Morgunblaðið - 31.08.2016, Page 16
M
arport var stofnað árið
1997 og hefur sérhæft
sig í hönnun og fram-
leiðslu veiðarfæranema.
Í dag er Marport orðið
alþjóðlegt fyrirtæki með starfs-
stöðvar bæði á Íslandi, í Bandaríkj-
unum, Frakklandi og á Spáni og
starfsmennirnir um 40-45 talsins.
Axel Óskarsson er verkfræðingur
hjá Marport hann segir veiðarfæra-
nema miðla ýmsum upplýsingum upp
í brúna. Má segja að nemarnir gefi
skipstjóranum augu ofan í sjónum. „Í
dag eru veiðarfæranemarnir þráð-
lausir og er þeim komið fyrir t.d. á
trolli eða nót. Þeir safna og senda
upplýsingum um hita og dýpi, og taka
sónarmynd af því sem er að koma í
netið.“
Vilja láta alla skynjara tala saman
Helstu framfarirnar í veiðarfæra-
nematækni undanfarin ár hafa falist í
aukinni bandvídd. Geta nemarnir
núna sent tíu sinnum meiri upplýs-
ingar en hægt var fyrir um fimm ár-
um. „Núna vinnum við að því að þróa
og framleiða tækni sem samþættir
upplýsingarnar sem berast frá þeim
mælitækjum og skynjurum sem eru á
skipunum. Með því að samþætta upp-
lýsingar úr t.d. fiskleitartækjum og
veiðarfæranemum á að vera hægt að
fá mun skýrari mynd af því sem er of-
an í sjónum svo að skipstjórinn getur
hagað veiðunum af meiri nákvæmni.“
Skipstjórinn fær augu ofan
Allir skipverjar geta
fylgst með því sem
skynjararnir sýna í
snjallsímunum sínum.
Morgunblaðið/Ófeigur
Vinnutæki „Tækjabúnaðurinn okkar sendir nákvæma stað-
setningu á trollinu og vinnur með kortaforritum, fiskleit-
artækjum og staðsetningartækjum,“ segir Axel Óskarsson.
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016
Þrautseigja og þor í 115 ár
G
U
N
N
A
R
JÚ
L
A
R
T