Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur lagt hart að þér og nú er
komið að því að þú getir sýnt öðrum árangur
erfiðis þíns. Þú átt skilið að taka þér frí
núna.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert tilbúin/n til að láta þínar eigin
þarfir víkja fyrir æðri tilgangi. Leyfðu æv-
intýraþránni að fá útrás og þá verður allt
annað, sem þú þarft að gera, svo auðvelt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þetta er góður tími til að ræða
vandamálin við maka eða náinn vin. Þakkaðu
fyrir það góða í lífi þínu og mundu að grasið
er ekki grænna hinum megin við lækinn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert það örugg/ur með þig að þú
getur hoppað í störf annarra án þess að
missa svefn. Vonir þínar og langanir snúast
um stærra húsnæði og frí með fjölskyldunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert tilbúin/n til þess að takast á við
sjálfa/n þig og gera gera upp hlutina. Sá
undirbúningur sem þú ert í nú, mun hjálpa
þér að vera áfram í nú-inu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þín á hleypidómum varðandi
þá sem eru öðru vísi en þú. Við erum öll ólík
og mikið væri litlaust í henni veröld ef eng-
inn þyrði að stíga út fyrir boxið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sjálfsagi þinn og skipulagning vekja að-
dáun annarra. Hugsanlegt að þú vinnir þér
inn peninga með óvenjulegum hætti. Þú
færð tilboð sem þú getur ekki hafnað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það verður þér bara hindrun í
starfi, ef þú ætlar að hunsa nýjustu tækni. Ef
vinur þinn ögrar þér í dag þá átt þú erfitt
með að sitja á þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sköpunargleðin drynur hreinlega
í hverri frumu. Notaðu innsæi þitt til að vega
og meta vandamál sem upp kemur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þarfir þínar eru mikilvægar og þú
ættir að splæsa því á þig sem þig langar í.
Ekki gleypa við kjaftasögum, athugaðu málið
sjálf/ur og dragðu svo þína ályktun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Líttu ávallt á björtu hliðarnar og
mundu að fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott. Þú færð tækifæri til að
sanna mál þitt. Þú hefur í mörg horn að líta,
mundu samt að taka þér pásur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fólk finnur sig knúið til þess að
ganga í augun á þér. Allir munu njóta þess
að fá hól frá þér í dag. Þú ert ekki á þeim
buxunum að gefast upp í deilumáli innan
vinahópsins.
Ámiðvikudaginn birti ég íVísnahorni tvö afbrigði af
sömu vísunni og hér bætist það
þriðja við. Hinrik Bjarnason skrif-
aði mér og sagði að vísan hefði ver-
ið kunnugleg – „húsgangur sem ég
í æsku á Stokkseyri lærði aðra gerð
af. Sú gerð er svona:
Hvað er í fréttum? Hvað er títt?
Hvað er helst til ama?
– Ekkert að frétta, ekkert nýtt,
allt við þetta sama.“
Á þriðjudagsnótt var hellirigning
í Mývatnssveit en engin á Húsavík
eða niðrí dölum. Mývetningurinn
Friðrik Steingrímsson orti:
Ekki drottinn er að spara
úrkomu í heimbyggð minni,
reyndar lét hann rigna bara
á réttláta að þessu sinni.
Þann hinn sama dag skrifaði Ing-
ólfur Ómar í Leirinn að nú væri
best að halda heim í fjörðinn fagra
– „burt úr þessum borgarglaum
sem er gjörsamlega að æra mig. Nú
er kallinn á leiðinn heim og margt
fallegt ber fyrir augu á þessum fal-
lega sumardegi. – Hrútafjörður
skartar sínu fegursta:“
Brúnir fjalla glitra í bjartri morgunsól
á bláa voga gullnu leiftri slær.
Af gleði foldin ljómar í grænum
sumarkjól
glaðar raddir óma og foss í gljúfri hlær.
Ingólfur Ómar bætir því við að
stundum þurfi ekki að hafa mörg
orð um það sem fyrir augu ber. Og
lætur fylgja morgunvísu, eitt eldra
ljóð sem hann gerði:
Á mosabreiðu merlar döggin hrein
morgunsólin risin er á ný.
Kátir þrestir flögra grein af grein
og gróðurmoldin angar frjó og hlý.
Ég heyri loftsins villta vængjaslátt
um vangann leikur golan mjúk og þíð.
Í lautu niðar lækjarsytra kátt
og litfríð blómin skreyta dal og hlíð.
Geislar sólar gylla bláan sæ
glitrar bárufans um ránarslóð.
Vorsins komu glaður fagnað fæ
fuglar syngja drottni ástarljóð.
Á sjómannadaginn lét Ingólfur
Ómar það eftir sér að fá sér ögn af
brjóstbirtu:
Glæðir fjör og gleður önd
gefast stundir betri.
Þegar vín er haft um hönd
hlýnar sálartetri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr Mývatnssveit vestur
í Hrútafjörð og víðar
Í klípu
„ÉG GET EKKI SVARAÐ ÞVÍ. ÉG ER ÞEGAR
BÚINN AÐ EYÐA ÞAGNARMÚTUNUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ MEINARÐU AÐ ÉG HEFÐI ÁTT AÐ
SEGJA ÞÉR FRÁ ÞESSU? ÉG SAGÐI ÞÉR
ÞETTA FYRIR MÖRGUM VIKUM!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ég finn þig enn
mér við hlið.
SJÁÐU, GRETTIR
SAFNIÐ MITT
ER NÆSTUM ÞVÍ
FULLKOMNAÐ!
BARA EINA FINGUR-
NÖGL Í VIÐBÓT!
ER
VETURINN
Á ENDA?
HRÓLFUR, ÉG VEIT AÐ Í HINUM STÓRA HEIMI
ERTU STÓRLAX MEÐAL VÍKINGA! EN HÉRNA
HEIMA ERTU VENJULEGUR FJÖLSKYLDUFAÐIR!
ÉG HELD ÞÉR Á
JÖRÐINNI!
ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ÞÚ
MÁTT EKKI KOMA Á
BARINN Í KVÖLD?
Klara Bjartmarz, framkvæmda-stjóri Knattspyrnusambands Ís-
lands, var eftirlitsmaður UEFA á
úrslitaleik Wolfsburgh og Lyon í
Meistaradeild kvenna á dögunum, á
Stadio Città del Tricolore vellinum í
Reggio á Ítalíu.
x x x
Ábyrgðin er mikill heiður fyrirKlöru og íslenska knattspyrnu.
Hún er fyrsti Íslendingurinn sem
fær þetta mikilvæga verkefni, en
forystumenn í KSÍ hafa reyndar
margsinnis verið eftirlitsmenn á
leikjum á vegum UEFA og FIFA.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
hefur fengið mestu vegsemdina en
hann var eftirlitsmaður á úrslitaleik
Meistaradeildar karla, þegar Man-
chester United og Barcelona léku á
Wembley í Lundúnum 2011.
x x x
Ellert B. Schram, fyrrverandi for-maður KSÍ, var meðal annars
eftirlitsmaður á úrslitaleik Frakk-
lands og Ítalíu í Evrópukeppni
landsliða árið 2000. Leikurinn fór
fram á velli Feyenoord í Rotterdam í
Hollandi.
x x x
Eggert Magnússon, fyrrverandiformaður KSÍ, var eftirlits-
maður á úrslitaleik Evrópukeppni
bikarhafa, þegar Chelsea og Stutt-
gart léku í Stokkhólmi 1998, en
keppnin var lögð niður árið eftir.
Þegar Eggert var síðar í stjórn
UEFA var hann sérstakur sendi-
fulltrúi forseta sambandsins í
tengslum við stórleiki.
x x x
Víkverji rifjar þetta upp vegnaþess að Evrópukeppni landsliða
í Frakklandi hefst í dag og þar verða
Íslendingar heldur betur í sviðsljós-
inu. Íslenska liðið tekur þátt í úr-
slitakeppni stórmóts í fyrsta sinn og
fær góðan stuðning mörg þúsund Ís-
lendinga, sem stóðu þétt við bakið á
því í riðlakeppninni. Nokkrir Íslend-
ingar starfa auk þess í tengslum við
leikina, til dæmis verður Páll Sævar
Guðjónsson vallarþulur á leikjum Ís-
lands.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Óttast þú eigi, því að ég er með þér.
Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn
Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég
styð þig með hægri hendi réttlætis
míns. (Jes. 41:10)