Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Tvítug íslensk kona, sem handtekin
var í Brasilíu á milli jóla og nýárs,
hefur verið dæmd í 5 ára og 20 daga
fangelsi fyrir fíkniefnasmygl, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Konan, sem heitir Birgitta Gyða
Bjarnadóttir, var handtekin ásamt
kærasta sínum og hefur þegar setið
inni í hálft ár.
Í febrúar sagði mbl.is frá því að
málið hefði mjakast hægt áfram og
hafði faðir stúlkunnar aðeins heyrt
einu sinni í dóttur sinni í tæplega tvo
mánuði síðan hún var handtekin.
Konan var látin sæta gæsluvarð-
haldi þar sem ástæða var talin til að
óttast að hún myndi flýja land, þar
sem hún hefði hvorki fasta búsetu né
fasta vinnu í Brasilíu.
Parið var handtekið 26. desember
í borginni Fortaleza, en þau voru
með fjögur kíló af kókaíni í fórum
sínum, sem var falið í smokkum og
fölskum botnum í ferðatösku.
Hafa þau þurft að sitja í gæslu-
varðhaldi síðan, þar sem beiðni
þeirra um lausn fram að dómi var
hafnað af dómstólum landsins.
Tvítug dæmd
í 5 ára fang-
elsi í Brasilíu
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Fjöldi fólks hefur leitað afgreiðslu
hjá sýslumannsembættum á lands-
byggðinni vegna annríkis hjá Sýslu-
manninum á höfuðborgarsvæðinu.
Rekja má annríkið til breytinga á
gildistíma vegabréfa og Evrópu-
mótsins í knattspyrnu.
Umsóknir aukast um 21%
Í maímánuði voru fluttar fréttir
af löngum biðröðum í vegabréfa-
afgreiðslu Sýslumannsins á höf-
uðborgarsvæðinu. Á árunum 2006-
2013 var gildistími vegabréfa stytt-
ur úr 10 árum í 5 ár, sem hefur leitt
til álags á embættinu. Að auki eru
fjöldamargir á leið til Frakklands í
júní til að fylgjast með íslenska
landsliðinu. Samkvæmt tölum frá
Þjóðskrá var útgáfa vegabréfa í
apríl 21% meiri en á sama tímabili í
fyrra.
Þegar biðraðir tóku að lengjast
var vakin athygli á því í fréttum að
hægt væri að fá afgreiðslu hjá öll-
um sýslumannsembættum, óháð bú-
setu. Síðan þá hefur fjöldi fólks
streymt til Keflavíkur.
Tvöfaldast milli mánaða
Ásdís Ármannsdóttir er sýslu-
maður á Suðurnesjum.
„Það er mikið álag og við finnum
að fólk frá höfuðborgarsvæðinu er
að leggja leið sína hingað. Umsókn-
ir um vegabréf hátt í tvöfölduðust
milli apríl- og maímánaða,“ segir
Ásdís. Sömu sögu er að segja af Sel-
fossi. „Hér er stöðugt álag en það
hefur verið meira upp á síðkastið.
Við höfum orðið vör við fjölda höf-
uðborgarbúa,“ segir Anna Birna
Þráinsdóttir, sýslumaður á Suður-
landi. Aðspurð hvort hún sjái fyrir
endann á álaginu segir Anna að það
velti á því hvenær nýtt afgreiðslu-
kerfi vegabréfa verði innleitt.
Leita afgreiðslu úti á landi
Biðtími Það getur tekið langan tíma
að fá vegabréfið í hendurnar
Biðraðir hjá Sýslu-
manni í Kópavogi
færast til Selfoss og
Keflavíkur
Andri Steinn Hilmarsson
Ómar Friðriksson
„Það verður að bregðast við þessu
með einhverjum hætti. Við erum að
sjá dag eftir dag, viku eftir viku, að
meirihluti flugs til og frá landinu er
settur úr skorðum,“ sagði Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, á mbl.is í gær um áhrif
yfirvinnubanns flugumferðarstjóra.
„Hjá Icelandair hafa aðgerðir flug-
umferðarstjóra, sem eru nákvæm-
lega úthugsaðar, valdið beinni seink-
un um 400 ferða, varlega áætlað, og
þær seinkanir hafa seinkað um 800
ferðum til viðbótar, eða um 1.200
flugferðum. Það þýðir að um 200
þúsund farþegar Icelandair hafa
lent í þessum töfum,“ sagði hann.
Forsvarsmenn íslensku flug-
félaganna sögðu á mbl.is í gær yfir-
vinnubann flugumferðarstjóra farið
að hafa veruleg áhrif á starfsemi
þeirra. Heildarupplifun farþega sem
yrðu fyrir seinkunum vegna aðgerð-
anna væri afar neikvæð og bitnaði
það á orðstír félaganna.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, sagði á mbl.is
í gær að þúsundir farþega flug-
félagsins hefðu orðið fyrir seink-
unum. „Leiðakerfi WOW air gengur
út á það að flytja farþega milli N-
Ameríku og Evrópu. Einstök seink-
un á flugi getur haft keðjuverkandi
áhrif á allt leiðakerfi flugfélagsins og
getur áhrifa gætt fram á næsta
dag.“
20.000 komust ekki
Samkvæmt upplýsingum Sam-
taka ferðaþjónustunnar í gær hafa
aðgerðir flugumferðarstjóra frá því
að þær hófust fyrir tveimur mán-
uðum valdið því að 99 flugferðum til
og frá landinu hefur seinkað og þeg-
ar hafa um 20 þúsund farþegar ekki
komist ferða sinna.
Áætlunarflug um Keflavíkur-
flugvöll raskaðist mikið í fyrrinótt og
gærmorgun vegna yfirvinnubanns
flugumferðarstjóra. Þar sem tveir
flugumferðarstjórar voru veikir var
þjónusta á vellinum takmörkuð við
sjúkra- og neyðarflug frá kl. tvö til
sjö í gærmorgun. Þetta leiddi til
verulegra seinkana á flugferðum, en
af 27 brottförum voru aðeins þrjár á
áætlun.
Þetta er í fjórða sinn sem flug
raskast af þessum sökum og áætl-
unarflug liggur niðri eftir að yfir-
vinnubann flugumferðarstjóra hófst.
Þá hafa raskanir valdið keðjuverk-
unum fram eftir degi á áætlanir flug-
félaga. Einnig hefur komið nokkrum
sinnum til þess að íslenska flug-
umsjónin hefur ekki getað sinnt öllu
flugi um íslenska flugstjórnarsvæðið
og þurft að beina flugvélum á flugi
milli Evrópu og N-Ameríku sunnar,
með tilheyrandi truflunum og við-
bótar eldsneytiskostnaði fyrir flug-
félög. Skv upplýsingum Guðna Sig-
urðssonar, upplýsingafulltrúa
Isavia, hafa IATA, Alþjóðasamtök
flugfélaga í áætlunarflugi, lýst
áhyggjum sínum við Isavia vegna
þessa.
Sigurjón Jónasson, formaður
Félags flugumferðarstjóra, segir
það rétt að aðgerðirnar hafi valdið
miklum truflunum, „og í raun
kannski meiri truflunum en við átt-
um von á fyrir fram. Við erum í væg-
ustu aðgerðum sem við gátum gripið
til, þ.e.a.s. með yfirvinnubanni, en að
það skuli hafa svona mikil áhrif segir
kannski sitt um hversu undirmann-
aðir við í raun erum og hversu mikla
manneklu við erum að glíma við,“
segir hann. Flugstjórnarmiðstöðin
hafi líka stundum verið flöskuháls-
inn í morgunbrottförum í Keflavík
og í þó nokkur skipti hafi komið upp
þær aðstæður vegna manneklu í
flugstjórnarmiðstöðinni að þurft hafi
að vísa flugumferð suður fyrir ís-
lenska flugumsjónarsvæðið. „Við er-
um að glíma við manneklu alls stað-
ar,“ segir hann.
Ekki hefur verið boðað til nýs
sáttafundar í kjaradeilunni
Seinka 1.200 ferðum hjá Icelandair
Morgunblaðið/Júlíus
Þotur Hjá Icelandair eru aðgerðir flugumferðarstjóra taldar hafa valdið
beinni seinkun um 400 flugferða og þær aftur seinkað um 800 ferðum í viðbót.
Yfirvinnubannið hefur áhrif á tugþúsundir farþega vegna seinkana og keðjuverkunar Flug-
stjórnarmiðstöðin glímir við mikla manneklu að sögn formanns FÍF Ekki boðað til nýs sáttafundar
„Það er ljóst að þessar aðgerðir
hafa haft gríðarleg áhrif á
ferðaþjónustuna,“ segir Skapti
Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi
Samtaka ferðaþjónustunnar.
„Það er ekki gott þegar fámenn-
ur hópur launþega heldur sam-
göngum til og frá landinu í
höndum sér í kjarabaráttu sinni
með þessum gríðarlegu afleið-
ingum sem nú þegar hafa orðið.
Samtök ferðaþjónustunnar
hvetja samningsaðila til að leita
allra leiða til að ná sáttum í
deilunni þannig að ekki komi til
frekara tjóns fyrir íslenskt sam-
félag.“ Í frétt frá samtökunum
segir að þriðja sumarið í röð
hafi ferðaþjónustan þurft að
búa við að fámennir hópar laun-
þega valdi miklum vandræðum
og hafi atvinnugreinina og sam-
göngur til og frá landinu í hendi
sér í kjarabaráttu sinni.
Þriðja sum-
arið í röð
FERÐAÞJÓNUSTAN
Fyrsta skóflustunga var tekin í gær
að nýju flugskýli Icelandair á
Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða
viðbyggingu við hlið núverandi
flugskýlis, sem byggt var 1992.
Áætlanir gera ráð fyrir að hægt
verði að taka skýlið í notkun síðla
árs 2017. Það mun skapa á annað
hundrað störf og hýsa m.a. lager,
verkstæði og skrifstofur.
Flugskýlið verður um 27 metra
hátt stálgrindarhús á steyptum
undirstöðum og klætt að utan með
einangruðum stálsamlokuein-
ingum. Grunnflötur byggingar-
innar er um 10.500 fermetrar og
heildarflatarmál hennar um 13.600
fermetrar. Flugvirkjarnir Ragnar
Karlsson og Adólf Svavarsson
stungu skóflunum í svörðinn og við
hlið þeirra eru Birkir Hólm Guðna-
son, framkvæmdastjóri Icelandair,
og Jens Þórðarson, yfirmaður
tækniþjónustu félagsins. Ljósmynd/Icelandair
Fjöldi
starfa
skapast
Skóflustunga tekin í gær að nýju flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666