Morgunblaðið - 07.06.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Savoy model V458
L 179 cm leður ct.15. Verð 445.000,-
L 223 cm leður ct.15. Verð 495.000,-
Italia
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur gefið ungum einstaklingi
góða gjöf með því að kenna honum þol-
inmæði og sjálfsaga. Hann veit hverju hann
vill áorka og er staðráðinn í því að ná settu
marki.
20. apríl - 20. maí
Naut Hvert sem þú kemur, færðu það á til-
finninguna að þetta sé rétti staðurinn til að
vera á. Hins vegar er ekki allt framandi jafn-
gott og betra að vera á varðbergi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að forðast þá manneskju
sem vill setjast niður og ræða um samband.
Horfstu í augu við raunveruleikann og leystu
málin. Gættu þess að taka ekki of mörg verk-
efni að þér í einu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu ekki að fylgja einhverri stífri
áætlun því stundum er það bara ekki hægt.
Gættu þín að ákveða ekki neitt í skyndi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að gefa þér tíma til þess að
koma fjármálunum á hreint. Sveigjanleiki og
samstarfsvilji kalla fram hið gagnstæða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ferðalög eru þínar ær og kýr og þú
skalt bara láta það eftir þér að skipuleggja
draumaferðina hvað sem hver segir. Notaðu
tækifærið en farðu ekki yfir strikið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Spurðu líkamann: Hvernig líður þér? Og
leyfðu honum að svara. Láttu það ekki tefja
þig heldur haltu þínu striki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert eitthvað utan við þig og
getur hæglega týnt sjálfum þér ef þú ert ekki
á verði. Löngun þín til að eignast hlutina er
ekki í neinu samræmi við þarfir þínar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gætir komist að leyndarmáli í
dag. Haltu ótrauður áfram og þá mun fram-
haldið ljúkast upp fyrir þér. Ef bogmaðurinn
verður gæfu aðnjótandi á hann að grípa hana
og halda áfram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður dagur til fasteigna-
viðskipta eða annarra útgjalda sem tengjast
heimili þínu. Leitaðu ráða hjá hlutlausum að-
ila.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú flækist inn í mál sem á eftir að
valda þér miklu angri. Svona eins og ef hún
væri gestur í eigin brúðkaupi. En það er
óþarfi að vorkenna sér, þótt ekki sé unnt að
kaupa alla hluti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reiði getur leitt til þess að þú gerir
mistök í vinnunni í dag. Komdu ástvini þínum
á óvart. Líkur eru á einhverju óvæntu.
Sigurlín Hermannsdóttir sagði ígær „fréttir úr fásinninu“ á
Boðnarmiði:
Það orð notar Málfríður máluga
að menn sína kallar hún ’strjáluga’.
Hún komst ekki á deit
í kalllausri sveit
svo hún mætti með Sigurði sáluga.
Guðrún Bjarnadóttir bætti við:
Í Möllu er kjarnorkukraftur,
án karls, nema Siggi gangi aftur.
Sæl ein í rúmi
í rökkurhúmi.
Það nefnir ei nokkur kjaftur.
Þetta byrjaði á laugardaginn „í
góðra vina hóp“ þegar Ingólfur Óm-
ar skrifaði í Leirinn „veðrið leikur
við mann þessa dagana og gaman er
að gleðjast með hinu kyninu þó svo
ég skáli ekki en mér fannst það al-
veg tilvalið að setja það inn í vísuna:
Fjör og gleði freistar mín,
er furða þótt ég kveði.
Alltaf getur víf og vín
veitt mér stundargleði.“
Fía á Sandi svaraði:
Sunnanátt og sólin skín,
sólbráð uppi á fjöllum.
Best er að fá sér brennivín
og bjóða hressum köllum.
Ólafur Stefánsson var með á nót-
unum:
Á árstíðum er enginn stans,
– öll er hjörðin borin.
Undarlegt hve eðli manns
yppist svona á vorin.
Ingólfur Ómar spurði Fíu, hvort
sér yrði boðið, sem Ólafi Stefánssyni
leist ekki á og skaut inn vísu:
Þegar Ingólfur Ómar stór,
yl vill ná hjá konum,
sækir Fía brugg og bjór,
en býður ekki honum
Ingólfur Ómar svaraði að bragði
„þetta sleppur, Ólafur, – hér er ég í
góðum gír og hér drýpur smjör af
hverju strái.
Nú er ljóðaandinn ör,
óðar stefja vísur.
Kringum mig er feikna fjör
og föngulegar skvísur.“
En fékk síðan eftirþanka:
Allar helgar elska þjór
og eiga stund með konum.
Fía sækir brugg og bjór
og býður mér að vonum.
Fía á Sandi tók því vel:
Ég á ágætt eðalvín
sem eykur gleði og þróttinn.
Rauðvínsbeljan bíður þín
og björt er sumarnóttin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í fásinninu er
margt sem freistar
Í klípu
„FYRIRGEFÐU HVAÐ ÉG ER SEINN. MIKLA-
BRAUTIN VAR EINS OG BÍLASTÆÐI – SEM ER
VÍST ÓLÖGLEGT. ÉG FÉKK STÖÐUMÆLASEKT.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ER ÞETTA ÞITT LOKASVAR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera góður granni.
EKKERT GETUR
STÖÐVAÐ MIG!
EÐA
STARTAÐ MÉR
ÓVINURINN
BÝR SIG TIL
ÁRÁSAR!
HVAÐ Á
ÉG AÐ
GERA?
VERTU
FYRRI
TIL AÐ
SLÁ!
Víkverji vonar af heilum hug aðhjólreiðamenn séu með allar líf-
tryggingar sínar í lagi þegar þeir
halda af stað út í umferðina, hvort
sem það er innanbæjar eða á þjóð-
vegunum. Hætta á slysum er líklega
minni innanbæjar, þar sem hjóla-
stígar hafa verið lagðir í auknum
mæli, en á þjóðvegunum. Þar eru
vegir víðast hvar ekki hannaðir með
tilliti til umferðar bæði ökutækja og
reiðhjóla. Víkverji varð svo sannar-
lega vitni að því um helgina er leið
hans lá um Hvalfjörðinn. Veðrið var
gott og því fjölmargir hjólreiða-
menn á ferðinni. Víkverji var um
borð í rútu og í minnst tvígang
munaði litlu að stórslys yrðu.
x x x
Í báðum tilvikum birtust hjólreiða-menn fyrir framan rútuna á
blindhæð og bílar að koma á móti.
Bílstjórar ökutækjanna urðu að
snarhemla því að ekki var svigrúm
til að mætast með hjólreiðafólkið á
milli, jafnvel þó að það reyndi að
fara út í kant. Vegurinn um Hval-
fjörð er þröngur og því geta skapast
hættulegar aðstæður þegar bílar og
reiðhjól mætast.
x x x
Víkverji myndi ekki fyrir sitt litlalíf þora að hjóla á hringvegin-
um, hvað þá um þrönga þjóðvegi
eins og um Hvalfjörðinn. Fyrst
þyrfti þá að koma upp hjólastígum
meðfram vegunum. Á meðan er
öruggara að hjóla um Fossvoginn
eða Laugardalinn, fjarri ys og þys
bílaumferðarinnar.
x x x
Til að taka af allan vafa hefur Vík-verji ekkert út á hjólreiðamenn
að setja og er mjög annt um heilsu
þeirra og velferð. Þeir eiga bara
ekki samleið með bílum, svo einfalt
er það. Annars er Víkverji að spá í
að fara að endurnýja hjólfákinn
sinn, sem orðinn er úr sér genginn
og ryðgaður, svona dálítið eins og
eigandinn. Kunningi Víkverja upp-
lýsti um eitt mikilvægt atriði, sem
þyrfti að framkvæma áður en hjólið
yrði keypt, þ.e. að láta mæla klof-
hæðina. Það er í góðu lagi, svo lengi
sem mittismálið verði ekki mælt!
víkverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóh. 1:12)