Morgunblaðið - 13.09.2016, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.09.2016, Qupperneq 16
Hvað hefur breyst? Ráðstefna um breytingar á regluverki fjármálamarkaða á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum í kjölfar fjármálakreppunnar Í tilefni af útgáfu skýrslunnar Hvað hefur breyst? standa Samtök fjármálafyrirtækja fyrir ráðstefnu um breytingar á regluverki fjármálamarkaða. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, á morgun, miðvikudaginn 14. september. Hún hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10:15. Skráning þátttöku er á vefnum sff.is. DAGSKRÁ Setning Birna Einarsdóttir, formaður stjórnar SFF. Hvað hefur breyst? Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands og einn höfunda, kynnir efni skýrslunnar. Ávarp ráðherra Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Pallborðsumræður Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar HÍ, Ásta Þórarinsdóttir, stjórnarformaður FME, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar — græns framboðs. Pallborðsumræðum stjórnar Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hagnaður Isavia á fyrri helmingi ársins var tæplega 1,7 milljarðar króna samanborið við 540 milljónir á sama tímabili á síðasta ári. Hagn- aður eykst því um liðlega 1,1 millj- arð króna á milli ára Af þeirri hækk- un má rekja 670 milljónir króna til gengisáhrifa af erlendum fjár- eignum og skuldum. Rekstrarafkoma Isavia fyrir fjár- magnsliði og skatta var jákvæð um röska 1,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins. Rekstrartekjur námu 14,4 milljörðum króna sem er tæplega þriggja milljarða króna aukning, samanborið við sama tíma- bil á síðasta ári. Á fyrstu sex mánuðum ársins fóru um 2,7 milljónir farþega um Kefla- víkurflugvöll, sem er um 34% aukn- ing frá sama tímabili í fyrra. Þetta er svipaður fjöldi og fór um flugvöll- inn allt árið 2012. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að fjöldi farþega árið 2016 verði um 6,7 milljónir talsins, sem yrði 37% aukning milli ára. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir afkomu allra rekstrar- þátta félagsins, sem saman standa af rekstri Keflavíkurflugvallar, Fríhafnarinnar, innanlands- flugvallakerfis og flugleiðsöguþjón- ustu, vera í takt við áætlanir félags- ins. Hann segir hins vegar að Isavia hafi gengið eins langt og mögulegt er í þeirri viðleitni að mæta með kostnaðaraðhaldi lækkandi fjár- framlögum til innanlandsflugs frá ríkinu. „Það er löngu komið að þol- mörkum og ljóst að leita þarf allra leiða til að tryggja að innanlands- flugvallakerfið verði raunhæfur kostur til ferðalaga innanlands,“ segir Björn. vilhjalmur@mbl.is Isavia hagnast um 1,7 milljarða  Tekjur 14 milljarðar króna á hálfu ári Morgunblaðið/ÞÖK Flugvöllur Mikil fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll eykur tekjur Isavia. 13. september 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 114.1 114.64 114.37 Sterlingspund 152.39 153.13 152.76 Kanadadalur 88.58 89.1 88.84 Dönsk króna 17.295 17.397 17.346 Norsk króna 14.029 14.111 14.07 Sænsk króna 13.582 13.662 13.622 Svissn. franki 117.87 118.53 118.2 Japanskt jen 1.1222 1.1288 1.1255 SDR 160.2 161.16 160.68 Evra 128.77 129.49 129.13 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 160.3755 Hrávöruverð Gull 1335.65 ($/únsa) Ál 1566.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.63 ($/fatið) Brent ● Aflaverðmæti ís- lenskra skipa reyndist ríflega tveimur millj- örðum króna minna í maí síðast- liðnum en í sama mánuði í fyrra. Er það samdráttur upp á 14,7%. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofunni. Alls var aflaverðmæti íslenskra skipa í mánuðinum 11,9 milljarðar króna. Verðmæti botnfiskafla dróst saman um 8,3% frá maí á þessu ári í saman- burði við sama mánuð í fyrra. Verð- mæti afla flatfisks dróst saman um 26,9% milli ára og verðmæti uppsjáv- arafla reyndist 30,4% minna í maí- mánuði þessa árs en í sama mánuði í fyrra. Á tímabilinu maí 2015 til maí 2016 dróst aflaverðmæti saman um 5,6% miðað við sama tímabil ári fyrr. Aflaverðmæti dróst saman um 15% í maí Afli Uppsjávarafli er minni í maí í ár. Hagnaður Múrbúðarinnar nam 61,4 milljónum króna á síðasta ári. Er það umtalsvert meira en árið á und- an en þá var hagnaður fyrirtækisins 40,9 milljónir króna. Rekstrarhagn- aður fyrir fjármagnsliði jókst einnig milli ára og var 70,7 milljónir króna árið 2015 en 48,7 milljónir árið 2014. Hagnaður fyrir skatt nam 76,2 milljónum króna í fyrra en var 51,5 milljónir árið 2014. Hagnaður Byko jókst einnig umtalsvert milli ára en hann var 527,9 milljónir króna á árinu 2015 en var 131,2 milljónir árið á und- an. Rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði eykst einnig umtals- vert og var 650 milljónir árið 2015 en rétt tæpar 240 milljónir árið 2014. Þá var aukning í vöru- sölu hjá Byko um rúman milljarð króna, úr rétt rúmum 12 millj- örðum árið 2014 í 13,4 milljarða króna 2015. Hagnaður Húsasmiðjunnar var ívið minni á síðasta ári en árið 2014 en hann nam 82,9 milljónum króna í fyrra en var 84,7 milljónir króna árið 2014. Rekstrarhagn- aður fyrir fjármagnsliði minnkaði milli ára. Hann var um 210 millj- ónir árið 2014 en tæp 131 milljón á síðasta ári. Betri afkoma í bygging- arvörum á síðasta ári  Hagnaður jókst milli ára hjá Múrbúðinni og Byko Matsfyrirtækið Moody’s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íbúða- lánasjóðs um tvo flokka. Einkunn sjóðsins fer því úr Baa3 í Baa1. Að sögn Moody‘s endurspeglar hækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs bætta stöðu ríkissjóðs og getu hans til að standa við skuldbindingar sjóðsins. Í kjölfar hækkunar á lánshæfis- einkunn ríkissjóðs í byrjun mán- aðarins hækkaði Moody’s einnig lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr Ba1 í Baa3 fyrir skuldbindingar án ríkisábyrgðar og úr Baa2 í Baa1 fyrir skuldbindingar með ríkis- ábyrgð. Þá hækkaði Moody‘s ein- kunn Orkuveitu Reykjavíkur úr Ba3 í Ba2 með stöðugum horfum í kjöl- far hækkunar ríkissjóðs. Moody’s hækkar lánshæfis- einkunn Íbúðalánasjóðs Morgunblaðið/Golli Lán Íbúðalánasjóður fer í Baa1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.