Morgunblaðið - 07.06.2016, Qupperneq 8
AFP
Endubætur Francis páfi telur þörf á
að skýra reglur um vanrækslu presta.
Samkvæmt nýjum reglum frá Vatík-
aninu varðar vanræksla í kynferð-
isbrotamálum brottrekstri. Kanslari
Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi segir
að breytingarnar virðist í fljótu
bragði góðar en þó eigi kirkjan eftir
að fara betur yfir efnisatriði regln-
anna.
Fyrir skömmu tilkynnti Francis
páfi nýjar reglur, sem kveða á um
að kirkjan geti rekið biskupa, sem
sýna vanrækslu í barnaníðsmálum.
Hingað til hefur verið ákvæði um
viðurlög við vanrækslu embættis-
manna en skýra þurfti til hvaða af-
brota það tæki. Reglurnar taka gildi
í september. Kaþólska kirkjan hefur
í mörg ár legið undir ásökunum fyr-
ir að hylma yfir með kynferðisbrota-
mönnum sem starfa innan kirkjunn-
ar. Ásakanirnar hafa meðal annars
snúið að því að kynferðisbrotamenn
hafi einfaldlega verið færðir til í
starfi án frekari eftirmála.
Jakob Rolland, kanslari á bisk-
upsstofu Kaþólsku kirkjunnar á Ís-
landi, er jákvæður gagnvart nýju
reglunum. „Ef eitthvert mál kemur
upp þá fylgjum við öllum reglum
kirkjunnar. Þetta eru góðar reglur
eftir því sem ég best veit en við eig-
um eftir að skoða þær til hlítar.“
tfh@mbl.is
Skýra reglur um kynferðisbrot
Vatíkanið leggur línurnar um meðferð kynferðisbrota innan kaþólsku kirkj-
unnar Kanslari Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi telur breytingarnar góðar
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Það gerist of oft hér á landi að fá-mennir hópar í lykilstöðum til
að valda usla í atvinnulífinu fari í
vafasamar aðgerðir til að þrýsta
upp launum sínum.
Þetta hefurjafnvel geng-
ið svo langt að
litlum hluta af
stærri hópi er teflt
fram til að lama
ákveðna starf-
semi. Þetta veldur
miklum skaða en
er tiltölulega útgjaldalítið fyrir við-
komandi samtök launamanna.
Þá kemur það fyrir að veikindiblossa upp hjá ákveðnum hóp-
um manna á sama tíma og þeir eiga
í launadeilum.
Því meðali er einnig beitt að tak-marka vinnutímann og valda
þannig miklum óþægindum án þess
beinlínis að lama allt eða stöðva.
Allt er þetta afar hvimleitt ogverulega skaðlegt fyrir efna-
hagslífið og þar með fyrir kjör alls
almennings.
Mjög áríðandi er að finna leiðirtil að hægt sé að semja um
kaup og kjör hér á landi án þess að
allt sé sett í uppnám.
Salek-samkomulagið veitirákveðnar vonir í þessu efni en
dugar bersýnilega ekki gagnvart
hópum sem telja sig í lykilstöðu til
að ná sínu fram.
Á þessu verður að taka til aðkoma í veg fyrir að kjarabar-
átta einstakra hópa gangi svo langt
að hún skaði hagsmuni alls þorra
landsmanna – og þar með jafnvel
einnig þeirra hópa sem harðast
ganga fram.
Óviðunandi ástand
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.6., kl. 18.00
Reykjavík 14 léttskýjað
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk 5 rigning
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskírt
Lúxemborg 23 skúrir
Brussel 23 rigning
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 21 rigning
London 22 heiðskírt
París 22 skýjað
Amsterdam 25 heiðskírt
Hamborg 28 heiðskírt
Berlín 25 heiðskírt
Vín 23 léttskýjað
Moskva 7 skúrir
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 23 rigning
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 27 rigning
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 20 rigning
New York 25 léttskýjað
Chicago 25 rigning
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:08 23:47
ÍSAFJÖRÐUR 2:07 24:57
SIGLUFJÖRÐUR 1:45 24:45
DJÚPIVOGUR 2:25 23:28
Skákmeistarinn
Viktor Kortsnoj
lést í gær, 85 ára
að aldri. Kortsnoj
var einn af
fulltrúum sov-
éska skákskólans
en flúði land 1976
og átti lengi síðan
í miklum útistöð-
um við sovésk
stjórnvöld. Háði
hann tvö einvígi við Anatolí Karpov
um heimsmeistaratitilinn, 1978 og
1981, þegar kalda stríðið var í al-
gleymingi. Árið 1988 lagði íslenski
stórmeistarinn Jóhann Hjartarson
Kortsnoj í áskorendaeinvígi í St.
John’s í Kanada. Var einvígið eink-
um umtalað fyrir þær sakir að
Kortsnoj spúði tóbaksreyk í sífellu
að keppinaut sínum á meðan því
stóð.
Að sögn stórmeistarans Helga
Ólafssonar er Kortsnoj af flestum
talinn vera besti skákmaðurinn sem
ekki hefur náð titli heimsmeistara.
„Á síðari árum varð þekkt að hann
lét ýmiss konar ummæli falla eftir
viðureignir. Frægast er kannski það
sem hann sagði þegar einn mótherji
hans gafst upp: Þetta er gáfulegasta
ákvörðun sem þú hefur tekið síðan
skákin hófst.“ sh@mbl.is
Viktor
Kortsnoj
látinn
Viktor
Kortsnoj
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004