Morgunblaðið - 07.06.2016, Page 15

Morgunblaðið - 07.06.2016, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Afli strandveiðibáta hefur aldrei verið jafn mikill í maímánuði og var í nýliðnum mánuði. Alls var aflinn 2.378 tonn, sem er rúmum tvö hundruð tonnum meira en veiddist í maí 2012. Í heildina var viðmiðunar- afli mánaðarins aukinn um 69 tonn frá síðasta ári. Þá hefur meðalafli í róðri aldrei verið jafn mikill og í nýliðnum mán- uði, en hann var 601 kíló í ár á móti 527 kílóum í fyrra. Mestur afli í meðalróðri áður fékkst árið 2010, en þá var hann 542 kíló. Gott tíðarfar einkenndi að mestu sjósókn þennan mánuð og almennt gengu veiðarnar vel í maí. Eins og „rall“ hjá Hafró Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir góðan afla „til marks um mikla og vaxandi fiskgengd á mið- um smábátasjómanna hringinn í kringum landið“. Strandveiðarnar séu ákveðið „rall“ eins og Hafrann- sóknastofnun skipuleggur; sömu menn á sömu bátum, með sömu veiðarfæri og á sömu miðum ár eftir ár. Þetta sé áhugavert, sýni vel já- kvæða þróun á grunnslóð og von- andi verði tekið tillit til þess í ráð- gjöfinni fyrir næsta ár. Í maí lönduðu alls 547 bátar afla og var þátttakan í mánuðinum með því besta sem sést hefur. Flestir voru bátarnir árið 2012, en þá voru þeir 586. Í gær, á þriðja degi veiða í júní, hafði enn fjölgað í strandveiði- flotanum og höfðu þá 594 fengið leyfi og 566 voru byrjaðir veiðar. Örn á von á að bátunum fjölgi á næstunni. Í maímánuði var Grímur AK 1 aflahæstur á A-svæði með 8,5 tonn í 10 róðrum. Fengur ÞH 207 á B- svæði með 9,6 tonn í 14 róðrum, Þorbjörg ÞH 25 á C-svæði með 11 tonn í 15 róðrum og Ásbjörn SF 123 á D-svæði með 10 tonn í 12 róðrum. „Til marks um mikla og vaxandi fiskgengd“  Aldrei jafn mikill afli á strandveiðum í maímánuði Ljósmynd/Guðmundur Gauti Sveinsson Mokveiði Jóhann Jónsson, af bátnum Jóni Kristni SI-52, með einn vænan á bryggjunni á Siglufirði í gær. Strandveiðar -fjöldi báta í maí 467 470 586 542 510 446 547 Heimild: LS 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 20 15 20 16 Slysavarnafélagið Landsbjörg stefn- ir að því að hefja hálendisvaktina 1. júlí. Færðin gæti sett strik í reikn- inginn en líkurnar á því eru taldar litlar. Að sögn Jónasar Guðmundssonar hjá Landsbjörg verður líklega búið að opna nokkur svæði fyrir þann tíma. „Okkur sýnist að líklega verði búið að opna í Landmannalaugum og Sprengisandi að hluta til. Við vitum ekki enn með Dreka.“ Svæðin sem verða vöktuð í sumar eru Fjallabak, Sprengisandur og svæði norðan Vatnajökuls. Tveir hópar verða á Fjallabaki vegna mik- ils fjölda ferðamanna. Jónas segir að fólki hafi ekki fjölgað frá því í fyrra en verið sé að bæta aðstöðu á öllum stöðum til að takast á við hærri slysatíðni. „Á tveimur til þremur árum hefur hlutfall slysatengdra útkalla vaxið úr 20% í um 40-50%. Þetta eru rétt um 100 slys á tveimur mánuðum þannig að við erum að tala um 1,6 slys á hverjum degi.“ Hann bætir við að ekki sé útséð hver fjöldi verk- efna verði á þessu ári. „Í fyrra vor- um við með 1.700 verkefni en 2.000 árið áður. Við vitum ekki hvort ástæðuna má rekja til þess að há- lendið var opið skemur en venjulega í fyrra eða hvort forvarnarstarf er að hafa tilætluð áhrif.“ Hálendisvaktin verður virk út ágúst á Fjallabaki, viku skemur norðan Vatnajökuls og tveimur vik- um skemur á Sprengisandi. tfh@mbl.is Bæta aðstöðu vegna hærri slysatíðni  Hálendisvaktin hefst í byrjun júlí Jónas Guðmundsson Fjögur hvalaskoðunarfyrirtæki hlutu bláfánavottun Landsverndar nýverið. Bláfáninn er alþjóðleg um- hverfisvottun sem unnin er í sam- starfi við umhverfisáætlun Samein- uðu þjóðanna og alþjóðaferðamála- stofnunar. Vottunina fá fyrirtækin fyrir starf sitt í sjálfbærri ferða- þjónustu á hafi en vottunin er veitt ferðaþjónustufyrirtækjum, smá- bátahöfnum og baðströndum. Íslensku hvalaskoðunarfyr- irtækin Ambassador á Akureyri og Elding, Special Tours og Whale Safari í Reykjavík eru fyrstu hvala- skoðunarfyrirtækin í heiminum sem hljóta þessa vottun en samtals gera þau út 16 hvalaskoðunarbáta. Salóme Hallfreðsdóttir, verkefn- isstjóri Bláfánaverkefnisins, segir eflingu umhverfisvitundar vera rauða þráðinn í verkefninu. Fyrir- tækin hafa þurft að uppfylla ýmis skilyrði á sviðum ábyrgrar ferða- þjónustu, samfélagslegrar ábyrgð- ar, umhverfisstjórnunar, öryggis og þjónustu og umhverfisfræðslu til að fá vottunina. Auk þess hafi fyrir- tækin þurft að uppfylla skilyrði um hvernig þau umgangast hvali í skoðunarferðum sínum svo aðkoma þeirra valdi sem minnstu raski á náttúrunni. Vottunarferlið hvetji fyrirtækin til að sýna ábyrgð í rekstri og bæti ímynd þeirra út á við þar sem hún sýni fram á góðan vilja í umhverfismálum. elvar@m- bl.is Bláfánaathöfn Salome Hallfreðsdóttir verkefnastjóri bláfánans veitti framkvæmdastjórum hvalveiðiskoðunarfyrirtækjanna Bláfánann. Hvalaskoðunin umhverfisvottuð SNÚÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.