði hér um miðjan dag næsta
laugardag, að sögn Ægis Arnar Val-
geirssonar, framkvæmdastjóra
Skipaþjónustunnar.
Dráttarbáturinn er 34 metrar á
lengd, tæpir 10 metrar á breidd, með
48 tonna togkraft. Hann var smíð-
aður árið 1977, en endurnýjaður að
stórum hluta 1998. Til samanburðar
má nefna að Magni, dráttarbátur
Faxaflóahafna, er 22 metrar á lengd
og með togkraft allt að 39,5 tonnum.
Togarinn verður því talsvert öflugri.
Ægir Örn sagði í samtali við Morg-
unblaðið þegar greint var frá kaup-
unum að kaupin væru liður í aukinni
þjónustu fyrirtækisins við sjávar-
útveginn. Umferð skipa við landið
væri alltaf að aukast, en dráttarbátur
Skipaþjónustunnar verður eini út-
hafsbáturinn í flotanum, að sögn Æg-
is. Jafnvel væri horft til verkefna er-
lendis. aij@mbl.is
Togarinn á leið til landsins
Í slipp Skrúfa Togarans er stór og dráttarbáturinn öflugt skip.
Með meiri tog-
kraft en Magni
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
„Ég tel þessar breytingar vera af
hinu góða og alveg í takt við það sem
er að gerast í kringum okkur,“ segir
Brynja Björk Gunnarsdóttir, for-
maður Brjóstaheilla – Samhjálpar
kvenna, um breytt fyrirkomulag á
eftirliti þeirra sem lokið hafa með-
ferð við brjóstakrabbameini. Breyt-
ingarnar felast til dæmis í því að
hjúkrunarfræðingar munu í auknum
mæli koma að eftirliti þeirra sem
lokið hafa meðferð við brjósta-
krabbameini, meðal annars vegna
skorts Landspítala á sérfræðingum í
krabbameinslækningum.
Þegar breytingarnar voru til-
kynntar í síðasta mánuði vöktu þær
ugg hjá fjölda þeirra sem gjarnan
vildu halda áfram samskiptum við
þann lækni sem sá um meðferðina. Í
kjölfarið héldu starfsfólk krabba-
meinslækningadeildar Landspít-
alans, Brjóstaheill og Ráðgjafar-
þjónusta Krabbameinsfélagsins
kynningarfund um breytingarnar
undir heitinu „Brjóstakrabbamein:
Samtal um eftirlit“. Brynja segist
hafa fundið fyrir gífurlegu þakklæti
frá þeim um 90 konum sem mættu á
fundinn. „Auðvitað þurfum við að
vinna saman. Við þurfum að heyra
hvað er í lagi og hvað er ekki í lagi.
Þannig getum við hjálpast að við að
gera þetta eins vel og hægt er.“
Eldra eftirlitskerfi stóðst ekki
„Það eftirlit sem var sett upp fyrir
einhverjum árum síðan hefur ekki
staðist. Konur hafa ekki fengið tíma
hjá lækni. Krabbameinslæknum hef-
ur farið fækkandi á undanförnum
árum og það er ekki verk einnar
manneskju að sinna eftirlitinu. Víð-
ast hvar í löndunum í kringum okkur
er þetta teymisvinna og þannig verð-
ur þetta hér,“ bætir Brynja við um
nýja fyrirkomulagið.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir, for-
stöðumaður Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, tekur í sama
streng og bætir við að hún telji
skilning á aðstæðum hafa aukist eft-
ir fundinn: „Miðað við niðurstöður
fundarins voru konur sáttar við að
reyna á þetta. Ég held að konurnar
hafi orðið upplýstari um hvað er í
boði og að hverju er verið að vinna
að í þeirra þágu. Ég held að allar
hafi verið sammála um að leggjast á
eitt og reyna að gera eins vel og
mögulegt er,“ segir Sigrún.
Halda áfram reglulegu samtali
Áætlað er að halda áfram reglu-
lega samtalsfundi og ræða eftirlitið
og málefni tengd því. „Mín fyrsta
upplifun eftir að ég heyrði í konum
var sú að það vantaði samtal um
þetta málefni. Því leituðum við til
starfsfólks krabbameinslækninga-
deildar til að koma og vera með
kynningu og fá samtal um nýtt
skipulag brjóstaeftirlits,“ segir Sig-
rún, en þar er markmiðið ekki síst að
ræða endurbætur á nýja kerfinu.
Samstaða um
breytt krabba-
meinseftirlit
Viðbrögð við skorti á krabbameins-
læknum Vantar samtal um málefnið
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Tæplega 90 konur
mættu á samtalsfund í síðustu viku.
Krabbameinseftirlit
» Hjúkrunarteymi munu koma
að eftirliti í auknum mæli.
Samskonar fyrirkomulag hefur
reynst vel í Svíþjóð.
» Krabbameinslæknum hefur
fækkað um helming hér á landi
síðan fyrir hrun.
» Formaður Brjóstaheilla segir
tilkynningu um breytingarnar
hafa valdið misskilningi, en eft-
ir samtalsfund í síðustu viku
ríki nú meiri samstaða um þær.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta eru eiginlega allt stykki sem
ég vann vorið 2013, nýræktir frá því
eftir kalið þá. Gömlu túnin sleppa að
mestu núna, nema eitt. Þetta er því
ekki eins slæmt og 2013. Þá voru
dauðkalin hjá mér fleiri tún,“ segir
Bragi Konráðsson, bóndi í Löngu-
hlíð í Hörgárdal í Eyjafirði.
Búnaðarsambönd landsins og
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
eru að meta kal í túnum í vor. Það er
liður í því að þeir bændur sem verða
fyrir mesta tjóninu geti sótt um
bætur til Bjargráðasjóðs þegar upp-
skerutjón liggur fyrir með haustinu.
Víða kal til ódrýginda
Sigurgeir B. Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, segir að mikið kal sé á
mörgum bæjum í Hörgárdal og
Öxnadal, einnig nokkuð í Höfða-
hverfi í Grýtubakkahreppi. Þá er
víða kal til ódrýginda á túnum á víð
og dreif um búnaðarsambands-
svæðið. Sigurgeir er einnig formað-
ur stjórnar Bjargráðasjóðs og hefur
þess vegna fréttir af kali víðar.
Hann nefnir að slæmt kal sé á
nokkrum bæjum í Aðaldal og al-
mennt kal í Þistilfirði. Vitað er um
kal austan vatna í Skagafirði og á
Ströndum. Þá eru víða kalblettir á
Suðurlandi, meðal annars í
Flóanum.
Þótt ekki sé búið að meta kalið að
fullu telur Sigurgeir óhætt að segja
að þetta sé næstmesta kalárið á
Norður- og Austurlandi frá alda-
mótum, næst á eftir árinu 2013.
Vonar að þetta hafist
Bragi í Lönguhlíð hefur unnið upp
verstu túnin og sáð í þau grænfóðri.
Í stærstu túnunum hefur hann feng-
ið ísáningsvél búnaðarfélagsins og
sáð grasfræi og rýgresi til að fá upp-
skeru í haust.
Hann er með 50 mjólkandi kýr og
þarf að tryggja sér næg hey
fyrir veturinn. Tæpur helm-
ingur af túnunum á Löngu-
hlíð er kalinn og nýtist því
illa. Bragi segist heyja
víðar og þau stykki hafi
sloppið betur. „Ég vona að
þetta hafist. Það myndi
muna miklu ef við fengjum
vætu því að eyrarnar eru
orðnar svolítið tæpar.
Þær fara að
brenna ef ekki
fer að rigna.“
Ljósmynd/Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Kaltún Bóndinn í Lönguhlíð í Hörgárdal sáði grasfræi og rýgresi í verstu sárin á stóra túninu sem sést í forgrunni.
Mesta kalið í nýrækt-
um frá kalárinu 2013
Gömlu túnin á Löngumýri í Hörgárdal sleppa betur
„Það er mikið verk að ganga
túnin og átta sig á umfanginu.
Maður fær miklu betri yfirsýn
með loftmyndum þótt vissulega
sé það í þessu, eins og öðru, að
það þarf að læra á tæknina,“
segir Sigurgeir Hreinsson,
framkvæmdastjóri Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar.
Sambandið fékk mann til að
ljósmynda tún á kalsvæð-
unum úr dróna. Tilgang-
urinn er að auðvelda og
flýta mati á umfangi kal-
skemmda. Ráðunautur fer
síðan yfir myndirnar í
tölvu og metur skemmd-
irnar. Samhliða myndatök-
unum er reynt að athuga
ástandið á jörðu niðri.
Hægt var að mynda tún
á 16 eða 17 bæjum á
tveimur dögum.
Kalið mynd-
að úr dróna
EYJAFJÖRÐUR
Sigurgeir
Hreinsson
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall
Omega 3 fitusýra
Meiri virkni
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Læknar mæla
með selaolíunni
Selaolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Selaolía Meiri virkniEinstök olía
Óblönduð
– meiri virkni