Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. J Ú N Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 134. tölublað 104. árgangur
FRAM UNDAN ER
SKEMMTUN SEM
EKKI GLEYMIST
ÞEKKTIR SEM
MINNA ÞEKKTIR
KOMA FRAM
HEIÐDÍS HANNA
OG STEINAR LOGI
HLUTU STYRK
SUMARMÖLIN Á DRANGSNESI 39 UNGIR TÓNLISTARMENN 3824 SÍÐNA SÉRBLAÐ UM EM
Vilhjálmur A. Kjartansson
Viðar Guðjónsson
Guðmundur Hilmarsson
Um 27 þúsund Íslendingar sóttu um
miða á Evrópumótið í knattspyrnu
karla, sem hefst í Frakklandi í kvöld,
eða um 8% þjóðarinnar. Þetta er 15.
úrslitakeppni EM en opnunarleikur
mótsins er á milli Frakka og Rúm-
ena. Síðan rekur hver leikurinn ann-
an þar til kemur að úrslitaleiknum
10. júlí. Ísland leikur fyrsta leikinn
gegn Portúgal á þriðjudag.
Talið er að Íslendingar muni á
keppnisstað eyða 5-6 milljörðum
króna.Björn Berg Gunnarsson,
fræðslustjóri VÍB, segir að sam-
kvæmt UEFA muni hver stuðnings-
maður sem sækir Frakkland heim
eyða að meðaltali 93 þúsund krónum.
„Við vitum í raun ekkert hve miklu
Íslendingar eiga eftir að eyða á
mótinu og það verður líka að hafa í
huga að inni í þessari tölu er hvorki
flug né miðaverð á leiki.“
Dr. Sigurður Jóhannesson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
HÍ, segir ljóst að landsmenn muni
eyða einhverjum milljörðum en það
hafi ekki nein veruleg áhrif á hag-
kerfið.
Um 50 blaðamenn munu fylgja
landsliðinu eftir, helmingurinn verð-
ur erlendir blaðamenn samkvæmt
upplýsingum frá KSÍ. Einar Björn
Árnason, kokkur landsliðsins, fékk
næringarfræðing með sér til að raða
réttu magni af fitu, próteini og kol-
vetnum fyrir komandi átök.
8% þjóðarinnar á EM
15. Evrópumótið í knattspyrnu hefst í kvöld Um 27 þúsund Íslendingar sóttu
um miða á leiki Íslands Talið að eyðsla þeirra í Frakklandi nemi milljörðum
MEM »4, 16, 21 og Íþróttir
EM í Frakklandi
» Flautað verður til leiks í
kvöld í París þar sem Frakkar
og Rúmenar mætast.
» Kostnaður Íslendinga sem
fylgja landsliðinu nemur ekki
undir 5-6 milljörðum.
» Um 50 blaðamenn munu
fylgja landsliðinu eftir.
Sérfræðingar Hafrannsóknastofn-
unar kynntu í gær ráðgjöf sína fyrir
næsta fiskveiðiár. Samkvæmt henni
verða aflaheimildir í þorski auknar
um 5.000 tonn, fara í 244 þúsund
tonn. Óbreytt ráðgjöf er í ufsa, eða
55 þúsund tonn, og aflahámark í ýsu
lækkar um 1.800 tonn, fer niður í
34.600 tonn.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi,
SFS, áætla að tekjuaukning af aukn-
um veiðiheimildum umfram sam-
drátt gæti numið um milljarði króna.
Aukinn þorskkvóti skilar um tveim-
ur milljörðum króna en á móti er
samdráttur í löngu, ýsu og íslenskri
sumargotssíld. Formaður SFS, Jens
Garðar Helgason, segir að þar á bæ
hafi verið búist við meiru, einkum í
þorski. Þá segjast smábátasjómenn
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
ráðgjöfina.
Fram kom á kynningarfundi sér-
fræðinga Hafró í gær að hrygn-
ingarstofn þorsks hefði stækkað á
undanförnum árum og hefði ekki
verið stærri í 40 ár. Veiðihlutfall hef-
ur lækkað og er það lægsta á því
tímabili sem gögnin ná yfir. Nýliðun
þorsks hefur verið nokkuð stöðug
frá árinu 1998. aij@mbl.is »6
Búist
var við
meiru
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Fiskveiðar Hafró hefur kynnt ráð-
gjöf sína fyrir næsta kvótaár.
Aflaverðmæti gæti
aukist um milljarð
Leikskólinn Askja útskrifaði í gær þau börn sem
yfirgefa nú leikskólann og halda á vit ævintýr-
anna í grunnskólunum. Voru börnin glöð og
spennt yfir að takast á við nýjar áskoranir. Dóra
Margrét Bjarnadóttir, skólastjóri Öskju, segir að
dagurinn hafi verið dásamlegur, veðrið hafi leik-
ið við börn og foreldra og kennarar kvatt út-
skriftarnemendur með sorg í hjarta. „Við gerum
svolítið úr þessum áfanga því að þetta er stórt
skref,“ segir Dóra.
Hvert barn fékk meðal annars stein og birki-
hríslu auk umsagnar og veglegs faðmlags frá
kennurum í kveðjugjöf. „Steininn fær hvert og
eitt barn sem það skreytir með fallegum hugs-
unum,“ segir Dóra, ánægð með útskriftina.
Leikskólinn kvaddur og haldið á vit ævintýranna
Morgunblaðið/Eggert
„Þegar fólk
ánetjast ein-
hverju er það
vanalega að flýja
tilfinningalegan
sársauka. Fyrsta
spurningin er því
ekki af hverju
fíkn heldur af
hverju sársauki,“
segir Gabor
Maté, læknir frá Kanada, sem mun
um helgina halda fyrirlestra á sviði
ávanabindingar.
Maté er þekktur fyrir rannsóknir
sínar á fíkn og þær meðferðir sem
hann beitir, en viðburðurinn fer
fram í Hörpu í Reykjavík. »14
Gabor Maté heldur
fyrirlestra um fíkn
Gabor Maté
„Þetta er í fyrsta lagi öryggismál
og í öðru lagi er sorglegt að þessari
braut sé lokað,“ segir Leifur Hall-
grímsson, framkvæmdastjóri Mý-
flugs, en félagið sinnir nær öllu
sjúkraflugi innan Íslands sam-
kvæmt samningi við heilbrigðis-
ráðuneytið. Hæstiréttur staðfesti í
gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
um að ríkinu sé skylt að loka norð-
austur-/suðvesturflugbrautinni á
Reykjavíkurflugvelli innan 16
vikna. Ólöf Nordal innanríkisráð-
herra segir að niðurstaða Hæsta-
réttar verði virt.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, er mjög ánægð-
ur með niðurstöðu Hæstaréttar.
„Mér finnst hún skýr og þetta er
fullnaðarsigur í málinu. Megin-
niðurstaðan er að þessir samningar
halda og brautinni verður lokað.“
»10
Sorglegt að neyðarbrautinni verði lokað,
segir framkvæmdastjóri Mýflugs
Morgunblaðið/RAX
Vatnsmýrin Einni braut Reykjavíkur-
flugvallar ber að loka í haust.
Vísinda- og tæknimönnum Orku-
veitu Reykjavíkur (OR), Háskóla Ís-
lands o.fl. tókst að binda allt að 95%
af gróðurhúsalofttegundinni koltví-
sýringi (CO2) sem steintegund í bas-
altberglögunum við Hellisheiðar-
virkjun. Ferlið tók einungis tvö ár
en áður var talið að það tæki aldir
eða árþúsundir. Niðurstöðurnar
gefa til kynna að fundið sé öflugt
vopn gegn loftslagsvandanum.
„Við leystum koltvísýringinn upp
í vatni sem dælt var niður í jörðina.
Þegar vatnið kemst í snertingu við
ungt og hvarfgjarnt basaltið leysist
bergið upp og við það losna efni
eins og kalsíum, magnesíum og
járn. Efnin bindast uppleysta
koltvísýringnum og mynda m.a.
karbónatsteindir,“ sagði dr. Edda
Sif Pind Aradóttir verkefnisstjóri.
Ein helsta steindin sem myndast er
kalsíumkarbónat. »4
Niðurdæling koltvísýrings í vatni gæti
reynst öflugt vopn gegn loftslagsvanda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hellisheiðarvirkjun Með niðurdælingu
tókst að binda gróðurhúsagasið í bergi.