Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 39

Morgunblaðið - 10.06.2016, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2016 » Lokatónleikarstarfsárs Sinfóníu- hljómsveitar Íslands (SÍ), sem fram fóru í gærkvöldi, voru tileink- aðir minningu Jean- Pierre Jacquillat fyrr- um aðalhljómsveitar- stjóra SÍ. Nú í júní eru liðin 30 ár frá því Jac- quillat stjórnaði sínum síðustu tónleikum með hljómsveitinni. Meðal tónleikagesta voru Cecile Jacquillat, ekkja Jean-Pierre Jacquillats. Góð stemning á lokatónleikum starfsárs Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í gærkvöldi Morgunblaðið/Eggert Tónsproti á lofti Hljómsveitarstjórinn Eivind Aadland kemur frá Noregi og er einn sá virtasti þar í sínu fagi. Brosmildar Diddú, eða Sigrún Hjálmtýsdóttir og tvær hollenskar vinkonur. Sátt Oddný Sturludóttir og Sigurjón Jónsson voru ánægð með tónleikana. Ánægðar Arna Kristín Einarsdóttir og Cécile Jacquillat, ekkja Jean-Pierre. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarhátíðin Sumarmölin verður haldin á Drangsnesi á morgun en sú nýbreytni verður á hátíðinni í ár að hún hefst með uppistandi í kvöld kl. 21 á Malar- kaffi. Saga Garð- arsdóttir og Hug- leikur Dagsson munu kitla hláturtaugar gesta og hita þá upp fyrir tón- leikana sem haldnir verða í samkomuhúsinu Baldri á morgun og hefjast kl. 19.30. Húsið verður opnað hálftíma fyrir tónleika. Á Sumarmölinni koma fram að þessu sinni fram FM Bel- fast, Lay Low, Karó, Kippi Kaninus, Rúna Esra, Snorri Helgason og Úlf- ur Úlfur. Eftir tónleikana mun DJ Hermigervill þeyta skífum á Malar- kaffi fyrir þá sem vilja meiri tónlist og stuð. Miðaverð er 5.900 kr. en ókeypis er fyrir 12 ára og yngri. Vildi halda stærri tónleika Hátíðin er haldin í fjórða sinn og að henni stendur sem fyrr Björn Kristjánsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Borko. Hann bjó og starfaði sem kennari á Drangs- nesi í nokkur ár og stóð þá fyrir tón- leikaröðinni Mölinni og síðar Sumar- mölinni. Björn segir að á Mölinni hafi verið haldnir litlir, kósí tón- leikar á veitingastað þorpsins en hann hafi langað til að halda stærri tónleika og því komið Sumarmölinni á koppinn í samkomuhúsinu. „Þegar ég byrjaði með Mölina var hug- myndin að gefa eitthvað til baka í þorpið, búa til meira líf þar. Sumar- mölin var rökrétt framhald á því, mig langaði að halda umfangsmeiri tónleika með stærri hljómsveitum en rúmast á litlum veitingastað.“ Þekktir sem minna þekktir -Hvernig velurðu hljómsveitir og tónlistarmenn á Sumarmölina, hringirðu bara í vini þína? Björn hlær. „Þegar maður er bú- inn að vera viðloðandi þennan bransa í næstum því 20 ár eru þetta náttúrlega orðnir mikið til vinir manns og kunningjar. Ég hef reynt að hafa kynjablöndu, bæði karla og konur og sem næst til jafns. Ég hef líka reynt að hafa listamenn sem annaðhvort eru frá Vestfjarðasvæð- inu eða hafa einhver tengsl þangað. Svo hef ég líka reynt að hafa blöndu af þekktari og meira „mainstream“- böndum í bland við eitthvað minna þekkt og aðeins skrítnara og meira indí.“ Og talandi um þekkta og lítt þekkta þá kannast blaðamaður ekki við Karó og Rúnu Esra. Hann fær þær upplýsingar frá Birni að Karó hafi farið með sigur af hólmi í Söng- keppni framhaldsskólanna í fyrra, gefið út tvö lög í samstarfi við Loga Pedro og flytji vandaða popptónlist. Rúna Esra er eiginkona Mugison og segir Björn að hún sé skúffu- tónskáld og muni á Sumarmölinni opna skúffurnar. Björn Kristjáns- son/Borko Úr skúffunni yfir í meginstrauminn  Sumarmölin á Drangsnesi hefst með uppistandi í kvöld Morgunblaðið/Styrmir Kári Gleðisveit FM Belfast er með fjörugri tónleikasveitum landsins og kemur fram á Sumarmölinni. Hér sést hún á Iceland Airwaves í fyrra. 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn Sun 12/6 kl. 15:00 aukasýn Sýningum lýkur í vor! Mugison (Kassinn) Fös 10/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30 Miðasala á mugison.com DAVID FARR MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 10/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu. Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.