Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 M atthías fæddist á Grenivík 10.6. 1926 og ólst þar upp. Hann var ungur er hann missti föður sinn, sem var einn fjögurra sem komust lífs af eftir miklar þrekraun- ir er þilskipið Talismann fórst við Súgandafjörð en náði aldrei fullri heilsu. Eftir þá raun ólst Matthías upp á Miðgörðum með móður sinni og systkinum, á heimili móðurforeldra sinna, Friðriku Kristjánsdóttur hús- freyju og Stefáns Stefánssonar út- gerðarmanns. Matthías fór til sjós um fermingu, reri á Gunnari TH, með Stefáni, móðurbróðir sínum, síðar á Verði TH og fleiri skipum og fór síðan á Svalbak EA. Matthías gerðist lögreglumaður á Akureyri 1955: „Ég ætlaði upp- haflega að leysa af í lögreglunni í þrjá mánuði en átti eftir að starfa þar í rúm 42 ár, lengst af sem varð- stjóri. Í þá daga var það ekki aðeins löggæsla sem fylgdi starfinu, því að akstur sjúkrabifreiðar tilheyrði því. Þegar útkall kom og einn var á vakt var skellt í lás eða fangar í fangahúsinu beðnir að svara í sím- ann. Þetta gekk vel og var aldrei til stórra vandræða.“ Matthías stundaði frjálsar íþrótt- ir, skíðagöngu og knattspyrnu, lék með Magna á Grenivík og síðar KA og vann til fjölda titla í ýmsum grein- um. Hann er mikill áhugamaður um laxveiði, var einn af stofnendum Flúða á Akureyri, sat þar í stjórn til fjölda ára, var einn af stofnendum og í stjórn Sjóstangaveiðifélags Akur- eyrar og vann þar til fjölda verð- launa. Hann varð í tvígang Evrópu- meistari í sjóstangaveiði. Matthías hefur verið virkur í starfi Oddfellow-hreyfingarinnar um langt árabil. Fjölskylda Eiginkona Matthíasar er Jóhanna María Pálmadóttir, f. 28.8. 1927, fyrrv. aðalbókari. Foreldrar hennar voru Guðrún Jóhannesdóttir, f. í Litla-Laugardal í Tálknafirði 21.9. 1904, d. 23.3. 1993, húsfreyja á Akur- eyri, og Pálmi Friðriksson, f. á Naustum við Akureyri 29.10. 1900‚ d. 16.2. 1970, útgerðarmaður og sjó- maður á Akureyri. Börn Matthíasar og Jóhönnu Maríu eru 1) Pálmi Matthíasson, f. 21.8. 1951, sóknarprestur í Bústaða- prestakalli í Reykjavík, en eiginkona hans er Unnur Ólafsdóttir, kennari og verslunarmaður, og er dóttir þeirra Hanna María, f. 25.9 1975, viðskiptafræðingur, en maður henn- Matthías Einarsson, fyrrv. lögregluvarðstjóri og sjómaður – 90 ára Myndarlegir lögæslumenn Matthías með sonum sínum í lögreglubúningum, Gunnari Rúnari, Stefáni Einari og Pálma. Þrír mánuðir urðu að 42 árum við löggæslu Við vorum að koma frá Ameríku í fyrrinótt með börnum, barna-börnum og mökum, ellefu manns allt í allt, segir SigurbjörgSnorradóttir, sem er sextug í dag. „Við vorum í Kissimmee í Florida að fagna sextugsafmælum okkar Sveins. Ég reikna með að vera með smá boð fyrir vini og vandamenn fyrir sunnan og keyra svo norður á sunnudaginn,“ en Sigurbjörg býr á Krossum á Árskógsströnd í Eyjafirði þar sem hún er fædd og uppal- in. Hún er dóttir hjónannan Snorra E. Kristjánssonar og Sigurlaugar Gunnlaugsdóttur. Sigurbjörg vinnur í dag við umönnun aldraðra á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík en hefur unnið við eldamennsku og matseld í fjölda ára. Hún er mikill náttúruunnandi og þekkt berjakona og tínir ber víða um land. „Það er alltaf stefnt á að taka berjafrí á hverju hausti. Ég er alveg heltekin af berjum sama hvernig ber það eru, fer víða á Vestfirði og bara hvert sem ber eru að finna. Ég nýti líka ýmislegt fleira úr náttúrunni. Það hefur orðið svo mikil vakning að undanförnu um nýtingu náttúrunnar í matseld, bruggun og fleira.“ Eiginmaður Sigurbjargar er Sveinn Kristinsson, sjómaður á Björg- vin EA, Dalvík. Börn þeirra eru Linda Björk, kennari, maki hennar er Kristmann Þór Pálmason og eiga þau fjögur börn; Kristján Eldjárn, maki hans er Leifur Guðni Grétarsson. Einnig áttu þau Sigurbjörg og Sveinn soninn Svein Birki, en hann lést árið 2001. Sigurbjörg lítur björtum augum til framtíðar og hlakkar til að halda áfram að njóta lífsins í faðmi fjölskyldu og vina. Hjónin Sveinn og Sigurbjörg heima á Krossum. Mikil berjakona og náttúruunnandi Sigurbjörg Snorradóttir er sextug í dag Sigrún Björk Björnsdóttir og María Sigurðardóttir héldu tombólu við verslunina Krónuna á Selfossi. Þær söfnuðu 2.632 krónum sem þær gáfu til Rauða krossins. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.iswww.kvarnir.is 20 ÁRA 1996 2016 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is 70 kr. stk. Nýt t Kvarnatengi fyrir zetur og sakkaborð Stærðir eru: 12 S, 15 S, 18 S, 20 S, 25 S og 12 B, 15 B, 18 B, 20 B, 25 B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.