Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.06.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 Eurajoki. AFP. | Finnar búa sig nú undir að geyma geislavirkan úrgang úr kjarnorkuverum sínum í djúpum neðanjarðargöngum á lítilli grænni eyju og talið er að hægt verði að geyma hann þar í allt að 100.000 ár. Göngunum verður læst og hugsan- legt er jafnvel að lyklunum verði hent. Göngin nefnast Onkala (Gröfin) og verða á eyjunni Olkiluoto, undan vesturströnd Finnlands, en þar er annað af tveimur kjarnorkuverum landsins. Þau verða dýrari og eiga að endast lengur en nokkrar aðrar geymslur í heiminum fyrir kjarn- orkuúrgang. Ríki sem hagnýta kjarnorkuna hafa átt í vandræðum með að finna leiðir til að geyma geislavirkan úr- gang úr kjarnorkuverunum frá því að þau fyrstu voru reist á sjötta ára- tug aldarinnar sem leið. Í flestum landanna er úrgangurinn geymdur ofanjarðar í bráðabirgðageymslum en Onkala-göngin í Finnlandi eru þau fyrstu sem eiga að duga til að geyma geislavirku efnin varanlega. Göngin verða tekin í notkun árið 2020 og gert er ráð fyrir að í þeim verði geymd alls 5.500 tonn af kjarn- orkuúrgangi, um 420 metrum undir yfirborðinu. Talið er að verkefnið kosti allt að 3,5 milljarða evra, jafn- virði tæpra 490 milljarða króna, þar til göngunum verður læst endanlega á þriðja áratug næstu aldar. „Þetta hefur krafist nýrrar verk- þekkingar af ýmsu tagi,“ sagði Ismo Aaltonen, aðaljarðfræðingur Posiva, fyrirtækis sem sérhæfir sig í losun geislavirks úrgangs og fékk heimild til að hefja gangaframkvæmdirnar á síðasta ári. Segja að fyllsta öryggis sé gætt Verkefnið hófst árið 2004 þegar komið var á fót rannsóknamiðstöð til að kanna hvort berggrunnurinn á eyjunni hentaði fyrir slíka geymslu. Ríkisstjórnin veitti síðan leyfi til framkvæmdanna undir lok síðasta árs. Aðalgöngin eru núna um fimm kílómetra löng með þrennum lóð- réttum göngum fyrir lyftur og loft- ræstingu. Gert er ráð fyrir því að þau verði 42 kílómetra löng þegar framkvæmdunum lýkur. Svalt er í göngunum og bergið er mjög þurrt og aðstæðurnar eru því heppilegar til að vernda eldsneytis- stangirnar gegn tæringaráhrifum vatns. Gert er ráð fyrir því að geisla- virkni úrgangsins hverfi að mestu á nokkrum öldum en við gerð gang- anna er miðað við að þau endist í 100.000 ár til að gæta fyllsta öryggis. Eldsneytisstangirnar verða settar í járnhólka og síðan í þykk koparhylki sem verða sett ofan í göngin. Hvert hylki verður hulið lagi af bentoníti, mjúkum og gleypum leir sem á að verja hylkin gegn jarðskjálftum og minnka hættuna á að vatn komist í þau. Göngin verða að lokum fyllt með leirklumpum og bentoníti áður en þeim verður læst. Þessari aðferð hefur verið beitt í svipuðu verkefni sem hefur verið unnið í Svíþjóð og Posiva segir að hún sé örugg. Hætta á leka? Andstæðingar kjarnorkuvera, þeirra á meðal Grænfriðungar, hafa þó áhyggjur af því að geislavirk efni geti lekið úr göngunum. „Kjarn- orkuúrgangur hefur þegar verið bú- inn til og þess vegna þarf að leysa vandann með einhverjum hætti,“ sagði talsmaður umhverfisvernd- arsamtakanna í Finnlandi, Juha Aromaa. „En rannsaka þarf betur ákveðna áhættuþætti sem lausn hef- ur ekki fundist á.“ Bent hefur verið á að ógerningur er að sjá fyrir hvernig aðstæðurnar verða á eyjunni eftir 100.000 ár. Fyr- ir jafnmörgum árum var Finnland þakið ís að hluta, neanderdalsmað- urinn lifði þá enn í Evrópu og hinn viti borni maður, homo sapiens, var byrjaður að færa sig frá Afríku til Miðausturlanda. Jarðfræðingar geta ekki útilokað að ný ísöld hefjist inn- an 100.000 ára og kjarnorkuöryggis- stofnun Finnlands hefur því óskað eftir frekari rannsóknum á lang- tímaáhrifum frosts á geymsluna. Gröfin á að endast í 100.000 ár  Finnar hafa hafist handa við dýrustu og endingarbestu geymslu heimsins fyrir geislavirkan úr- gang úr kjarnorkuverum  Úrgangurinn verður geymdur í 42 km löngum neðanjarðargöngum AFP Kjarnorka Orkuverið á Olkiluoto, við vesturströnd Finnlands. AFP Rammgerð geymsla Fyrstu göngin í geymslu fyrir kjarnorkuúrgang. Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • 6 x hreinna - betri þrif • Vinnuvistvænt • Minni vatnsnotkun Fáðu skínandi hrein gólf með ENJO Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.