Morgunblaðið - 10.06.2016, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
VINNINGASKRÁ
6. útdráttur 9. júní 2016
368 10151 20270 28741 41010 51112 61388 73554
672 10237 20311 28872 41342 51579 61611 73978
713 10599 20379 29047 41430 51660 62021 74175
1361 10746 20448 29411 41817 51701 62232 74199
1758 10805 20550 29466 41869 51857 62476 74489
1997 10868 20558 29601 42054 51950 62912 74684
2078 10941 20739 31282 42356 52021 63647 74904
2182 11056 20825 31525 42790 52087 63733 75809
2214 11707 20829 31845 42942 52095 64574 75811
2521 11711 21130 32585 43518 52496 64618 76397
2900 12063 21308 32601 43553 52810 64698 76478
3125 12150 21466 33350 43679 53044 65138 76553
3469 12409 21480 33751 44367 53078 65416 76593
3613 12566 22603 34477 44492 53185 65788 76827
3661 12590 22814 34496 44874 53563 66633 77000
4218 13034 22921 34766 44895 53652 66672 77283
4222 13091 23136 34872 45074 53721 66797 77315
4241 13654 23684 35860 46088 53992 67182 77451
4933 13841 23685 36040 46153 54133 67548 77752
5169 14141 23790 36319 46752 54767 67605 78052
6551 14602 24390 37577 46963 56176 68033 78523
6659 15306 24653 38066 47332 56723 68648 78542
6830 15837 25406 38071 47341 57297 68779 78646
7333 16183 25448 38322 47443 57717 69686 78675
7389 16304 25460 38388 48004 57773 69737 79059
7509 16329 25527 38645 48461 58022 70902 79094
7879 16580 25798 38869 48624 58978 71190 79268
8175 16997 25874 39028 49002 59380 71215 79449
8213 17208 25966 39117 49062 59415 71354 79527
8355 18055 25999 39174 49212 59561 71554 79681
8664 18149 26001 39776 49317 59581 71948 79871
9503 18354 26640 39901 49591 60597 72095
9578 18780 27012 40183 49774 60708 72704
9661 18861 27112 40299 49896 60788 72726
10040 19011 27653 40444 49936 60915 72875
10061 19287 27855 40887 50329 61097 72988
10092 19917 27869 41009 50830 61112 73205
247 8411 13146 27549 35780 44656 52985 66102
616 9056 13764 28393 36247 45034 54395 68264
855 9465 14289 29569 36496 45271 54558 70036
3727 9852 14906 29929 37093 45861 55990 70505
4146 10605 18085 30350 38762 46186 56066 72975
4514 10733 18927 31984 39274 48094 56525 75098
4806 11434 19643 32068 41663 49759 56529 76269
5123 11443 20121 32097 42246 50748 56536 79344
5839 11579 21658 32398 42571 50802 57681 79857
6628 12064 22605 32801 42897 51237 57968
6718 12071 24018 32809 44152 51510 58031
7427 12527 25685 33110 44322 52171 60308
8015 12818 26924 33230 44433 52917 60675
Næstu útdrættir fara fram 16., 23., 30. júní 2016
Heimasíða: www.das.is
V i n n i n g u r
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
V i n n i n g u r
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
V i n n i n g u r
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
628 12267 18772 77545
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
355 14167 27330 51764 54317 72547
2323 16173 31613 51931 56799 74060
3772 20165 37008 52824 57277 79131
5900 21557 46308 53714 64214 79571
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
4 5 1 5 3
Laugardaginn þann
25. júní göngum við til
kosninga. Þessar kosn-
ingar eru merkilegar í
marga staði. Í kosning-
unum kjósum við leið-
toga, leiðtoga hinnar
íslensku þjóðar.
Vanda þarf valið og
greina þarf það sem
skiptir máli frá því sem
skiptir minna máli.
Það er margt sem bendir til að við
Íslendingar munum upplifa mikið
góðæri á komandi árum. Á slíkum
tímum er ekki síður nauðsynlegt að í
forsetastólinn setjist maður sem
þekkir sögu landsins vel, þekkir upp-
runa þjóðarinnar, ber virðingu fyrir
landi, fullveldi og þjóð. Sameinar
sveitir og borg. Færir hið gamla nær
því nýja. Kætir en jafnframt fræðir.
Hefur reynslu og gagnrýna hugsun.
Þessir eiginleikar eru ekki öllum
gefnir.
Landið okkar, Ísland. Okkar far-
sælda frón. Með okkar dimmu vetr-
arnætur og hinn langa vetur.
Með fátt annað í náttúrunni en
klaka, eld og fisk; hefur þessari harð-
gerðu og fámennu þjóð þó tekist að
komast á fremsta stall meðal þjóða.
Slíkt er ekki sjálfgefið.
Fullveldið, okkar hjartfólgna full-
veldi, sem við börðumst svo lengi fyr-
ir er brothætt. Það þarf að fara vel
með það, virða og verja. Þótt sú ríka
skylda hvíli á herðum allra lands-
manna þarf sá sem leiðir þjóðina að
að sýna algjört fordæmi í þeim mál-
um. Aldrei má það gerast að leiðtogi
þjóðarinnar sé undirgefinn öðrum
þjóðum, hvort sem í meðvirkni eða
með öðrum hætti.
Menning okkar er einnig brothætt.
Með okkar fámennu þjóð er ekki síð-
ur mikilvægt að gætt sé að. Að sýnd
sé varfærni og að við lærum af
reynslu þjóðanna í kringum okkur.
Við horfum öll agndofa upp á breyt-
ingarnar í löndunum í kringum okkur
og þann menningarlega
óstöðugleika sem nú fer
yfir hin frjálslyndu lönd
Evrópu. Jafnvel hið
frjálslynda Frakkland
býr nú við hundruð
„týndra hverfa“ þar sem
allt önnur menning og
hefðir ríkja en við höfum
vanist og viljum.
Það hriktir í stoðum
Evrópu, það sjá allir sem
vilja og þora að sjá.
Löndin við botn Miðjarð-
arhafs eru að hruni komin. Mikligarð-
ur hefur tekið á sig nýja ásýnd harð-
ræðis og minna kröfur og
stjórnarhættir þaðan margt á það
sem einkenndi Evrópu á fjórða ára-
tug síðustu aldar. Stríð brjótast út
hratt og þá reynir á grunngildi þjóð-
arleiðtoga.
Sveitir landsins eru okkur ekki síð-
ur mikilvægar. Þar fer matvæla-
framleiðslan fram. Án matvæla þrífst
ekkert líf. Því miður virðist oft sem að
einhverjir reyni eftir bestu getu að
tvístra landinu, að etja sveitum gegn
borg. Marðarhættir einkenna oft það
atferli. Þó er það nú þannig að það
væri engin höfuðborg án sveita og
engin þjóð án höfuðborgar. Lands-
höfðinginn þarf að hafa þetta í huga.
Það þurfa einnig allir landsmenn að
gera.
Margir góðir frambjóðendur eru í
framboði þetta árið. Einn er þó öðrum
fremri. Sá er fæddur leiðtogi, leiðtogi
af Guðs náð. Þeim manni tókst að
sameina höfuðborgarbúa og færa höf-
uðborgina til þeirrar virðingarstöðu
sem hún á skilið. Þeim manni tókst að
halda ríkisstjórnarsamstarfi saman
lengst allra forsætisráðherra. Sá
maður var sá allra fyrsti til að gagn-
rýna framgöngu bankamanna, þá árið
2003, þegar hann tók út sparifé sitt til
að mótmæla. Í Seðlabankanum átti
hann sinn þátt í að smíða varn-
arvopnin sem notuð voru þegar
efnahagskreppan nam hér land. Sem
ritstjóri Morgunblaðsins hefur hann
viðhaft þá gagnrýnu hugsun sem allir
ættu að temja sér. Í deilu Íslendinga
við Breta og Hollendinga stóð hann
sig með prýði.
Margt bendir til að hefði Davíð
Oddsson verið landshöfðingi á þeim
erfiðu tímum hefði ástandið orðið
betra og samstaðan ekki aðeins meðal
þjóðar heldur einnig í stólum Alþing-
is. Á þeim tímum, þegar við þjóðfé-
lagsþegnar þurftum styrk stjórnmál-
anna sem mest, var sundrungin á
Alþingi algjör. Allt var gert til að tala
niður þjóðina. Allt var gert til að
sundra. Þar brugðust stjórnmála-
mennirnir, þar brugðust fjölmiðlar og
þar brugðust álitsgjafar. Menn sögðu
jafnvel að ef við myndum ekki lúffa
undan kröfum Breta og Hollendinga
myndi ástandið hér verða svipað og í
Norður-Kóreu. Þetta var sagt, eins
heimskulega og það hljómar. Því mið-
ur af þeim forsetaframbjóðanda sem
hefur hvað mest fylgi þegar þessi orð
eru rituð.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir hef-
ur öllu verið snúið á haus, sagan verið
skrumskæld og upp hafa risið menn
sem gera út á dýpstu og verstu hvatir
mannskepnunnar; hatur, öfund og
reiði. Sumir hverjir vegna hagsmuna,
aðrir vegna meðvirkni.
Það skiptir því öllu að við, sem
styðjum Davíð Oddsson til forseta Ís-
lands, leggjum okkur alla fram. Að
við fylgjum okkar sannfæringu og
þeim boðskap sem okkar fyrsti ráð-
herra orti svo fallega um í ástarjátn-
ingu sinni til Íslands. Þeirri heit-
strengingu sem Davíð Oddsson hefur
í alla tíð fylgt.
Ef verð ég að manni, og veiti það sá,
sem vald hefur tíða og þjóða,
að eitthvað ég megni, sem lið má þér ljá,
þótt lítið ég hafi að bjóða,
þá legg ég, að föngum, mitt líf við þitt mál,
hvern ljóðstaf, hvern blóðdropa, hjarta og
sál.
(Hannes Hafstein)
Forseti vor
Eftir Viðar
Guðjohnsen
»Einn er þó öðrum
fremri. Sá er
fæddur leiðtogi,
leiðtogi af Guðs náð.
Viðar Guðjohnsen
Höfundur er lyfjafræðingur.
Einhvern veginn hafa
örlögin hagað því þann-
ig að Róm er orðin mín
borg. Þangað hef ég
komið oft og mörgum
sinnum í gegnum árin.
Sem fararstjóri hef ég
haft ánægjuna af að
leiða fróðleiksþyrsta Ís-
lendinga um borgina.
Og sjálfur hef ég átt
þar óteljandi ógleyman-
legar stundir. Til Rómar liggja leið-
irnar bæði í eiginlegri og óeig-
inlegri merkingu því áhrif
borgarinnar eru ekki nærri alltaf
augljós en koma upp á yfirborðið
víða þegar betur er að gáð. Um leið
er Róm lifandi og yndisleg borg og
sá sem einu sinni hefur orðið ást-
fanginn af henni á ekki auðvelt með
að gleyma þeirri ást, hún fylgir
honum alla tíð eins og ljúf endur-
minning.
Einn sérstæðasti staður Róm-
arborgar er Necropolis – borg
hinna dauðu, sem finna má undir
Péturskirkjunni. Sú Péturskirkja
sem nú stendur var vígð árið 1626.
Hún er reist á grunni eldri kirkju
frá tímum Konstantínusar keisara á
4. öld, en kirkja Konstantínusar var
aftur byggð á fornum grafreit og
helgistað. Kirkjunni var valinn
staður þarna vegna þess að heim-
ildir sögðu að þar væri að finna
gröf Péturs postula. Fornleifafræð-
ingar hafa í áratugi unnið að því að
grafa sig í gegnum hin mörgu lög
undir núverandi Pét-
urskirkju. Í ljós hef-
ur komið einstök
borg sem kölluð er
borg hinna dauðu,
eða Necropolis, undir
gólfi miðaldakirkj-
unnar. Í borg hinna
dauðu er að finna
stórkostlega skreytt
grafhýsi og götur
sem hægt er að
ganga um eftir að
hreinsuð hefur verið
frá mold og jarð-
vegur aldanna. Og þarna, á 12
metra dýpi undir miðaldakirkjunni,
fundu fornleifafræðingarnir gröf
sem talin er geyma jarðneskar leif-
ar Péturs postula. Þær eru enn
geymdar þar en kapella hefur verið
byggð ofan á hina fornu gröf á gólfi
miðaldakirkjunnar.
Allt hefur þetta magnaða völund-
arhús undirheima kirkjunnar verið
endurreist og innsiglað. Það er ekki
opið almenningi heldur þarf að
sækja um sérstakt leyfi hjá
Vatíkaninu til að heimsækja það.
Milljónir sækja víst um leyfi á
hverju ári en aðeins 100 manns á
dag í 10 manna hópum fá að fara
niður í undirdjúp Vatíkansins í
fylgd leiðsögumanns. Slíkur leið-
angur er heldur ekki fyrir hvern
sem er því þrengslin eru mikil og
loftið þungt og engin leið að snúa
við sé ferðin á annað borð hafin.
Vatíkanið, eða Páfaríkið, stendur á
bökkum Tíberfljótsins í miðri Róm-
arborg og er eitt minnsta sjálf-
stæða ríki heimsins. Péturskirkjan
er ein þekktasta kirkja kristninnar.
Hvolfþak hennar var teiknað af
sjálfum Michelangelo og gnæfir það
tignarlega yfir borginni. En í Vatík-
ansafninu er að finna sixtínsku kap-
elluna, sem er einkakapella páfa og
hefur að geyma hinar frægu fresk-
ur Michelangelos af sköpun heims-
ins og dómsdegi. Péturskirkjan er
reist á þeim stað þar sem talið er
að Pétur postuli hafi verið jarð-
settur, en hann lét að öllum lík-
indum lífið í ofsókn sem Neró keis-
ari í Róm stóð fyrir gegn kristnum
mönnum þar í borg árið 67. Áður
stóð þar mikil kirkja í basilikustíl
sem Konstantín keisari lét byggja,
en hún var vígð árið 326. Óteljandi
listamenn komu að gerð kirkjunnar.
Sjálfur hef ég tvisvar komið að gröf
Péturs í Necropolis ásamt íslensk-
um ferðalöngum. Til að komast
þangað mættum við hjá svissnesku
vörðunum við hlið Vatí-
kanshallargarðsins. Þaðan vorum
við leidd að skrifstofu fornleifa-
rannsóknarinnar þar sem leið-
sögumaður tók við okkur og fór
með okkur inn í hvelfingarnar und-
ir Péturskirkjunni. Hófst nú hin
mesta ævintýraför. Í einfaldri röð
gengum við Íslendingarnir inn í
Í borg hinna dauðu –
Necropolis
Eftir Þórhall
Heimisson » Áfram lá leiðin í
gegnum borg hinna
dauðu þar til við komum
loks að hvelfingu við
undirstöður grafhýs-
anna fyrir ofan okkur.
Þórhallur Heimisson
– með morgunkaffinu