Morgunblaðið - 13.09.2016, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.09.2016, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Eggert Kvikmyndagerðarfólk Andrea Hauksdóttir, Róbert Kesheshzade, Karel Candi og Þorbjörg Jónsdóttir. Hjónin Þorbjörg og Lee Lynch kenna m.a. á háskólastigi og halda kvikmyndanámskeið fyrir ungt fólk. og hver og einn sýnir hópnum það verk eða kvikmynd sem hann vinn- ur í. Kennarar og hópurinn koma svo með viðbrögð og umræður. „Markmið námskeiðsins er að búa til umhverfi þar sem nemendur geta gert það sem þau langar. Við hvetjum nemendur til að nálgast vinnuna út frá sínu áhugasviði. Við viljum virkja ungt fólk til að gera kvikmyndir og vídeó, búa til list þrátt fyrir að vera ekki með aðgang að milljón króna myndavél og tölvu,“ segir Þorbjörg. Hún bendir á að margir af þeim nemendum sem hafa komið á námskeið til þeirra séu að velta list- námi fyrir sér og séu forvitnir um það. „Við höfum hjálpað mörgum nemendum t.d. að sækja um list- nám, og námskeiðið þjónar líka þeim tilgangi,“ segir Þorbjörg. Það á jafnt við um kvikmynda- námskeiðið á Íslandi og í Los Ang- eles. Á námskeiðinu í Los Angeles hafa fleiri nemendur verið í yngri kantinum eða frá 16 til 20 ára, en á Íslandi hefur námskeiðið verið opið ungu fólki upp í 25 ára. Að öðru leyti segir hún nemendurna ekki ólíka. „Auðvitað er munur á menn- ingu hópanna. Það er allt öðruvísi að alast upp í Los Angeles en í Reykjavík og félagslega umhverfið er annað. En í grunninn er mann- eskjan eins, kjarninn er sá sami,“ segir hún. Hún segir nemendahóp- inn alltaf með mjög frjóar og rót- tækar hugmyndir. Þorbjörg er með BA-gráðu í myndlist við Listaháskóla Íslands og meistaragráðu í listrænni kvik- myndagerð frá CalArts, Listahá- skóla Kaliforníu í Los Angeles. Þar hitti hún eiginmann sinn, Lee Lynch, en hann er með BA-gráðu í kvikmyndagerð og meistaragráðu í myndlist frá USC. Hún segir þau hjónin eiga mjög auðvelt með að vinna saman, sérstaklega með svona frjóum og skemmtilegum hóp eins og sækir námskeiðin. Þau eru nú einnig að vinna saman að heimild- armynd í fullri lengd, sem fjallar um landafundi víkinga í Norður- Ameríku og er byggð á Eiríks sögu rauða. Hægt er að skrá sig á nám- skeiðið á www.hitthusid.is og www.teenagewastelandofthearts- .com DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100 Missið ekki af áhugaverðum þætti um um starfsemi Securitas og viðtali við stjórnendur fyrirtækisins. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 22.00 Heimsókn til Securitas – fyrri hluti í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld. • Leiðandi aðili í öryggisþjónustu á Íslandi um áratuga skeið • Stjórnstöð opin allan sólar- hringinn, 365 daga á ári • Nýjasta tækni í þróun öryggis- myndavéla, öryggishnappur og götugrill • Verðmætaflutningar og birgða- haldsstjórnun Laglínur hugans er yfirskrift sagna- kaffis sem fram fer í Gerðubergi á morgun, miðvikudag, kl. 20. Þar fjallar tónlistarkonan Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, um innblást- ur og áhrifavalda. Sagnakaffi er í um- sjón Ólafar Sverrisdóttur og er við- burðaröð í Gerðubergi. Þar er reynt að víkka út ramma hefðbundinnar sagnamennsku. Sagðar eru sögur í tali, tónum, takti, ljóðum og leik. Fólk úr ýmsum geirum þjóðfélagsins er fengið til leiks, svo sem tónlistarfólk, leikarar, uppistandarar, ljóðskáld og rapparar svo fátt eitt sé nefnt. Lay Low syngur og segir sögur af því hvernig lögin hennar verða til. Hvað verður henni innblástur, hver er uppsprettan af lögunum og hverjir eru helstu áhrifavaldar hennar. Lay Low var aðeins 24 ára þegar hún gaf út plötuna Please Don’t Hate Me og vakti strax gífurlega athygli. Í raun má segja að hún hafi orðið fræg á einni nóttu. Lovísa er fjölhæf tónlist- arkona, spilar á ýmis hljóðfæri og semur lög og syngur. Hún semur yfir- leitt við sína eigin texta en hefur líka samið tónlist fyrir leikhús og Brost- inn strengur er hljómplata þar sem hún samdi lög við ljóð íslenskra kvenna. Lay Low í Sagnakaffi í Gerðubergi Morgunblaðið/Ómar Sköpun Tónlistarkonan Lay Low seg- ir frá sköpunarferlinu við tónsmíðar. Segir frá laglínum hugans Í kvöld kl. 20 verður Íris Eiríksdóttir jógakennari með stutt námskeið, eina kvöldstund, þar sem hún kennir hugleiðslu. Þetta fer fram í Yoga hús- inu og kostar tvö þúsund krónur og er engin reynsla nauðsynleg. Frætt verður um grunnverkfæri hugleiðsl- unnar, nokkrar einfaldar hugleiðslur sem geta hjálpað að ná innri ró og kyrrð. Öndun er undirstaða hug- leiðslu. Kyrrð og ró hugans er nokkuð sem við flest þráum. Að stjórna hverju við gefum orku og athygli er þjálfun. Yoga húsið býður upp á stutt námskeið Kvöldstund í hugleiðslu Getty Images/iStockphoto Hugleiðsla Undirstaðan kennd á tveimur klukkutímum í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.