Morgunblaðið - 13.09.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 13.09.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Hrein samviska í 25 ár Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is B ra n d e n b u rg |s ía Sigurður Jóel Frið- finnsson, skrif- stofumaður og frjáls- íþróttamaður, lést 10. september sl. á 87. aldursári. Sigurður fæddist í Hafnarfirði 26. ágúst 1930, sonur hjónanna Elínar Árnadóttur kennara og Friðfinns V. Stefánssonar múr- arameistara. Sigurður lauk námi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík og starfaði hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga og Ríkis- kaupum sem skrifstofumaður. Sigurður var af gullaldarkynslóð íslenskra frjálsíþróttamanna sem gerði garðinn frægan á árunum 1948-1958. Hann var alla tíð félagi í FH og var sæmdur gullmerki fé- lagsins árið 1965. Árið 2001 var Sigurður sæmdur gullmerki FRÍ ásamt félögum sínum sem sigruðu landslið Noregs og Danmerk- ur í þriggja landa landskeppni sem fram fór í Osló á Bislet- leikvanginum 29. júní 1951. Hann var sigursæll með gullaldarlandsliði Íslands á mótum heima og erlendis. Sigurður var keppnis- maður í tugþraut og varð m.a. Íslands- meistari í þeirri grein árið 1949 og setti um leið Íslandsmet unglinga. Á Ís- landsmótinu í frjálsum íþróttum ár- ið 1950 sigraði Sigurður heims- methafann í tugþraut, Bob Mathias, í hástökkskeppni mótsins sem Mathias tók þátt í sem gestur. Sigurður lætur eftir sig eigin- konu, Sigríði Einarsdóttur, og fjór- ar uppkomnar dætur. Andlát Sigurður Jóel Friðfinnsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Haustmánuðirnir í ár og í fyrra hafa verið drjúgir við höfnina í Siglufirði, en línubátar alls staðar að af landinu hafa landað þar undanfarið. „Þeim hef- ur trúlega eitthvað fjölgað frá síðasta ári, sem var ævintýralega gott, og auk þess voru bátarnir fyrr á ferðinni í ár,“ segir Steingrímur Óli Hákonar- son, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Siglufjarð- ar. Fleiri hafnir fyrir norðan og austan njóta góðs af fiskgengd á þessum slóðum á haustmánuðum og hefur obbinn af línuskipunum verið fyrir norð- an og austan land að undanförnu. Umsvif allt árið Í gær var verið að landa úr tveimur stórum rækjuskipum í Siglufirði, Múlabergi ÓF skipi Ramma og Sóleyju Sigurjóns GK frá Nesfiski. Fiskmarkaður Siglufjarðar sér um alla löndun í Siglufirði og voru tvö löndunargengi við rækju- löndun í gær, fimm manns í hvoru skipi. Alls voru 16 manns í vinnu hjá Fiskmarkaðnum, en flestir hafa starfsmennirnir verið 20 í haust. Tiltölulega rólegt var þó í gær eftir brælu síðustu daga. Af bátum sem landað hafa í Siglufirði í haust nefnir Steingrímur Óli báta frá Stakkavík, Þor- birninum og Vísi í Grindavík, Hraðfrystihúsi Hellissands, Agustsson Stykkishólmi, KG á Rifi og fleiri. Stóru bátarnir landa oft á þriggja daga fresti en þeir minni daglega. Hann segir mest af þorskinum vera keyrt til vinnslu í heimahöfn skipanna þar sem aflinn fari í vinnslu. Ýmsar aukategundir séu hins vegar boðn- ar upp á markaðnum á Siglufirði og nefnir Stein- grímur Óli töluvert af karfa og hlýra í því sam- bandi. „Þessi umsvif hér á Siglufirði eru orðin meira og minna allt árið. Til dæmis hefur gengið fínt á rækjunni í ár og hér landa reglulega 5-6 rækju- skip,“ segir Steingrímur Óli. Norðanátt og leiðindi „Það hefur verið norðanátt og leiðindi síðustu tvo daga svo að báturinn hefur legið við bryggju,“ sagði Sigurður A. Þórarinsson, skipstjóri á Gull- hólma SH, um hádegi í gær. Fimm eru í áhöfn hverju sinni en tvær áhafnir eru á skipinu. Skip- verjar sofa um borð í bátnum, sem var tekinn í notkun fyrir ári síðan og er í eigu Agustsson í Stykkishólmi. Sigurður segir að ekki væsi um þá í bátnum, sem er 30 brúttótonn að stærð, um 13,7 metra langur og 5,7 metra breiður. Hann er af gerðinni Seigur XV 1370 og er smíðaður hjá bátasmiðj- unni Seiglu ehf. á Akureyri. Hann leysti af hólmi eldri og stærri línubát með sama nafni, gamli Gullhólmi er núna Hörður Björnsson ÞH 260, sem gerður er út frá Raufarhöfn. Þeir á Gullhólma hófu línuróðra fyrir Norður- landi strax eftir verslunarmannahelgi og landa á Siglufirði. Sigurður segir að ágætlega hafi fiskast síðustu vikur, en fyrir helgi voru þeir vestan við Grímsey. Áberandi sé þó hversu blandaður þorsk- aflinn sé í ár, en í fyrra fengu þeir stóran fisk í mun meiri mæli. Þorskurinn er saltaður hjá Ag- ustsson og hentar stóri fiskurinn betur. Sjaldan róið frá Stykkishólmi Gullhólmi rær hverju sinni þaðan sem fiskjar er helst von og aflinn er síðan keyrður í Stykkishólm. „Það er eiginlega bara á vetrarvertíð sem við ró- um frá Stykkishólmi, en við höfum meðal annars landað í Ólafsvík, Bolungarvík og Sandgerði í ár auk Siglufjarðar. Í ágúst fórum við líka í þrjá róðra fyrir austan til að ná grálúðukvótanum fyrir fiskveiðiáramótin og fluttum okkur svo aftur norður,“ segir Sigurður. Siglufjörður Gullhólmi SH frá Stykkishólmi og Örvar SH frá Rifi. Margir línubátar og líflegt haust  Um 20 manns í vinnu hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar þegar mest er um að vera Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sævarsson Línufiskur Sigurður Þórarinsson hampar þeim gula á bryggjunni í Siglufirði. Verð á minkaskinnum hækkaði nokkuð fyrstu dagana á september- uppboði danska uppboðshússins Kopenhagen Fur. Högnaskinn hækkuðu um 10-18% en læðuskinn minna. Skinn í hærri gæðaflokkum hækkuðu meira en þau lakari. Ís- lenskir loðdýrabændur selja alla sína framleiðslu í Danmörku og njóta góðs af þróuninni. Verð á minkaskinnum lækkaði mikið á síðasta ári, eftir mörg góð ár. Lækkunarhrinan hætti í febrúar á þessu ári og fór þá að myndast nýtt jafnvægi á markaðnum. Örlítil hækkun varð í júní og nú er útlit fyr- ir heldur meiri hækkun. „Þetta þýðir að hækkunarferillinn byrjar heldur fyrr en reiknað hefur verið með. Ég bjóst ekki við hækkun fyrr en komið væri fram á næsta ár,“ segir Björn Halldórsson, minkabóndi á Akri í Vopnafirði og formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda. Framleiðendur gefast upp Björn segir að aðstæður á mark- aðnum séu að snúast við. Ástæða verðfallsins var mikil offramleiðsla í góðærinu. Frá 2013 hefur heims- framleiðslan minnkað úr 87 milljón- um minkaskinna í 54 þúsund skinn á þessu ári. Björn telur að fleiri fram- leiðendur á lakari framleiðslusvæð- um séu komnir í vandræði og telur líklegt að framleiðslan minnki enn. Framleiðslan í ár kemur til sölu á næsta ári og koma áhrif hennar þá að fullu fram. Björn bætir því við að sala á skinn- um hafi gengið ágætlega í Kína allt þetta ár. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skinn Kaupandi skoðar mink. Minkaskinn spyrna sér frá botninum  Verð byrjað að hækka á uppboði fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.