Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Ófeigur Leikarar Hörðuri Bent Víðisson, Helga Steffensen og Gígja Hólmgeirsdóttir verða á Brúðubílnum í sumar. býr til brúðurnar og leikmyndina. Sigrún Edda Björnsdóttir er leik- stjóri sýningarinnar og hafa þær Helga sett saman fjölda sýninga í árabil. Galdur þegar gulu vestin birtast í halarófu „Þetta er alveg yndislegt enda sæki ég í þetta aftur og aftur. Það eru galdrar þegar börnin byrja að koma. Þegar maður sér lítil gul vesti koma í halarófu úr öllum átt- um er það algjör draumur. Það er svo gaman að leika fyrir yngstu börnin því þau eru svo einlæg og móttækileg. Þarna er galdurinn,“ segir Gígja Hólmgeirsdóttir bílstjóri Brúðubílsins í ár. Hún hefur starfað í Brúðubíln- um í fimm ár. Hún er einnig brúðu- leikari og bregður sér inn í bíl og sinnir því hlutverki með Helgu og Herði Bent Víðissyni. Síðustu tvö ár hefur hún keyrt bílinn, sett upp leikmyndina og segja má að hún sé í raun eins og tæknimaður í leikhúsi. Áður lék hún stóru brúðurnar sem bregða á leik fyrir utan bílinn. Gígja, eins og fleiri Íslendingar, kynntist Lilla í Brúðuleikhúsinu á unga aldri. Hún segir hann vera í miklu uppáhaldi og ber ótta- blandna lotningu fyrir hon- um. Þróað mig sem leikara „Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á leiklist og fannst spennandi að fá tækifæri til að vera með Brúðubílnum sem ég hef fylgst með alveg frá því ég var lítill,“ segir Hörður Bent Víðisson sem fer með hlutverk stóru brúðanna í leiksýn- ingunni og bregður sér í nokkur ólík gervi. Þetta er þriðja sumarið sem hann er með Brúðubílnum. Hann viðurkennir að það hafi komið sér töluvert á óvart hversu krefjandi hlutverkin eru. Persón- urnar sem hann leikur eru allar ólíkar og líkamlegar hreyfingar greina á milli þeirra. Hann notar ekki röddina því búið er að taka upp það sem brúðurnar segja í leikrit- inu. „Þessi þrjú sumur í Brúðubíln- um hafa þróað mig mikið sem leik- ara,“ segir Hörður. Hann segist einnig búa vel að því að vera í ágætu formi en hann er í parkour-hópnum Flowon sem tók þátt í Ísland got talent. Hópurinn kemur reglulega saman og æfir en um leið og Hörður kynntist parkour hætti hann í fim- leikum sem hann hafði stundað um árabil. Leiklistin á hug hans allan en hann hefur einnig leikið með Götu- leikhúsinu í Kópavogi og var á leik- listabraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Í ágúst held- ur hann út til Los Ang- eles í leiklistaskólann Stella Adler í þriggja ára nám. „Þetta hefur verið draumur minn frá því ég man eftir mér að fara út og mennta mig í leiklist. Ég veit að þetta er mikil áskorun að fara einn út og bjarga sér en ég hlakka til,“ segir Hörður og bætir við: „Ég ætla að gera það sem ég hef áhuga á. Mér finnst það vera tilgangur lífsins.“ Allar sýningar Brúðubílsins eru ókeypis. Hægt er að sjá sumar- dagskrána á vefnum brudubill- inn.is og einnig á facebook-síðunni undir Brúðubíllinn brúðuleikhús. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Klippiverksmiðju fyrir krakka í Gerðarsafni verður á morgun laug- ardaginn, 11. júní, kl. 13-15. Í klippi- verksmiðjunni verður leikið með orð og klippimyndir í anda yfir- standandi sýningar Söru Björns- dóttur. Hvernig spila orð og myndir saman? Hvaða áhrif hefur útlit texta á lesandann? Er hægt að lesa myndir? Gott væri ef þátttakendur kæmu með tímarit með sér til að klippa upp úr. Smiðjan hentar allri fjölskyldunni og er opin öllum frá kl. 13-15. Smiðjunni stýra Halla Þórlaug Óskarsdóttir rithöfundur og Linn Björklund myndlistar- maður. Klippiverksmiðjan verður í Stúd- íói Gerðar á neðri hæð safnsins og má þar einnig gera veggverk í anda víraskúlptúra Gerðar Helgadóttur. Sýning Söru Björnsdóttur Flâneur, safneignarrýmið + Safneignin og Garðskálinn eru einnig opin. Krakkar í Gerðarsafni Morgunblaðið/Ómar Klippa Gott er að taka tímarit með. Klippiverk- smiðja Kynnir: Heimili í sólinni á Spáni Komdu og spjallaðu við okkur á Centerhotel Plaza Og fáðu bæklingana okkar frítt! 11. og 12. júní Frá kl. 10:00 til 18:00 Aðalstræti 4 – 101 Reykjavík Skráðu þig hér: www.medlandspann.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.