Morgunblaðið - 10.06.2016, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þessi sýning er samansafn afalveg ógurlega miklumóþekktarormum. Einn ert.d. Gutti og við syngjum
Guttavísur eftir Stefán Jónsson.
Mér er það mikið í mun að börnin
þekki þessar gömlu vísur. Uglan
mætir líka en hún á afmæli. Hún er
ógurlega geðill, þó hún eigi afmæli
þá heldur hún áfram að vera geðill.
Dýrin færa henni gjafir og hún
nennir ekkert að sinna þeim, segir
þeim að setja þær í póstkassann. En
svo rankar hún við sér þessi elska
og sér fínu gjafirnar og syngur með
þeim og allir eru góðir,“ segir Helga
Steffensen glaðlega um sýninguna
Óþekktarorma sem Brúðubíllinn
sýnir í júní.
Boðskapurinn um að allir eigi
að vera vinir er í forgunni. Það sama
er upp á teningnum í öðru leikriti
sem verður sýnt í júlí.
Í sýningunni koma fleiri per-
sónur eins og t.d. óþekktarormurinn
sjálfur og kynnir sýningarinnar er
enginn annar en Lilli sem hvert
mannsbarn þekkir.
Í brúðuleikhúsinu segir Helga
mikilvægt að sýningarnar séu hnit-
miðaðar og atriðin stutt því hún er
fyrir þau allra yngstu sem eru að
kynnast leikhúsinu oft í fyrsta
skipti. Helgu þykir mikilvægt að sú
upplifun sé góð og segir brúðuna
sniðna inn í það hlutverk.
„Brúðan höfðar svo sterkt til
barnanna. Hún er vinur þeirra,“
segir Helga sem hefur stjórnað leik-
húsi Brúðubílsins í 34 ár af einstakri
gleði. Hún er höfundur verksins,
Brúðubíllinn stökk-
pallur út í heim
Það dylst engum að sumarið er komið því Brúðubíllinn er kominn á fulla ferð og
slær ekki af fyrr en í sumarlok. Óþekktarormar er nýtt leikrit sem var frumsýnt í
vikunni og verður sýnt út júnímánuð. Að vanda verður Helga Steffensen í aðal-
hlutverki en með henni eru bílstjórinn Gígja Hólmgeirsdóttir og Hörður Bent Víð-
isson sem fer í leiklistarnám til Bandaríkjanna, í Los Angeles, í haust.
Óþekktarormar Leiksýningin í júní fjallar um ýmsa óþekktarorma.
Brúðubíllinn Frá frumsýningu Óþekktarorma í Árbæjarsafninu í vikunni.
Sumarfríið nálgast óðfluga ogfjölmargir eru eflaust farnir aðskipuleggja ferðalög fjölskyld-
unnar. Vinsælt er að ferðast um land-
ið á sumrin, enda eru ótalmargir
áhugaverðir staðir og náttúruperlur
um allt land sem gaman er að skoða
bæði fyrir börn og fullorðna. Þá er
tækifæri til að fjölga gæðastundum
fjölskyldunnar og tilvalið að stunda
útivist í einhverri mynd.
Að vera úti í náttúrulegu umhverfi
hefur róandi áhrif á okkur, bæði börn
og fullorðna. Við slíkar aðstæður gæti
verið snjöll hugmynd að taka úr sam-
bandi tölvur og snjallsíma og fá að
upplifa heiminn í gegn um okkar eig-
in skynfæri án allra truflana.
Að undanförnu hefur verið mikil
umræða um kvíða og einbeitingar-
leysi barna og unglinga. Skólanámið
getur reynst mörgum börnum erfitt
og mikið áreiti er til staðar í nútíma
samfélagi. Þó samskiptamiðlar, tölv-
ur og snjallsímar séu góð getur svo
farið að tækin taki yfir og börn sem
fullorðnir verði háð þessum lífsmáta.
Þetta getur orðið of mikið og keyrt
um þverbak. Margar rannsóknir
benda til að útivera hafi góð áhrif og
geti verið gott mótvægi við kyrrsetu
og símanotkun.
Í náttúrunni fá börn frelsi til að
upplifa og skoða umhverfið á sínum
eigin forsendum og leyfa áhuganum
og ímyndunaraflinu að ráða för. Nátt-
úran hefur verið hinn eðlilegi leik-
völlur barna í gegn um aldirnar og
margir eiga bernskuminningar frá
slíkum aðstæðum sem þeir muna alla
ævi. Við ættum að stuðla að fleiri
tækifærum sem börn dagsins í dag
hafa til útivistar og ekki skemmir fyr-
ir ef útivistin er með fjölskyldunni.
Lykillinn að jákvæðri upplifun er
að útivistin sé á forsendum barnsins.
Að fara á hraða barnsins, hafa með
sér nesti og stoppa frekar oftar en
sjaldnar. Tilvalið er að krydda dag-
skrána með einföldum atriðum. Það
má fara í ýmsa leiki, taka með smá
dót eins og sippubönd, einn lítinn
bolta eða badmintonspaða til að nota í
íslenska logninu. Þetta tekur lítið
pláss í bakpokanum og getur lífgað
uppá daginn. Það sem skiptir miklu
máli er að ætla sér ekki um of og
muna að njóta augnabliksins. Þegar
ferðast er með börn er betra að fara
sér hægar, njóta augnabliksins og lifa
í núinu.
Víða um land eru skemmtileg úti-
vistar- og tjaldsvæði. Eitt af þeim
svæðum er á Úlfljótsvatni. Þangað er
tilvalið að koma á fjölskyldutjald-
svæði sem býður uppá skemmtilega
möguleika. Nú um helgina 10. – 12.
júní gista fjölskyldur frítt á tjald-
svæðinu auk þess sem boðið verður
upp á fjölbreytta fría dagskrá.
Förum út, verum saman.
Útivist fyrir alla
Starfsfólk á fjölskyldusvæðinu við Úlfljótsvatn gefur góð ráð fyrir útileguna
Njótum Með því að leyfa börnunum að kanna náttúruna í rólegheitunum
upplifa þau margt sem þau geta ekki upplifað af tölvuskjám.
Náttúruleg gæðastund
fyrir fjölskylduna
Skátahornið
Inga Ævarsdóttir
Höfundur er útivistarskáti, meistaranemi í
kennslufræði og útinámi og starfsmaður Úlf-
ljótsvatns.
Síðasta haust flutti ég tilReykjavíkur. Ekki nóg meðað ég hafi flutt til Reykja-víkur, heldur er ég nú bú-
settur í mekka alls þess sem ég
fyrirlít, nefnilega 101 Reykjavík.
Verandi landsbyggðarperri hef ég
miklar skoðanir á íbúum höfuð-
borgarinnar. Reykvíkingar hafa t.d.
aldrei kunnað að keyra í snjó, það
hef ég alltaf sagt. Síðan kunna þeir
heldur ekki að vinna – a.m.k. ekki í
101. Ef þeir eru í vinnu á annað borð,
rétt reka þeir nefið inn á einhverja
skrifstofu yfir miðjan daginn og
þamba eitthvert mjólkursull sem
þeir kalla kaffi.
Í vetur var varað við ægilegu
óveðri. Strætisvagnar borgarinnar
hættu að ganga um kaffileytið og
foreldrar voru beðnir um að sækja
börn sín snemma í skólann. Um
það leyti sem Reykjavík lam-
aðist vegna meints veðurofsa
gekk ég út í næstu kjörbúð og
ætlaði að kaupa kvöldmat.
Þegar ég gekk inn í búðina
blöstu við mér tómar hillurnar.
Fólk hafði hamstrað. Aumingj-
arnir þurftu að birgja sig
upp. Ég endaði á að
svæla í mig ein-
hverjum frosnum
óþverra, sem átti að
heita blanda af ham-
borgara og flatböku.
Þetta var það eina
sem eftir var í búð-
inni sem kalla mætti
máltíð, en verslun
þessi er í 101 og selur
því ekki alvöru, þjóðlegan mat.
Úti á landi þekkist svona fífla-
gangur ekki, enda sækir vargurinn
ekki í frosinn gervimat. Hann neglir
girðingarstaura, bakkar með kerru
og drekkur kaffi sem líkist helst
malbiki. Hann sendir börnin sín
gangandi í skólann og verður aldrei
veikur. Ég er mjög veikur fyrir
landsbyggðarvarginum, sem er
heiðarlegur í framsóknarmennsku
sinni og bölvar nýjungum. Hinn
dæmigerði Reykvíkingur er hins
vegar holdgervingur aumingja-
væðingarinnar. Hann er á móti
allri uppbyggingu og iðnaði,
enda hefur hann aldrei unnið
handtak á ævinni.
Ég veit alveg að í Reykja-
vík eru líka sjómenn og iðn-
aðarkarlar. Ég veit líka að
maður þarf ekki að
standa í harki alla
daga til að vera
ekki aumingi.
Ástæða þess að
mér finnst Reyk-
víkingar aum-
ingjar er rosalega
mikið afþvíbara.
»Hinn dæmigerði Reyk-víkingur er hins vegar
holdgervingur aumingja-
væðingarinnar.
HeimurVífils
Vífill Atlason
vifill@mbl.is
Resorb Sport
Þegar þú stundar úthaldsíþróttir eins
og hjólreiðar, fjallgöngur, hlaup o.fl.
• Bætir upp vökvatap
• Minnkar líkur á vöðvakrömpum
• Flýtir endurheimt (recovery)
• Bragðgóður og handhægur
• Inniheldur m.a. magnesium
Fæst í fjölmörgum apótekum
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán.–fös. 8:30–17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn