Morgunblaðið - 07.06.2016, Side 12

Morgunblaðið - 07.06.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Menn geta orðið gáfaðri ífélagsskap sér gáfaðri,t.d. fjölskyldu, vina,vinnufélaga og á vinnu- stað þar sem viðfangsefnin eru krefjandi og reyna á vitsmuni. Í stórum dráttum getur lífstíllinn gert gæfumuninn og hækkað greind- arvísitölu manna um nokkur stig, en líka – illu heilli – lækkað hana ef fá- ar eru áskoranirnar og félags- skapurinn og fjölskyldan stendur þeim ekki vitsmunalega á sporði. Svo segir að minnsta kosti í ný- útkominni bók, Does Your Family Make You Smarter? (Gerir fjöl- skyldan þig snjallari?) þar sem höf- undurinn, James Robert Flynn, prófessor emeritus í stjórnmála- fræði við háskólann í Otago á Nýja Sjálandi, greinir frá nýjum kenn- ingum. Hann byggir þær á rann- sóknum sínum á fjölda greindar- prófa sem gerð höfðu verið víðs- vegar um heim á 65 ára tímabili frá árinu 1930. Hækkandi greindarvísitala Flynn hafði áður uppgötvað og orðið fyrstur til að sýna fram á að frammistaða fólks á greindarpróf- unum batnaði með hverri kynslóð, að meðaltali um þrjú stig á áratug. Í ljósi þess að 95% manna mælast með greind á bilinu 70 til 130 stig þykir aukningin gríðarleg. Niðurstöður hans vöktu mikla athygli, enda mátti af þeim ráða að meðalmaður nútímans hefði fyrir einni öld mælst afburðagreindur. Fyrirbærið varð þekkt sem Flynn- áhrifin og hafa fræðimenn árum saman leitað skýringa. Líffræðileg þróun þykir of hæg til að skýra svo öra hækkun og því hefur fremur Gáfaðri í félagsskap sér gáfaðri? Eftir að maður verður fullorðinn, um átján ára aldur eða svo, hefur löngum verið talið að gáfaðri verði maður ekki. Þaðan í frá standi greindarvísitalan í stað. Núna eru vísbendingar um að því er alls ekki þannig farið. Heimskir Þessir hafa líklega forheimskast í félagsskap hvor annars. Jim Carey og Jeff Daniels í hlutverkum Llodys og Harry í Dumb and Dumber. Wikipedia Afburðagreindir Albert Einstein (1879 –1955) og Stephen Hawking (1942–) eru taldir afburðagreindir. Engum sögum fer af því að þeir hafi tekið greindarpróf. AFP AFP AFP Gáfnaljós Madonna, Geena Davis og Sharon Stone þykja með þeim alklárustu í Hollywood, með greindarvísitölu frá 140–154, Stone er sögð skora hæst. AFP Íslenska sumarið er dásamlegur vett- vangur fyrir fjölskyldur til að gera svo ótalmargt saman. Útiveran getur verið heill ævintýraheimur og börn vita fátt skemmtilegra en leika úti. Nú er aldeilis lag til að skella sér í úti- legu um næstu helgi með krakka- skarann því skátar ætla þá að bjóða öllum fjölskyldum í útilegu við Úlf- ljótsvatn, dagana 10. – 12. júní. Þá verður frítt fyrir allar fjölskyldur að gista á tjaldstæðinu. Í tilkynningu kemur fram að boðið verður upp á margvíslega dagskrá á staðnum, eins og klifur, hoppukast- ala, báta, bogfimi og stutta og lag- góða útivistarfræðslu. Það er Útilífsmiðstöð skáta á Úlf- ljótsvatni sem rekur tjaldstæðið og stendur að útileguhelginni. Tjald- svæðið hefur verið opið almenningi í sextán ár og lögð er áhersla á að bjóða aðstöðu og þjónustu fyrir fjöl- skyldur af öllum stærðum og gerð- um. Markmið útileguhelgarinnar er að koma fjölskyldum af stað út í sumar- ið og hvetja til jákvæðrar samveru og eru allar fjölskyldur velkomnar á meðan pláss leyfir. Leitið að „Útileguhelgi fjölskyld- unnar“ á facebook eða kíkið á heima- síðuna www.ulfljotsvatn.is fyrir frek- ari upplýsingar. Jákvæð fjölskyldusamvera Gaman Margt verður í boði, klifur, hoppukastalar, bátar, bogfimi og fleira. Frítt fyrir alla á útileguhelgi Notalegt Stórt grill er á staðnum og öll aðstaða á tjaldstæðinu góð. Þær Stefanía S. Ólafsdóttir græðari og Súsanna María Kristinsdóttir hjúkrunarfræðinemi hjá Heilunar- skóla Nýjalands ætla að vera með námskeið núna í júní fyrir börn á aldrinum 9-11 ára undir heitinu Að finna fyrir kærleika, gleði og frið. Í tilkynningu segir að markmiðið með þessu námskeiði sé að kenna börnum aðferðir til að ná meiri stjórn á næmleika sínum, sjálfheilun og heilbrigðri hugsun gagnvart sjálfum sér og öðrum. Á námskeiðinu verður m.a farið yf- ir það hvers vegna vatn er mikilvægt, um orkublik og orkustöðvar, hug- leiðslu, fallega hugsun, fyrirgefningu, blómadropa, kristalla og steina og hvaða áhrif litir hafa. Tvö námskeið verða í júní, hið fyrra frá 8. júní til 15. júní (fyrir hádegi) en það síðara 16. júní til 24. júní. Þetta er fjórða sumarið sem Nýja- land býður upp á þessi námskeið og kennslan fer fram í Seltjarnarnes- kirkju. Upplýsingar í s. 517 4290 og 868 2880 og á www.nyjaland.is eða netfang: nyjaland@gmail.com Námskeið fyrir börn hjá Heilunarskóla Nýjalands Kenna börnum að ná meiri stjórn á næmleika sínum Morgunblaðið/Árni Sæberg Vatn Meðal annars verður farið yfir það hvers vegna vatn er mikilvægt. - vinnufatnaður ogöryggisskór. Vertuvel til fara í vinnunni! 10.472kr. 13.831kr. 8.143kr. 7.661kr. 10.039kr. 11.831kr. 17.846kr. 8.143kr. 10.472kr. 21.193kr. 17.650kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.