Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tveir ungir tónlistarmenn hlutu í
gær styrki úr styrktarsjóði Halldórs
Hansen við hátíðlega athöfn í Saln-
um. Styrki hlutu Heiðdís Hanna Sig-
urðardóttir sópran og Steinar Logi
Helgason kirkjutónlistarmaður, en
bæði luku bakkalárnámi frá Listhá-
skóla Íslands í vor. Ekki er hægt að
sækja um styrk í sjóðinn heldur vel-
ur sjóðsstjórnin styrkþega sem náð
hafa framúrskarandi árangri á sínu
sviði og hljóta styrkþegar í ár að
launum 750 þúsund krónur hvor.
Viðburðaríkt ár að baki
„Þetta kom mér ánægjulega á
óvart. Það er skemmtilegt og líka
mikil virðing sem felst í því að fá
þessa viðurkenningu,“ segir Heiðdís
Hanna Sigurðardóttir söngkona.
Hún lauk framhaldsprófi í söng frá
Tónlistarskóla Garðabæjar vorið
2011 og stundaði í framhaldinu nám
á bakkalárstigi við Tónlistarháskól-
ann í Freiburg, Þýskalandi, í þrjú
ár. Sl. haust hóf hún nám í LHÍ og
lauk þaðan bakkalárnámi í vor. Í
janúar sl. söng Heiðdís Hanna á tón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, en hún var einn fjögurra sig-
urvegara í einleikarakeppni SÍ og
LHÍ. Í mars sl. var Heiðdís Hanna
staðgengill Þóru Einarsdóttur í óp-
erunni Don Giovanni sem sett var
upp af Íslensku óperunni snemma
árs 2016.
„Það er því viðburðaríkt ár að
baki og þessi styrkveiting er eins og
punkturinn yfir i-ið,“ segir Heiðdís
Hanna og tekur fram að styrkurinn
komi í góðar þarfir. „Stór hluti
styrksins mun fara í skólagjöld, en í
haust byrja ég í tveggja ára mast-
ersnámi í sköpun, miðlun og frum-
kvöðlastarfi sem kallast NAIP við
LHÍ. Auk þess sem ég mun senni-
lega nýta hluta styrksins til að
sækja einkatíma eða masterklassa
erlendis,“ segir Heiðdís Hanna sem í
sumar mun koma fram á tónleika-
röðinni Pearls of Icelandic Song í
Kaldalóni Hörpu.
Hefur fengið að blómstra
„Ég er afar þakklátur fyrir að
hugsað sé svona fallega til manns.
Það hafa verið ótrúleg forréttindi að
fá að læra við Listaháskólann þar
sem gæði kennslunnar eru mikil og
maður hefur fengið að blómstra,“
segir Steinar Logi Helgason. Hann
útskrifaðist með kirkjuorganista-
próf úr Tónskóla þjóðkirkjunnar
vorið 2013 og hóf þá um haustið nám
í kirkjutónlist á bakkalárstigi við
Listaháskólann sem hann lauk í vor.
Aðspurður segist Steinar Logi
vera á leið til Danmerkur síðla sum-
ars til frekara náms í kirkjutónlist
við Konunglega tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn. „Styrkurinn er
eyrnamerktur húsaleigu í Kaup-
mannahöfn,“ segir Steinar Logi,
sem áður hefur hlotið styrki úr Ný-
sköpunarsjóði námsmanna og Hall-
dórs Hansen sjóðnum vegna rann-
sóknarvinnu undir handleiðslu
Hróðmars I. Sigurbjörnssonar á
tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar og
Jóns Nordal. Í tengslum við þá
vinnu hefur hann haldið fyrirlesta á
Sumartónleikum í Skálholti og á
Hugarflugi, rannsóknarráðstefnu
LHÍ. „Í byrjun júlí mun ég taka þátt
í Sumartónleikum í Skálholti þar
sem LHÍ verður með tónleika-
dagskrá til heiðurs Jóni Nordal í til-
efni níræðisafmælis hans.“
Steinar Logi er stofnandi og
stjórnandi Kammerkórs tónlistar-
deildar LHÍ. „Í gegnum námið hef-
ur kórstjórn verið í fókus hjá mér.
Sú hugmynd kviknaði meðal nem-
enda að stofna kór sem gæti flutt
krefjandi kórtónlist,“ segir Steinar
Logi og bendir á að kórinn hafi verið
nemendum í tónsmíðanámi hvatning
til að semja fyrir kór.
„Ég vona að kórinn starfi áfram
og nýr stjórnandi finnist, því það er
ómetanlegt að flytjendur og tón-
skáld geti átt listrænt samtal,“ segir
Steinar Logi og hrósar stjórnendum
LHÍ í hástert fyrir hversu jákvætt
tekið er í hugmyndir nemenda og
þeim þannig leyft að blómstra.
„Þetta er svo langt frá því að vera
sjálfsagt og ég efast um að tekið
hefði verið jafnvel í stofnun kamm-
erkórsins í ýmsum menntastofn-
unum erlendis.“
Steinar Logi var einn af starfandi
organistum í Langholtskirkju í vet-
ur ásamt því að stjórna Kór Lang-
holtskirkju, en hann hlaut sína kór-
þjálfun í Hamrahlíðarkórnum undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
„Þegar Jónsi [Jón Stefánsson] lenti í
slysinu og féll síðan frá, vorum við
nokkur sem leystum af sem org-
anistar í kirkjunni. Það var dýrmæt
reynsla fyrir mig að fá að stjórna
Kór Langholtskirkju. Jónsi var bú-
inn að byggja upp afskaplega flott
starf í kirkjunni og mikil forréttindi
að fá að kynnast því starfi og fá að
vinna með öllu því hæfileikafólki
sem tekur þátt í tónlistarlífinu þar. “
Þakklát fyrir viðurkenninguna
Heiðdís Hanna Sigurðardóttir og Steinar Logi Helgason hljóta styrk úr styrktarsjóði Halldórs
Hansen Stefna bæði á frekara tónlistarnám, Heiðdís hérlendis en Steinar í Kaupmannahöfn
Morgunblaðið/Eggert
Ánægð Steinar Logi Helgason og Heiðdís Hanna Sigurðardóttir voru að vonum ánægð í Salnum í gær þegar þau
tóku formlega við styrkjunum. Hjá þeim stendur Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands.
Styrktarsjóður Halldórs Hansen
var stofnaður 11. desember
2002 og starfar undir væng
Listaháskóla Íslands.
Halldór var barnalæknir og lét
eftir sig mikið tónlistarsafn með
m.a. um 10.000 þúsund hljóm-
plötum, sem hann ánafnaði
Listaháskóla Íslands í erfðaskrá
ásamt öðrum eigum sínum sem
skyldu renna í sérstakan sjóð í
hans nafni.
Í skipulagsskrá stjórnar sjóðs-
ins kemur fram að meginmark-
mið hans séu að styrkja upp-
byggingu og styðja við
tónlistarsafn LHÍ. Auk þess veit-
ir sjóðurinn árlega styrki til tón-
listarnema, sem hafa lokið
fyrsta háskólastigi og hafa að
mati sjóðsstjórnar náð fram-
úrskarandi árangri á sínu sviði.
Fyrsta verðlaunaveitingin fór
fram 2004, og er þetta í 11. sinn
sem veitt eru verðlaun úr sjóðn-
um.
Úthlutað úr sjóðnum í 11. sinn
FYRIR ÞÁ SEM NÁ FRAMÚRSKARANDI ÁRANGRI Á SÍNU SVIÐI
Tónlistarhátíðin Secret Solstice,
sem haldin verður 16.-19. júní í
Laugardal, verður fyrsta íslenska
vörumerkið sem fær sína eigin sögu
í beinni í snjallsímaforritinu Snapc-
hat, sk. Live Story. Forritið safnar
þá saman „snöppum“ gesta hátíðar-
innar og streymir beint frá hátíð-
inni laugardaginn 18. júní. Hátíðar-
gestir geta þá sent inn sín eigin
myndskeið í gegnum forritið sem
púslað verður saman í rauntíma af
Snapchat-teyminu. Þannig geta 150
milljón notendur Snapchat um allan
heim fylgst með Secret Solstice í
snjallsímum sínum. Þá verða starfs-
menn Snapchat á svæðinu og gera
svonefnda „geofiltera“ fyrir hátíð-
arsvæðið sem hátíðargestir geta
notað til að skreyta myndir og
myndskeið sín inn í forritinu, skv.
tilkynningu. Í gær varð svo að-
gengilegt app hátíðarinnar, þ.e.
smáforrit fyrir snjallsíma, þar sem
sjá má tímasetningu tónleika o.fl.
AFP
Radiohead Thom Yorke og félagar leika
á Secret Solstice 17. júní kl. 21.30.
App og snapp á
Secret Solstice
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Shu Yi er einn af þessum yndislegu nemendum
sem ég hef haft á mínum tuttugu ára ferli þar sem
nemandinn verður kennarinn,“ segir Guðmundur
Oddur Magnússon, prófessor í Listaháskóla Ís-
lands, betur þekktur sem Goddur.
Á morgun, laugardaginn 11. júní, verður opnuð
ljósmyndasýning þeirra Godds og Shu Yi, í Gall-
eríi Listamönnum, en sýningin kallast Exitus &
Islands.
Sofandi eyjar
Ef myndir sem listamennirnir hafa sent frá sér
til fjölmiðla eru metnar sem grunnur að sýning-
unni þá virðist Breiðafjörður vera í miðpunkti
tjáningar þeirra. Fréttatilkynningunni fylgir
mjög póetískur texti.
Textinn talar um sofandi eyjar og flestar þeirra
höfum við yfirgefið. Hvað hugsum við þegar við
hugsum um þessar yfirgefnu eyjar?
Það er talað um söfn minninga, töframóment og
hálfskaga.
Eyjar, hvað merkja þær? Hálfsokknar eða bara
rétt búnar að rísa úr hafinu, við Íslendingar ætt-
um að þekkja það, við búum á einni slíkri risa-
stórri, stærri en allt Tékkland, og með öllum þess-
um smáeyjum í kring og smáskerjum.
Í fréttatilkynningunni er minnst á að móðurætt
Godds er frá Breiðafirði og þannig eru tilfinn-
ingatengsl hans skiljanleg. En áhugaverðara
verður að sjá túlkun Shu Yi. En hún er einmitt
ekki úr Breiðafirði.
Óvenjulegt að sýna með nemanda
„Það er í sjálfu sér óvenjulegt að sýna með
einum af nemendum sínum,“ segir Goddur. „En
Shu Yi kom í skólann til okkar útskrifuð úr virt-
um háskóla og þegar orðin þroskaður listamað-
ur, þannig að það er bara gaman þegar það ger-
ist.“
Shu Yi útskrifaðist fyrst úr háskóla í Beijing, en
síðan úr London College of Communication áður
en hún skráði sig til náms í Listaháskóla Íslands.
Flestar myndirnar sem fylgja fréttatilkynning-
unni eru af eyjum í Breiðafirði og Goddur segir að
það sé meginviðfangsefnið. „Allar myndirnar sem
ég er með á sýningunni eru teknar í Breiðafirði,“
segir Goddur. „En hún er einnig með myndir af
Reykjanesi.“
Útsýni stækkar íbúðina
Það er reyndar ein mynd þarna sem er einmitt
eftir Shu Yi sem mér finnst fallegasta myndin en
vera algjörlega á skjön við hinar myndirnar því
hún er bara af hvítu herbergi og hvítum stól?
„Nei, hún er ekki á skjön,“ segir Goddur. „Þar
er verið að fjalla um rammann. Landslagið út um
gluggann.
Það er gluggi í herberginu og þar rétt sést í
landslag sem er í takti við tón sýningarinnar.
Ramminn og hvernig landslag er rammað inn
skiptir miklu máli í upplifun áhorfandans.
Þannig eru dæmi um að nútíma arkitektar á Ís-
landi hafi beinlínis byggt falleg hús þar sem er
sérstaklega tekið tillit til þess hvernig landslag er
rammað inn í hverjum einum og einasta glugga
hússins. Þetta skiptir allt máli. Ekki endilega
hvað er inni í húsinu eða inni í herberginu í það og
það skiptið, heldur hvernig landslagið sést út úr
því.“
Kínversk sýn út um glugga
Shu Yi
Hvítt og dauði Þessi fallega mynd er hluti af
sýningu Shu Yi og Godds í Galleríi Listamönnum.
Goddur og Shu Yi halda ljósmyndasýningu um helgina Yfirgefnar eyjar og
sofandi steinar Goddur á uppruna sinn í Breiðafirði og hugsar til eyjanna