Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.09.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hillary Clinton, forsetaefni demó- krata, varð að gera hlé á kosninga- baráttu sinni í gær eftir að hafa greinst með lungnabólgu og veikst við athöfn í New York-borg í fyrra- dag þegar minnst var hryðjuverk- anna í Bandaríkjunum 11. septem- ber 2001. Donald Trump, forsetaefni repúblíkana, kvaðst vona að Clinton næði sér af veikindunum og sagði að hann hygðist birta upplýsingar um heilsufar sitt innan tíðar. Clinton hafði verið í eina og hálfa klukkustund við athöfnina þegar hún fann til vanlíðunar og fór að bíl sín- um í fylgd aðstoðarmanna. Á mynd- skeiði sem var dreift á félagsmiðlum virtist hún missa fótanna en að- stoðarmenn hennar studdu hana og hjálpuðu henni í bílinn. Hún fór í íbúð dóttur sinnar og nokkrum klukkustundum síðar fór hún þaðan, brosti og veifaði til fjölmiðlamanna áður en hún fór heim til sín. Einkennin væg Læknir Clinton sagði síðar að hún hefði þjáðst af vessaþurrð vegna of- hitnunar og skýrði frá því að hún hefði greinst með lungnabólgu á föstudaginn var. Hún hefði fengið sýklalyf og þyrfti að hvíla sig en væri á góðum batavegi. Hermt var að einkennin væru væg og Clinton ætti að ná sér á nokkrum dögum. Stjórnmálaskýrendur töldu þó að myndirnar þar sem hún virtist hníga niður gætu skaðað hana í kosningabaráttunni og kynt undir vangaveltum um að hún væri ekki nógu heilsuhraust til að gegna for- setaembættinu. Clinton og aðstoðar- menn hennar voru gagnrýnd fyrir að bíða með það í tvo sólarhringa að segja frá því að hún fékk lungna- bólgu. Hillary Clinton er 68 ára, Donald Trump sjötugur og þau eru á meðal elstu frambjóðendanna í sögu for- setakosninga í Bandaríkjunum. Trump hafði áður sagt að Clinton skorti „þann andlega og líkamlega þrótt“ sem þyrfti til að vera forseti Bandaríkjanna. Clinton gerir hlé á bar- áttunni vegna veikinda  Getur kynt undir vangaveltum um að hún sé ekki nógu heilsuhraust  Trump boðar upplýsingar um heilsufar sitt AFP Á batavegi Hillary Clinton veifar til fjölmiðlamanna nokkrum klukkustundum eftir að hún veiktist á sunnudag. kurteisari þegar hún synjaði Bayan um þjónustu, en neitaði því að hún hefði gerst sek um mismunun á grundvelli trúarbragða. Hodne sagði fyrir réttinum að hún liti á híjab-slæðuna sem póli- tískt tákn hugmyndafræði sem hún óttaðist, en ekki trúartákn. Í ákæruskjalinu segir að Hodne hafi sagt Bayan að hún yrði að „finna annan stað því hún sinnti ekki viðskiptavinum eins og henni“. Hodne var ákærð eftir að hún neitaði að greiða 8.000 norskar krónur í sekt (111.000 ísenskar) vegna málsins. Héraðsdómstóll í Noregi dæmdi í gær hárgreiðslukonu til að greiða 10.000 norskar krónur, um 140 þús- und íslenskar, í sekt fyrir að synja múslímskri konu með híjab-slæðu um þjónustu. Hárgreiðslu- konan Merete Hodne átti yfir höfði sér allt að sex mánaða fang- elsisvist fyrir að mismuna við- skiptavini á grundvelli trúar- bragða. Hodne neitaði Maliku Bayan um þjónustu á hárgreiðslu- stofu sinni í bænum Bryne í suð- vesturhluta Noregs í október í fyrra. „Dómstóllinn … dregur ekki í efa að gjörðir hinnar ákærðu voru vís- vitaðar. Hún mismunaði Bayan af ásettu ráði með því að vísa henni á brott af hárgreiðslustofu sinni vegna þess að hún er múslími,“ sagði í dómnum. Hodne var gert að greiða 10.000 norskar krónur í sekt og 5.000 í dómskostnað. Hyggst áfrýja dómnum Verjandi Hodne sagði að hún hygðist áfrýja dómnum. Hún viður- kenndi þó að hún hefði getað verið AFP Sakborningurinn Hárgreiðslukon- an Merete Hodne fyrir rétti. Dæmd fyrir mismunun  Hárgreiðslukonu gert að greiða sekt Malika Bayan Lögregluyfirvöld í Hollandi segjast hafa ákveðið að beita örnum í bar- áttunni gegn drónum. Ernir hafa öldum saman verið notaðir til veiða en Holland er fyrsta landið þar sem lögreglan beitir þeim gegn drónum þegar almenningi er talin stafa hætta af þeim, að sögn talsmanns hollensku lögreglunnar, Dennis Janus. Fréttaveitan AFP hefur eftir talsmanninum að tilraunir hafi gef- ið góða raun, enginn fuglanna hafi meiðst og enginn dróni komist úr klóm arnar. Aldagömul aðferð notuð gegn nýju vandamáli AFP Örnum beitt gegn drónum SMÁRALIND www.skornirthinir.is Verð 2.995 Stærðir 40-46 Verð 5.995 Stærðir 40-46 Herrainniskór Að minnsta kosti 133 manns hafa látið lífið og 395 til viðbótar er saknað vegna flóða í Norður- Kóreu, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna. Fjölmiðlar í Norður-Kóreu segja þetta mestu flóð í landinu í áratugi. Um 107.000 manns hafa neyðst til að flýja heimkynni sín vegna flóða í Tumen-fljóti. Vatn hefur flætt inn í 35.500 hús og um 69% þeirra ger- eyðilögðust, að sögn embættis- manna Samræmingarskrifstofu að- gerða SÞ í mannúðarmálum, OCHA. Um 16.000 hektarar af ræktar- landi hafa farið á kaf og að minnsta kosti 140.000 manns þurfa á neyðaraðstoð að halda. Embættis- menn Sameinuðu þjóðanna segja að flutningar hafi verið hafnir á hjálpargögnum á flóðasvæðin. Minnst 133 látnir og 395 saknað FLÓÐ VALDA MIKLU MANNTJÓNI Í NORÐUR-KÓREU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.