Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Mánaðarlaun 1.221 þúsund 2. 15 best klæddu konurnar … 3. Ættingjar stúlkunnar sóttu … 4. Sakfelldir fyrir hópnauðgun »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Grill- og tónlistarhátíðin Kótelett- an verður haldin í 7. sinn á Selfossi um helgina, 10.-12. júní. Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma fram á hátíðinni eru Páll Óskar, Skítamórall, Glowie, Geirmundur Valtýsson, Love Guru, Mánar og Úlfur Úlfur. Morgunblaðið/Kristinn Grillað og tónlistar notið á Kótelettunni  Blóðdropinn, verðlaun Hins ís- lenska glæpafélags fyrir bestu íslensku glæpasögu ársins 2015, verður af- hentur í dag kl. 17 í Borgarbókasafninu menningarhúsi í Grófinni. Handhafi Blóðdropans er fulltrúi Íslands til Glerlykilsins, nor- rænu glæpasagnaverðlaunanna. Meðal tilnefndra í ár eru Ragnar Jónsson, Sólveig Pálsdóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson, Stefán Máni, Yrsa Sigurðardóttir og Arnaldur Indriðason. Hver hlýtur Blóðdropann í ár?  Tónlistarkonurnar Bláskjár, ÍRiS og hljómsveitin Grúska Babúska halda tónleika á Bar 11 í miðbæ Reykjavíkur í kvöld kl. 21 og er aðgangur að þeim ókeypis. Bláskjár og ÍRiS eru báðar liðsmenn í Grúsku Babúsku. Bláskjár mun flytja rafskotna alþýðutónlist af nýútkominni stuttskífu sinni, As I Pondered These Things, og ÍRiS mun taka við með rafræn- um og dulúðugum út- setningum af væntanlegri útgáfu. Bláskjár, ÍRiS og Grúska Babúska Á laugardag Austlæg átt, skýjað að mestu og lítils háttar rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands en þurrt annars staðar. Á sunnudag Austan og norðaustan 5-10 m/s. Skýjað með köflum eða bjartviðri og yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum eða bjartviðri en sums staðar þokuloft úti við sjávarsíðuna. Hiti 12 til 20 stig. VEÐUR Jonas Hector er einn af áhugaverðari leikmönnum í landsliðshópi Þjóðverja á Evrópumótinu i Frakklandi, ekki síst vegna þess að þessi tegund af fótbolta- manni ætti ekki að vera til lengur. Hector er eini lands- liðsmaður Þýskalands sem aldrei hefur eytt tíma í ung- lingaakademíu, þar sem hann lék með fimmtu- deildarliði SV Auersmacher til tvítugs. »4 Þessi tegund ætti ekki að vera til Fimmtánda úrslitakeppni Evrópu- móts landsliða í knattspyrnu hefst í kvöld, en að þessu sinni er keppnin haldin í Frakklandi. Opnunarleikur mótsins verður viðureign gestgjaf- anna og Rúmena, sem fram fer á Stade de France- leikvanginum í Saint-Denis, í útjaðri Parísar, og síðan rekur hver leikurinn annan þar til kemur að úrslitaleiknum, sem fram fer á sama velli hinn 10. júlí. »1 Fimmtánda Evrópu- keppnin hefst í kvöld Daninn Nikolaj Hansen var hetja Vals- manna í gærkvöldi þegar hann skor- aði sigurmark liðsins, 3:2, á síðustu mínútu í framlengingu gegn Víkingi í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu karla. Selfoss vann Víði úr Garðinum, 4:3, eftir framlengingu á Selfossi og ÍBV lagði Stjörnuna, 2:0. Þá lögðu Blikar lið ÍA, 2:1, í fram- lengingu á Akranesi. »2-3 Dani var hetja Vals- manna í Víkinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Söngvarinn Jónas R. Jónsson skaust upp á stjörnuhimininn með sveitinni Flowers fyrir um hálfri öld. Hann hefur engu gleymt og kemur fram með Bandinu á tónleikum á Café Rosenberg um helgina. Uppselt er í kvöld og örfáir miðar eftir á auka- tónleikana annað kvöld. „Það er ekki öll vitleysan eins,“ segir Jónas um komandi gigg og seg- ir að hugmyndin hafi orðið til í matar- boði með Gunnari Þórðarsyni og Agli Eðvarðssyni fyrir tveimur til þremur árum. „Við vorum að syngja gömlu amerísku söngbókina og þá segir Gunni: „Eigum við ekki að gera eitt- hvað, stofna band?“ Þetta hljómaði vel og hér erum við með Bandið.“ Jónas segir að þeir hafi byrjað á því að kalla á Gunnar Hrafnsson bassaleikara, Scott McLemore trommara og Hjört Ingva Jóhanns- son hljómborðsleikara. Eftir að hafa rennt í nokkur lög hafi þeir viljað bregða út af vananum og fara meira út í rokkið. Þeir hafi kastað á milli sín hugmyndum og þegar lögin hafi verið ákveðin hafi Gunni skrifað þau út. Síðan hafi bakraddasöngvurunum Gísla Magna Sigríðarsyni, sem var Salóme innan handar í Eurovision, Þóru Gísladóttur og Fanný Kristínu Tryggvadóttur verið bætt í hópinn. Æfingar hafa gengið vel og meðal annars var rennsli kl. átta til tíu í fyrradag. „Ég hef aldrei byrjað að syngja klukkan átta að morgni fyrr,“ segir Jónas. Söngvari alla ævi Jónas hefur sungið frá því hann man eftir sér. „Við vorum þrír strák- ar í kórnum í Breiðagerðisskóla,“ rifj- ar hann upp. Bætir við að á unglings- árunum hafi leiðin legið í bílskúrs- band og eitt hafi leitt af öðru, en Jónas var meðal annars í 5 Pens, Tox- ic, Flowers, Náttúru og Brimkló. „Ég var heppinn að vera á réttum aldri á uppgangsárum Bítlanna, því tónlistin skipaði svo ríkan sess í lífi ungmenna, allir voru á sömu bylgju,“ segir söngvarinn. Jónas segir að þetta hafi verið skemmtilegir tímar og erfitt að gera upp á milli banda og viðburða. „Upp- takan í London á fjögurra laga plötu með laginu „Slappaðu af“ er eftir- minnileg, því það var svo mikið ævin- týri,“ segir hann. „Annars var bæjar- lífið svo frjótt, margar hljómsveitir og stanslaust fjör, meira að segja böll á milli klukkan þrjú og fimm í Lídó.“ Þótt langt sé um liðið síðan Jónas söng fyrsta lagið segir hann mikil- vægt að halda í barnið í sér og njóta sín sem best. „Auðvitað er maður að ögra sjálfum sér en þetta er spurning um að verða ekki gamall fyrir aldur fram,“ segir hann. „Það er mikilvægt að hætta ekki að leika sér.“ Í því sam- bandi bendir hann á að nýlega hafi verið boðaður kaffifundur hjá bekkjarfélögunum og átti að hittast klukkan fjögur á miðvikudegi, enda flestir hættir að vinna vegna aldurs. „Ég sendi póst og sagðist því miður ekki komast því ég væri á æfingu á sama tíma,“ segir hann og áréttar að fólk megi ekki láta stjórnast af aldrin- um. „Never be too old to Rock and Roll, eins og segir í laginu.“ Dagskráin á tónleikunum er ólík því sem fólk átti að venjast hjá Flowers og Náttúru. „Þetta er sitt lít- ið af hverju, bræðingur, rólegt, djass- að og rokkað, blanda af lögum, sem okkur finnst hafa staðist tímans tönn, þótt þau séu ekki endilega gömul,“ segir Jónas. „Í raun á þetta ekkert skylt við gamla tímann.“ Rokkið fyrir alla aldurshópa  Jónas R. og Bandið með tónleika á Rosenberg  Saknar síðdegisballanna Ljósmynd/Finnbogi Helgason Jónas R. og Bandið Scott McLemore trommuleikari, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Gunnar Hrafnsson bassaleikari, Gunnar Þórðarson gítarleikari og söngvararnir Jónas R. Jónsson, Fanný Kristín Tryggvadóttir, Þóra Gísladóttir og Gísli Magni Sigríðarson. Blómatíminn Jónas R. í Flowers.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.