Morgunblaðið - 26.07.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.07.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 Einnig úrval af pappadiskum, glösum og servéttum Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • okkarbakari.is • facebook.com/okkarbakari FLOTTU AFMÆLISTERTURNAR FÁST HJÁ OKKUR Skoðið úrvalið á okkarbakari.is þúsund krónur á 10 ára tímabili af hverjum posa og pin pad og ugglaust meira, því leiguverðið hækki með reglulegu millibili. „Við höfum verið í viðskiptum við Valitor frá 2009 og til dagsins í dag hefur posaleigan hækkað um 52%,“ sagði Guðmundur. Guðmundur telur að synjun Val- itors standist vart lög. Hann bendir á að símafyrirtæki séu með sín eigin kerfi, en viðskiptavinurinn hafi val um að kaupa sér hvaða símtæki sem er og geti síðan tengst kerfum þeirra. Hann spyr hvort hér sé ekki um sam- bærilega hluti að ræða. Guðmundur segir að á reikningum frá Valitor, sem berist mánaðarlega, standi Posar: Leiga og viðhaldsþjón- usta. „Á þeim tæpu sjö árum sem við höfum verið í viðskiptum við Valitor, Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Guðmundur Ómarsson á og rekur Eldhaf ehf. á Akureyri, en Eldhaf er endursöluaðili Apple á Norðurlandi. Guðmundur leigir posa af Valitor og pin pad og greiðir 7.569 krónur í leigu á mánuði, eða 90.828 krónur á ári. „Ég er einfaldlega mjög ósáttur við þetta háa leiguverð og kynnti mér því hvað svona posi kostar í útlöndum. Niðurstaðan er að ég gæti fengið eins posa og pin pad og ég er að leigja af Valitor fyrir um 60 þúsund krónur,“ sagði Guðmundur í samtali við Morg- unblaðið. Hann segist hafa haft samband við Valitor og sagt þeim að hann hefði áhuga á því að kaupa sér eigin posa að utan og vildi þannig losna undan leigunni, en honum hafi verið svarað á þann veg að það væri ekki hægt, því tækið þyrfti að tengjast kerfi og hug- búnaði Valitors. „Ég gef nú ekki mikið fyrir þetta svar, því vitanlega getur tæki sem er í okkar eigu af sömu gerð og posinn frá Valitor tengst kerfi þeirra,“ sagði Guðmundur. Guðmundur bendir á að ársleigan hjá Valitor sé 30 þúsund krónum hærri en stofnkostnaður fyrir bæði tækin. Þannig hagnist Valitor um 850 hefur tvisvar komið maður til okkar frá Valitor til að uppfæra hugbúnað til að virkja Tax Free og það tók um 10 mínútur í hvort skipti,“ sagði Guð- mundur. Allir posar okkar vottaðir Viðar Þorkelsson, forstjóri Val- itors, sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær að Valitor veldi þá leið að leigja út posana fyrst og fremst af ör- yggisástæðum. „Við berum ábyrgð á öryggi posanna, við þjónustum leigj- endur og sjáum um viðhald. Það er sérstakur hugbúnaður sem þarf að setja upp í posunum frá okkur og allir posar frá okkur eru sérstaklega vott- aðir,“ sagði Viðar. Hann segir að hugsanlega þyki einhverjum leigan vera há. „Það er samkeppni um að selja þessa vöru hér á landi og það eru nokkrir aðilar sem bjóða upp á posa- leigu. Við teljum okkur vera sam- keppnishæf um leiguverðið,“ sagði Viðar. Viðar var spurður hvort ársleiga á posa sem væri um 50% hærri en stofnkostnaður við posa og pin pad væri ekki óeðlilega há: „Það eru fleiri þættir sem þarf að horfa til en stofnkostnaður. Þar á ég við öryggisþáttinn sem er stór og þjónustuþáttinn. Við þurfum að vera viss um það að posinn sé frá viðurkenndum aðila. Það er hægt að framkvæma breyt- ingar á posum og það sem varðar okkur í þessu fyrst og fremst er að posinn sé pottþéttur, því kortasvik hafa farið vaxandi eins og kunnugt er. Allur er því varinn góður,“ sagði Við- ar. Viðar var spurður hvort hér væri ekki bara um afskaplega auðvelda tekjuöflun að ræða hjá kortafyrir- tækjunum, að leigja út posana og fá stofnkostnaðinn greiddan 1,5 falt ár hvert. Er ekki posaleigan bara eins og sjálfvirk peningamaskína fyrir kortafyrirtækin? „Það er eitt að tala um stofnkostnað og annað að tala um þjónustuna í kringum posana, upp- setningarþjónustu og aðra þjónustu. Við erum með sólarhringsþjónustu á þessum tækjum. Það á við um alla vöru sem er þjónustuð að þjónustan kostar peninga og við þurfum að ráða fólk til þess að sjá um þá þjónustu,“ sagði Viðar. Leigan 50% hærri en kostnaður  Segir Valitor hagnast um 850 þúsund krónur á 10 ára tímabili fyrir útleigu á posum  Má ekki eiga sinn eigin posa  Forstjóri Valitors bendir á kostnað fyrirtækisins vegna öryggisþátta og þjónustu Morgunblaðið/Árni Sæberg Posar Þeir sem leigja posa greiða kortafyrirtækjum í leigu um 90 þúsund krónur á ári, en stofnkostnaður posa og pin pad er um 60 þúsund krónur. Guðmundur Ómarsson Viðar Þorkelsson Jóhannes Tómasson johannes@mbl.is „Hvers vegna er Ísland svona dýrt? Er það til þess að halda for- sætisráðherra uppi?“ Ástralarnir Allen og Cedric voru í góðum gír þegar þeir ræddu við blaðamann Morgun- blaðsins í rigningunni á Laugaveg- inum í gær. Þeim þótti það viðeig- andi að eyða síðasta degi ferðalagsins í rigningunni. „Við höfum verið á Íslandi í sex daga og það rigndi ekki í átta klukku- stundir í gær, það er metið. Ég er ekki viss um að við höfum náð kortéri án rigningar hina dagana,“ sagði Allen. En þótt veðrið hafi ekki verið þeim að skapi var heim- sóknin ánægjuleg. „Við ferð- uðumst um Suðurlandið, fórum til Vestmannaeyja og vorum þar í tvo daga. Það var frábært í Eyjum.“ Vantar bensínstöðvar „Við höfum þó nokkrar tillögur fyrir ríkið. Það vantar fleiri útsýn- isstöðvar meðfram þjóðveginum, við keyrðum of oft fram hjá fal- legum stöðum en gátum ekki staldrað við vegna þess að veg- urinn var of þröngur. Einnig vant- ar fleiri bensínstöðvar og aðstöðu til að þvo bílana sína á þeim. Þetta eru samt bara praktískar tillögur, ferðin var frábær.“ Danirnir Fleming, Birgitte og Gustav létu enga slíka gagnrýni í ljós. „Við komum fyrir 13 dögum og við förum heim á morgun, þess vegna erum við í Reykjavík. Þetta hefur verið frábært, við leigðum fjórhjóladrifinn bíl og keyrðum um sveitina, þar sem fátt var af fólki. Sveitin og allt tengt henni er klár- lega það besta við Ísland,“ sagði Fleming. Morgunblaðið/Styrmir Kári Kátir í rigningunni Ástralarnir Cedric og Allen þurftu að þola meiri rigningu á Íslandi en í heimalandinu Hafa nokkrar praktískar tillögur fyrir stjórnvöld Á heimleið Gustav, Birgitte og Fleming eyddu síðasta deginum í Reykjavík. Síðustu óáteknu VHS-spólurnar eru nú til í nokkrum raftækjabúðum landsins. Þær raftækjaverslanir sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru löngu hættar að selja slíkar spólur en nokkrir pakkar fundust baka til hjá Sjónvarpsmiðstöðinni í Síðu- múla. Voru það óáteknar 120 mín- útna og 180 mínútna spólur. Þegar þær seljast mun fyrirtækið ekki endurnýja lagerinn því um helgina bárust þær fréttir að Funai Electric myndi hætta að framleiða VHS- spólur í lok mánaðarins. Fyrirtækið seldi á síðasta ári um 750 þúsund óá- teknar spólur víða um heim. Hefur fyrirtækið framleitt VHS-spólur í 33 ár og seldi mest 15 milljónir eitt árið þegar gullöld VHS stóð sem hæst. Síðan DVD-spilarinn og svo frelsisþjónustan í myndlyklunum komu til sögunnar hefur brekkan verið brött fyrir VHS-tækin og spól- urnar. Nýlegar árgerðir af VHS- tækjum eru ekki lengur í hillum heldur verður að kaupa þau á sölu- síðum líkt og Ebay og Amazon. Raftækjarisinn Elko seldi síðustu spólur sínar í byrjun mánaðarins og síðasta VHS-tækið var selt í lok síð- asta árs. Hjá fyrirtækinu fengust þær upplýsingar að enn kæmu þó viðskiptavinir inn í búðina og spyrðu hvort hægt væri að fá VHS-tæki og spólur. Spólurnar kláruðust í byrjun mánaðarins þegar viðskiptavinur gekk að kassanum með síðasta pakkann af 240 mínútna spólum. benedikt@mbl.is Síðustu andartök VHS AFP Gamalt VHS hefur ekki borið sitt barr eftir að DVD kom til sögunnar.  Tilkynnt að hætt verði framleiðslu á VHS-spólum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.