Morgunblaðið - 26.07.2016, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016
www.gilbert.is
ISLANDUS CLASSIC
VIÐ KYNNUM
TÍMALAUS HÖNNUN
Hljómsveitirnar Mosi Musik og
Cryptochrome munu efna til tónleika
á skemmtistaðnum Húrra annað
kvöld klukkan 21. Þetta er í fyrsta
skiptið sem þessar tvær sveitir leiða
saman hesta sína en báðar hafa þær
verið iðnar við kolann upp á síðkast-
ið. Mosi Musik gaf út sína fyrstu
plötu, I am you are me, í fyrra og
fékk hún góðar viðtökur. Hljóm-
sveitin spilar „Electric Ferrari Pop“,
eins og segir í tilkynningu, sem er
eins konar blanda af raftónlist,
diskói, „R’n’B“, teknói, „house“-
tónlist og fleiru. Á tónleikunum ann-
að kvöld munu þau flytja ný lög af
væntanlegri plötu.
Cryptochrome hefur verið nokkuð
í sviðsljósinu það sem af er ári en þau
hafa sett sér það markmið að gefa út
eitt tónlistarmyndband á mánuði. Í
tilkynningu segir að Cryptochrome
beygi tónlistarstefnur og fari langt út
fyrir boxið í sinni tónlist sem er
blanda af raftónlist, hip-hop og
kosmískum pælingum sem gefa þeim
sitt eigið hljóð. Sveitin vinnur nú að
sinni annarri plötu og kemur hún til
með að spila hljóma af henni annað
kvöld. Þá munu sveitirnar njóta
stuðnings tónlistarmannsins Seint
sem er meðal annars liðsmaður
Rímnaríkis. Sá mun sjá um að verma
húsið með kröftugri raftónlist.
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Tónleikar Mosi Musik gaf út fyrstu plötu sína, I am you are me, á síðastliðnu
ári. Hljómsveitin kemur fram ásamt Cryptochrome og Seint á Húrra á morgun.
Raftónlist og diskó á
Húrra annað kvöld
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Sumarkvöld með Jónasi Tómassyni
nefnist tónleikadagskrá sem haldin
verður á Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar í kvöld og hefst kl. 20.30.
Tónleikarnir eru haldnir af tilefni
sjötugsafmælis tónskáldsins og flutt
verða einleiks-, einsöngs- og dúó-
verk frá ýmsum tímum á ferli hans.
Jónas stundaði framhaldsnám í
tónlist í Amsterdam á sínum tíma en
hefur nú búið á Ísafirði í yfir fjöru-
tíu ár. Þar hefur hann verið kennari,
flautuleikari og kórstjóri og séð um
tónleikahald fyrir Tónlistarfélag
Ísafjarðar.
Meðfram þessu hefur hann verið
afkastamikið tónskáld og samið fjöl-
mörg verk af ólíkum toga. Eftir
hann liggja hljómsveitarverk, kons-
ertar, kórverk og kammerverk auk
fjölda einleiks- og einsöngsverka
fyrir ýmis hljóðfæri. Verk Jónasar
hafa verið flutt af mörgu af fremsta
tónlistarfólki hér á landi og sum
þeirra hafa komið út á geisladiskum.
Lifandi og fjölbreytt
Skipuleggjendur og flytjendur á
tónleikunum eru allir tengdir Jónasi
fjölskyldu- og vinaböndum.
„Við tókum okkur nokkur til og
settum saman þessa dagskrá. Við
erum vinir og fjölskylda Jónasar,
sem hafa spilað verk eftir hann og
tengjumst flest Ísafirði sem er mik-
ill tónlistarbær,“ segir Anna Áslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari sem býr
og starfar í München.
„Dagskráin verður mjög lifandi
og fjölbreytt,“ útskýrir Anna Ás-
laug. „Flutt verða m.a. ljóð fyrir
söngrödd og píanó. Herdís Anna
Jónasdóttir, dóttir tónskáldsins,
sem er óperusöngkona í Saar-
brücken í Þýskalandi, mun flytja
þau. Hún syngur líka dúett með
æskuvinkonu sinni frá Ísafirði, Þór-
unni Örnu Kristjánsdóttur sem er
leikkona í Reykjavík og syngur
núna í Mamma mía. Þær syngja
mjög skemmtilega dúetta í léttum
nútímastíl sem Jónas samdi sér-
staklega fyrir þær.“
Tveir aðrir píanóleikarar koma
einnig fram á tónleikunum, en það
eru Tinna Þorsteinsdóttir sem hefur
víðtæka reynslu á sviði nýrrar tón-
listar og Sólveig Anna Jónsdóttir
sem hefur leikið víða sem meðleikari
einsöngvara og kóra. Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari kemur einnig fram
og Hollendingurinn Leon van Mil
baritónsaxófónleikari sem spilar
mest djass.
„Leon er staddur hér á landi og
ætlar að spila verk sem Jónas samdi
fyrir hann og konuna hans sem er
píanóleikari, en Leon er mágur Jón-
asar,“ segir Anna Áslaug.
- En hvað ætlar þú að leika?
„Við Hlíf leikum saman verk fyrir
píanó og fiðlu, svo leik ég eitt með
Leon og annað með Herdísi Önnu.
Ég spila líka sónötu, einsleiksverk
fyrir píanó, sem er elsta verkið sem
flutt verður á tónleikunum en það er
samið 1973.“
Anna Áslaug segir verkin á tón-
leikunum spanna allan feril Jónasar
og flest vera í klassískum nútíma-
stíl.
Fallegt og frumlegt
- Er þetta frumleg tónlist?
„Jónas hefur mjög sérstakan stíl,
hann hefur hreinan og mínímalískan
stíl, en samt er alltaf mikil hreyfing
í tónlistinni. Já, ég myndi segja að
hann væri með frumlegri tón-
skáldum hér á landi. Það sem ein-
kennir hans stíl er að verkin hans
eru mjög vel samin og mikill tær-
leiki í allri hans tónlist. Ég hef spil-
að ýmislegt eftir hann í gegnum ár-
in og tónlistin hans vinnur mjög
mikið á. Stundum eru ekki mjög
margar nótur, en allt er mjög fal-
lega og frumlega sett fram,“ segir
Anna Áslaug að lokum og vill benda
á að tónleikarnir verða haldnir aftur
á Ísafirði n.k. fimmtudag 28. júlí á
Hömrum kl. 20.
Morgunblaðið/Ófeigur
Sumartónleikar Jónas Tómasson ásamt flytjendunum, f.v.: Þórunn Arna, Sólveig Anna, Herdís Anna, Anna Áslaug, Tinna, Leon og Hlíf.
Tærleiki einkennir tónlistina
Fjölbreytt tónlistardagskrá með verkum Jónasar Tómassonar tónskálds