Morgunblaðið - 13.09.2016, Page 2

Morgunblaðið - 13.09.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða lagerstarfsmann? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. land og teygjum okkur með inúíta- málum yfir til Kanada,“ segir Auður, en þegar hefur myndast net fræðimanna sem vinnur nú að því að safna þekkingu um tungu- málin á þessu svæði. „Svo stefnum við að því að koma þekkingunni á áhugaverðan hátt til almennings.“ Húsið verður opið almenningi að hluta og hægt verður að nálgast þar alls kyns fróðleik um tungu- mál og menningu. Auður, en mjög hafi munað um framlag Vigdísar og stuðning. „Mér fannst svo fallegt að sjá hversu margir lögðust á eitt og lyftu saman grettistaki og gerðu þessa byggingu að veruleika.“ Á fyrstu starfsárum stofnunar- innar verður áherslan lögð á tungumál á Vestur-Norðurlöndum. „Við skoðum tungumál í Noregi, á vesturströnd Noregs, samísku málin, Færeyjar, Ísland og Græn- Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Forsætisnefnd samþykkti á fundi sínum í gær starfsáætlun Alþingis fyrir september, en samkvæmt henni verður þingfrestun fimmtu- daginn 29. september nk. Einar K. Guðfinnsson, forseti Al- þingis, lagði drögin að þingfrestun fram í síðustu viku. „Hér er gert ráð fyrir því að þingi ljúki u.þ.b. mánuði fyrir kosningar,“ segir hann og vísar til komandi þing- kosninga sem áformað er að halda laugardaginn 29. október nk. Á kosningavef innanríkisráðu- neytisins kemur fram að þegar Al- þingi er rofið, líkt og gert verður á næstunni, ákveður forseti Íslands jafnframt kjördag með forsetabréfi samkvæmt tillögu forsætisráð- herra. Samkvæmt ákvæðum stjórn- arskrárinnar skulu kosningar fara fram áður en 45 dagar eru liðnir frá því að þingrof var kunngert. Næstkomandi fimmtudag, þ.e. 15. september, eru 45 dagar til fyrirhugaðra kosninga til Alþingis. Forsætisráðherra hefur hins vegar ekki upplýst hvort þingrof verði gefið út þann dag, en lögum sam- kvæmt er t.a.m. ekki hægt að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrr en forsetabréf liggur fyrir. Þingfundir og nefndir Samkvæmt starfsáætlun er áformað að halda átta þingfundi fram að þingfrestun og eru þrír nefndarfundir áætlaðir í þessari viku. Þá fer eldhúsdagur fram mánudaginn 26. september. Þingi frestað 30 dögum fyrir boð- aðar kosningar  Átta þingfundir og þrír nefndar- fundir eru fram að þingfrestun Morgunblaðið/Eggert Alþingi Kosningar til þings eru áformaðar 29. október nk. Pólverjar lögðu íslenska liðið í opn- um flokki er liðin áttust við í 10. umferð Ólympíuskákmótsins í Bakú. Unnu Pólverjar 2,5-1,5, en sagt er frá þessu á skak.is. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörv- ar Steinn Grétarsson og Guð- mundur Kjartansson gerðu allir jafntefli, en Bragi Þorfinnsson tap- aði hins vegar sinni skák. Í kvennaflokki vann Ísland stór- sigur gegn Sri Lanka 3-1. Lenka Ptacnikova, Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir og Hrund Hauksdóttir unnu sínar skákir, en Guðlaug Þor- steinsdóttir tapaði sinni viðureign. Það stefnir í spennandi baráttu um sigurinn í opnum flokki á milli Bandaríkjanna og Úkraínu. Bæði lið unnu sigra í gær og eru nú efst og jöfn fyrir síðustu umferð. Naumt tap gegn Póllandi en stór- sigur á Sri Lanka Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is „Ég var gríðarlega ánægður með þennan miðstjórnarfund í megin- dráttum. Mér fannst þetta mjög góður fundur og góðar umræður og var þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk þar. Það er hins vegar alveg ljóst að ég er ekki algerlega óumdeildur og hef reyndar sjaldnast verið. Það eru ákveðnir menn sem hafa verið gagnrýnir á mig og oft eru það nú sömu mennirnir.“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsókn- arflokksins, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Spurður út í mótframboð Sveinbjörns Eyjólfssonar, forstöðu- manns nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, á fyrirhuguðu flokksþingi Framsóknarflokksins segir hann að alltaf megi búast við að einhverjir velti fyrir sér framboðum þegar flokksþing er framundan og kosn- ingar til Alþingis. Ég fer stoltur í komandi kosn- ingar Spurður hvort hann eigi von á mótframboði frá Sigurði Inga Jó- hannssyni, forsætisráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins, kveður Sigmundur Davíð nei við. „Við Sigurður Ingi höfum unnið lengi saman og ræðum bara málin okkar á milli. Hann hefur sagt alloft, bæði opinberlega og á fundum með mér, að hann myndi aldrei bjóða sig fram gegn mér. Og það var raunar það síðasta sem hann ítrekaði þegar ég bað hann um að koma inn í Stjórnarráðið fyrir mig á meðan mál væru að skýrast síðasta vor. Þannig að ég hef enga ástæðu til að ætla að einhverjar breytingar hafi orðið á því þó kannski þurfi ekki að koma á óvart að þeir sem af einhverjum ástæðum hafa ekki verið sáttir við mig um árabil skori á hann,“ segir hann. Spurður hvernig hann meti stöðu sína innan Framsóknarflokksins segir Sigmundur Davíð: „Ég met stöðu mína innan flokks- ins góða. Annars vegar vegna þess að ég hef verið mjög mikið á fundum að undanförnu og hitt ákaflega margt fólk og hins vegar, þó ég segi sjálfur frá, vegna þess að það hefur náttúrulega gengið alveg frábær- lega á þessu kjörtímabili og jafnvel betur en ég, sem er þó bjartsýnn yf- irleitt, þorði að vona. Þannig að ég fer stoltur í komandi kosningar og ég tel að flokkurinn hafi tilefni til þess að gera það sem heild,“ segir Sigmundur Davíð. Sjaldan verið óumdeildur  Sigmundur Davíð segist þakklátur fyrir sýndan stuðning á miðstjórnarfundi flokksins  Á ekki von á að Sigurður Ingi bjóði sig fram til formanns Sunnan við bygginguna þar sem Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur rís nú óðfluga verður að finna útileikhús ut- an við fyrirhugað kaffihús í byggingunni. „Þar gætu set- ið nokkur hundruð manns og hægt væri að setja þar upp ljóðahátíðir, danssýningar eða barnaleikhús svo eitthvað sé nefnt,“ segir Auður. Um skemmtilega viðbót sé að ræða við sýningarrými og fyrirlestrarsali sem finna megi innandyra. Til stendur að stofnunin taki einnig á móti hópum er- lendra ferðamanna þegar fram í sækir og fræði þá um sögu og tengingar ýmissa tungumála við Ísland. „Til dæmis tungumál og menningu Frakka eða Dana á Íslandi, en það út- heimtir mikla rannsóknarvinnu sem þegar er farin af stað gagnvart nokkrum tungumálum,“ segir Auður. Skemmtileg viðbót utandyra ÚTILEIKHÚS SEM TEKUR HUNDRAÐ MANNS Í SÆTI Vigdís Finnbogadóttir „Byggingarvinnunni ætti að ljúka núna um áramótin og stefnt er að því að flutt verði inn fljótlega í kjölfarið,“ segir Auður Hauks- dóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, en fram- kvæmdum miðar vel og áætlað er að vígja og opna stofnunina í apríl á næsta ári í tengslum við afmæli Vigdísar Finnbogadóttur sem er 15. apríl. „Þetta hefur gengið skínandi vel þótt nokkrar tafir hafi orðið á verkinu, en upp- haflega var gert ráð fyrir að fram- kvæmdum lyki í næsta mánuði, 15. október,“ bætir hún við. Unnið er einnig að gerð ganga undir Suðurgötu, en að mati Auð- ar er mikill fengur að þessari tengingu á milli bygginga Háskól- ans austan og vestan við Suður- götuna. Til þessa hafa starfsmenn og stúdentar þurft að fara yfir mikla umferðargötu í öllum veðr- um. Lyftu saman grettistaki Margir vildu heiðra störf Vig- dísar og því gekk vel að fjár- magna byggingu stofnunarinnar, en um það bil helmingur bygging- arkostnaðar er sjálfsaflafé. Stærsta einstaka framlagið var um tvöhundruð milljónir frá A.P. Møller sjóðnum í Danmörku, segir Morgunblaðið/Ófeigur Tungumálamiðstöð Bygging Vigdísarstofnunar við Suðurgötu gengur vel og er stefnt að því að opna hana í apríl. Munaði mjög um fram- lag og stuðning Vigdísar  Stefnt er að opnun Vigdísarstofnunar í apríl á næsta ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.