Morgunblaðið - 07.06.2016, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 2016
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
Nolta
Okkar megin áherslur eru:
◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf
Sigurjón
Þórðarson
Sími: 893 1808 •
sigurjon.thordarson@nolta.is
Friðfinnur
Hermannsson
Sími: 860 1045 •
fridfinnur.hermannsson@nolta.is
Ráðgjöf og þjálfun nolta.is
Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki
Frekari upplýsingar á nolta.is
Nolta er á Facebook
Viltu styrkja liðið þitt?
Team - Navigation er kröftug og skilvirk tveggja daga
vinnustofa þar sem liðið nær sameiginlegri tengingu og
kemur helstu verkefnum sínum í bullandi farveg
g p g
Árni
Sverrisson
Sími: 898 5891 •
arni.sverrisson@nolta.is
B
ra
nd
en
b
ur
g
Ekki laumupokast
Breyting á endurvinnslustöðvum. Gerðu öllum auðveldara
fyrir og komdumeð blandaða úrganginn í glærum poka
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
„Það er alltaf leiðinlegt og erfitt að
þurfa að aflýsa eða fresta tónleik-
um. Þetta verkefni hefur yfirtekið
líf okkar vikum saman og því urð-
um við að vera saman á tónleika-
kvöldinu sjálfu, okkur til sárabótar
og notuðum það til að vinna áfram
að verkefninu,“ segir Hallveig Rún-
arsdóttir söngkona, en ekki reynd-
ist unnt að sýna Mistakasögu mann-
kyns á nýafstaðinni Listahátíð í
Reykjavík eins og til stóð. „Vegna
veikinda á lokametrunum náðum
við ekki að klára verkefnið, en æf-
ingatíminn var af skornum
skammti þar sem hluti hópsins var
erlendis og kom ekki til landsins
fyrr en örskömmu fyrir tónleika,“
segir Hallveig og bendir á að
ákveðið hafi verið að fresta tónleik-
unum til haustsins, en þeir verða
fimmtudaginn 22. september í
Gamla bíói.
„Þetta verður mjög spennandi
þegar þar að kemur,“ segir Hall-
veig og þakkar forsvarsmönnum
Gamla bíós fyrir liðlegheit sín.
„Þeir voru svo indælir að flytja tón-
leikana til á síðustu stundu án þess
að Listahátíð þyrfti að borga sér-
staklega fyrir það,“ segir Hallveig
og tekur fram að tónleikarnir séu
eftir sem áður unnir í samstarfi við
Listahátíð. „Við hlökkum til hausts-
ins þegar við kýlum á þetta. Þetta
verður rosa gaman. Tónleikarnir
verða bara ennþá betri,“ segir Hall-
veig og tekur fram að ekki spilli
fyrir að fá að melta hlutina og
vinna þá áfram. „Hefðu veikindin
ekki sett strik í reikninginn í liðinni
viku hefðum við getað boðið upp á
mjög flottan konsert, en við höldum
áfram að vinna efnið og lofum
ennþá betri konsert í haust.“
Frestað til hausts
Morgunblaðið/Ómar
Söngkona Hallveig Rúnarsdóttir.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Leikstjórinn og leikarinn Kári Við-
arsson fór beint eftir nám sitt í stór-
borginni London og út í Rif á Snæ-
fellsnesi til að
setja upp leiksýn-
ingar. Í London
búa 8,5 milljónir
manna en í Rifi
búa 170 manns.
Í kvöld verður
sýningin One
night stand frum-
sýnd á ensku hjá
Frystiklefanum í
Rifi, en svo kall-
ast leikfélagið sem hefur verið ansi
öflugt undanfarin ár á Snæfellsnes-
inu.
75-90 leiksýningar í sumar
Miðvikudaginn síðastliðinn, þann
1. júní, hófst nýtt sumarleikár
Frystiklefans í Rifi. Leikár Frysti-
klefans eru mánuðirnir júní, júlí og
ágúst þar sem fimm leiksýningar
verða leiknar í hverri viku. Þar að
auki tekur leikhúsið við sérpönt-
unum á leiksýningum og má því bú-
ast við að sýningar hússins verði á
milli 75-90 í sumar.
Sýningarnar verða ýmist sýndar á
ensku eða íslensku, fastar kvöldsýn-
ingar á ensku en sérpantaðar sýn-
ingar fyrir íslenska hópa á íslensku.
Í tengslum við þetta nýja leikár
hefur Frystiklefinn ráðið til starfa 4
atvinnuleikara sem taka þátt í sýn-
ingum hússins og öllum öðrum verk-
efnum þess nú í sumar. Leikarar
Frystiklefans í sumar eru: Anna
Margrét Káradóttir, Ásgrímur Geir
Logason, Júlíana Sara Gunnars-
dóttir, Vala Kristín Egilsdóttir og
Kári Viðarsson (sem jafnframt er
eigandi og listrænn stjórnandi húss-
ins).
Stjórnandinn er frá Hellissandi
Aðspurður hver sé uppruni
Frystiklefans segir Kári Viðarsson
að hann sjálfur hafi alist upp á þessu
svæði, hann sé frá Hellissandi sem
er bara við hliðina.
„Ég byrjaði að gera leiksýningar
þarna 2010, strax og ég kom heim úr
námi,“ segir Kári. „Ég fékk
skemmtilegt rými til að vinna í og
svo vatt þetta uppá sig og núna er
þetta orðið að svolítið stóru dæmi.
Mér þykir vænt um Rif. Ég var
mikið þar sem barn og mér fannst
upplagt að byrja minn atvinnuleik-
ara feril heima hjá mér. Það er frá-
bært að vinna þarna og þægilegt að
skapa þarna. Mér finnst æði að geta
sinnt minni vinnu á þessum stað sem
mér þykir svo vænt um. Svo finnst
mér líka mikilvægt að menningin
eigi styrkar stoðir úti á landi sem
séu studdar af atvinnumönnum.
Þetta þarf ekki að eiga sér stað á
stóru stöðunum. Ef hlutirnir eru
gerðir af alúð og metnaði þá virka
þeir, hvar sem þú ert svosem stadd-
ur á landinu eða í heiminum.
Þetta eru allt atvinnuleikarar sem
ég hef fengið til liðs við mig. Allt
menntaðir leikhúslistamenn.“
Leikskólar og leiklist
Fyrir utan metnaðarfulla dagskrá
fyrir fullorðna kemur Frystiklefinn
að sýningum fyrir aðra íbúa nær-
samfélagsins. Frystiklefinn fer í
leikskóla og á dvalarheimili. „Já, við
höfum farið í leikskólana og líka
komið upp smá leiklistarskóla fyrir
krakka á grunnskólaaldri,“ segir
Kári. „Við erum líka með dagskrá á
dvalarheimilinu í Ólafsvík.“
Metnaður er fyrir mestu
„Núna í ár er þetta í fyrsta skiptið
sem við erum með svona margar
sýningar í gangi á sama tíma,“ segir
Kári. „Maður er svolítið þreyttur á
því hvað góðir gagnrýnendur eru
latir við að koma hingað. Við erum
með sýningar á pari við atvinnuleik-
húsin og þessvegna frekar þreytandi
hvað það er erfitt að fá þá hingað.
Sýningarnar verða oftast á ensku í
sumar af því að á Snæfellsnesinu eru
4.000 heimamenn en á sumrin eru
allt í einu 200 þúsund ferðamenn á
ferli.
Við munum líka sýna Mar sem er
frá fyrra ári og var þá tilnefnd til
Grímuverðlaunanna. Við tókum á
móti 2.500 Íslendingum á sýninguna
í fyrra, sem er tuttugufaldur íbúa-
fjöldi í Rifi.
Í júlí munum við síðan frumsýna
Genesis, sem er trúðasýning. Þetta
er einnar konu sýning. Vala Kristín
Egilsdóttir leikur trúðinn.
Hún og ég erum höfundarnir,
hugmyndin er hennar og ég kem síð-
an inní ferlið og er leikstjórinn og við
smíðum handritið saman.“
Fallegt fólk Mynd úr sýningunni Hero, fyrstu sýningunni sem Frystiklefinn sýndi og er enn í sýningu hjá leikfélag-
inu og verður sýnd alla miðvikudaga í sumar. Á þriðjudögum er Einnar nætur gaman sýnt í allt sumar.
Ískaldar leiksýningar
Amma skilur lífið Dídi amma er einn aðalkarakterinn í sýningu Frystiklef-
ans Einnar nætur gaman. Amman er að sjálfsögðu á Tinder og fílar það.
London, leikskólar og Rif Á leiksýninguna kom
tuttugufaldur íbúafjöldi bæjarins Frost eða frystiklefi
Kári Viðarsson